Morgunblaðið - 12.05.2016, Síða 22

Morgunblaðið - 12.05.2016, Síða 22
22 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. MAÍ 2016 VIÐTAL Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is „Þegar sú ákvörðun var tekin í febrúar 2009 að ríki og borg yfirtækju þennan hálfbyggða minnisvarða um mikil- mennskuhugmyndir forhrunsáranna var það djörf ákvörðun sem hlaut að vekja deilur,“ segir Halldór Guð- mundsson, forstjóri tónlistar- og ráð- stefnuhússins Hörpu. Fimm ár eru í dag síðan formlegir opnunartónleikar voru í Hörpu en hann tók við forstjóra- stöðunni ári síðar. Þegar rætt er við Halldór um þessi ár og baráttuna við að halda rekstri hússins gangandi seg- ir hann það oft hafa verið erfitt en einnig afar ánægjulegt. „Í upphafi þurfti að skrapa saman lán hjá þeim bönkum sem eftir voru á innanlandsmarkaði til þess að hægt væri að ljúka við bygginguna. Frá sjónarhóli okkar sem hér störfum var það bæði djörf og víðsýn ákvörðun. Annars hefðum við haft hér óbrot- gjarnt minnismerki um mistök en vor- um í stað þess að reisa minnisvarða um endurreisn. Eins og útkoman varð er þetta líka vottur um þýðingu menningar á krepputímum. Á ráðstefnu sem ég var beðinn um að ávarpa hjá Evrópusam- bandinu sagði ég að mér þætti Harpa lifandi sannindamerki þess að ríki ættu að fjárfesta í menningu í kreppu frem- ur en eftir kreppu.“ Halldór segir að einmitt af því að Harpa hafi risið vegna glæsilegrar baráttu íslenska tónlistarmanna fyrir tónlistarhúsi, og að þar hafi átt að vera heimkynni Sinfóníuhljómsveitarinnar, hafi starfsmenn jafnframt þurft að sýna fram á að þetta væri hús allrar tónlistar. „Þá hefur líka þurft að sýna dugnað varðandi annars konar atburði, til að mynda innlent sem alþjóðlegt ráðstefnuhald sem skiptir miklu og skilar góðum tekjum. Það eru allir jafn velkomnir gestir í þessu húsi og við þurfum stöðugt að vanda okkur, enda erum við þjónustufyrirtæki fyrir eig- endurna, sem er þjóðin. En þótt stærsta afrekið hafi verið hjá fólkinu sem opnaði þetta hús hefur starfs- fólkið síðan líka sýnt einstakan dug við að sinna þessu alhliða hlutverki.“ Kafka við Sæbrautina Halldór neitar því ekki að stór- einkennilegar þverstæður hafi verið í rekstri hússins undanfarin ár. „Ein er að eyða fjórum árum í mála- ferli við eigendur sína. Þegar ég hóf hér störf þurfti að byrja á því að endurfjármagna bygginguna sjálfa. Sú endurfjármögnun átti að gerast með skuldabréfaútgáfu Landsbankans. En bankinn tregðaðist lengi við, var ekki nógu viss um að greiðsluloforð eig- enda, það er ríkis og borgar, myndu standast, og var þó sjálfur í eigu ríkis- ins. Þetta var einkennileg hringrás og fjöldi lögmanna var kvaddur til verka áður en menn komust að þeirri niður- stöðu sem lá fyrir í upphafi. Eins lá al- gjörlega fyrir að enginn rekstur í þessu húsi myndi geta staðið undir öðrum eins fasteignagjöldum og hér höfðu verið lögð á. Það þurfti að fara með það mál alla leið fyrir Hæstarétt. Við fórum í mál við eigendur hússins, með samþykki eigenda, gegn ákvörð- unum eigenda en þó með hagsmuni eigenda í huga. Enda hef ég skrifað um þetta og fleiri þverstæður örsögu sem heitir Kafka við Sæbrautina, hvenær sem ég nú birti hana!“ Nýjum útreikningi á fasteigna- gjöldum Hörpu er enn ekki lokið en Halldór segir Hæstarétt hafa verið af- dráttarlausan um að þau yrðu reiknuð samkvæmt tekjuvirði hússins. „Sem var sú nálgun sem Harpa óskaði strax árið 2011 eftir að yrði beitt. Ef menn hefðu horft með sanngirni á málið, með þeim hætti sem Hæstiréttur leggur áherslu á, hefði það sparað okkur fjög- urra ára úttektir og svimandi háan kostnað.“ – Og hversu margar milljónir? „Það á eftir að koma í ljós. En þetta hefur verið langsamlega erfiðast við reksturinn. Oft vefst það fyrir útlend- ingum sem dást að því að Íslendingar skyldu hafa klárað þetta hús á erfiðum tíma að um leið hafi verið tekin ákvörð- un um að leggja á það svo þunga skatta að það myndi aldrei geta risið undir þeim.“ Halldór segir stoltur að í dag iði Harpa af lífi. Húsið hafi getað aflað þeirra miklu tekna sem gert var ráð fyrir í upphafi, en í fyrstu áætlunum hafi kostnaðurinn við að reka svona hús hins vegar verið vanmetinn og þar skipti himinhá gjöld miklu. Þá var frá upphafi gert ráð fyrir ráðstefnuhóteli við Hörpu. „Nú er bygging þess hafin og það mun styrkja okkur mjög í al- þjóðlegum ráðstefnurekstri. Í fyrra voru ellefu alþjóðlegar ráðstefnur í Hörpu, á þessu ári verða þær sextán. Í alfyrstu hugmyndum Ólafs Elías- sonar og félaga um útlit hússins má sjá skissur af fuglabjargi. Nú erum við orðin slíkt bjarg, margradda og iðandi af lífi, og þannig verður það vonandi áfram,“ segir hann. Djörf og víðsýn ákvörðun  Fimm ár síðan Harpa, tónlistar- og ráðstefnuhús, var formlega tekin í notkun  „Djörf ákvörðun sem hlaut að vekja deilur,“ segir Halldór Guðmundsson um þá ákvörðun að ljúka við bygginguna Morgunblaðið/Kristinn Forstjórinn „Við fórum í mál við eigendur hússins, með samþykki eigenda, gegn ákvörðunum eigenda en þó með hagsmuni eigenda í huga,“ segir Halldór Guðmundsson um átökin um útreikning fasteignagjalda Hörpu. „Svo sannarlega hefur rekstur Hörpu verið erfiður en ef við lítum til síðasta árs komu hingað 1,7 milljónir gesta, það eru yfir 600 tónleikar og 400 annars konar viðburðir í húsinu,“ segir Halldór. „Þetta sýnir að Harpa hefur orðið mið- læg, ekki bara í tónlistinni heldur í mannlífi í landinu. Mér fannst strax að á ábyrgð okkar sem höfum húsvörsluna með höndum væri að láta fólki líða eins og það ætti húsið. Það voru kjörorðin frá upp- hafi: Harpa, húsið þitt. Auðvitað munu ekki allir líta svo á, og fólk má með góðum rétti vera andsnúið mörgu af því sem hér fer fram, en upp til hópa eru Íslendingar stoltir af Hörpu og sækja sér hingað fróðleik, upp- lyftingu og afþreyingu.“ 1,7 milljónir gesta í fyrra HARPA ER ORÐIN MIÐLÆG Í LÍFI LANDSMANNA Ljósaverk Ólafs Elíassonar á Hörpu. Alþjóðasamtök um íslenska hestinn (FEIF) hafa hafnað einu umsókn- inni sem barst um að halda Heims- leika íslenska hestsins á árinu 2019. Umsóknin var fyrir mótsstað í Berlín. Samkvæmt reglum FEIF þurfti samþykki viðkomandi lands- sambands til að hægt væri að ganga til samninga um mótshald en þýska íslandshestasambandið, IPZV, studdi ekki umsókn Berlínar. Mótið 2019 hefur nú verið aug- lýst að nýju og frestur til að sækja um rennur út 10. júlí. Gunnar Sturluson, formaður FEIF, segir að ekki sé lengur krafist stuðnings landssambanda. Breytingar á reglum í þá veru hafi tekið gildi eft- ir að mótið var auglýst í fyrra skiptið. Hann kveðst eiga von á að hestamannafélagið ISB í Berlín endurnýi umsókn sína og telur hugsanlegt að fleiri umsóknir ber- ist, jafnvel frá öðrum stöðum í Þýskalandi. Deilur í Þýskalandi ISB er lítið hestamannafélag. Í forystu þess eru menn sem tóku þátt í skipulagningu HM í Berlín 2013. Þeir nutu stuðnings Berlínar- borgar við fyrri umsókn sínar. Deilur hafa verið í þýska Íslands- hestasambandinu um forystu og stefnu. Hefur það komið fram í hestamiðlum í Þýskalandi. Deilurn- ar og ágreiningur um fjárhagslegt uppgjör HM 2013 birtast meðal annars í óeiningu um umsókn ISB um að halda mótið í Berlín. Næstu heimsleikar verða haldnir í Oirschot í Hollandi á næsta ári. Leikarnir voru haldnir á þessum stað fyrir tíu árum. Gunnar segir að undirbúningur gangi vel. helgi@mbl.is Studdu ekki HM í Berlín 2019  Auglýst öðru sinni eftir umsóknum Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Berlín Íslenski fáninn var áberandi enda margir Íslendingar á pöllum.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.