Morgunblaðið - 12.05.2016, Page 40

Morgunblaðið - 12.05.2016, Page 40
40 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. MAÍ 2016 Verð á vasaúrum frá kr 18.900 Hjúkkuúr frá 7.600 SVIÐSLJÓS Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Margir Skagfirðingar trúa sterkt að til séu verur af öðrum heimum. Alls- konar mórar eru við húshornin og í klettum búa álfar og aðrar huldar verur; velviljaðar og hjálpsamar. Að þetta sé veruleiki vil ég ekki útiloka, því um ævina hef ég talað við margt gott og grandvart fólk sem hefur séð í aðra veröld og efast ekki. Við skriftir síðustu árin fannst mér gaman að grúska í þessum sögum og skrifa þær, á stundum hélt það mér hreinlega uppi,“ segir Páll Sigurðsson rithöf- undur og fyrrverandi lagaprófessor „Yfrum“ Héraðsvötnin Út er komin Árbók Ferðafélags Íslands 2016 sem ber titilinn Skaga- fjörður austan vatna – Frá Hjaltadal að Úlfsdölum. Þetta er þriðja árbók- in um Skagafjörð sem Páll skrifar; hin fyrsta kom út 2012 þar sem sagði frá landi og lífi vestan Héraðsvatna. Ritið 2014 fjallaði um svæðið frá Hofsjökli og út í Viðvíkursveit að Hegranesi meðtöldu. Í bókinni nú eru svo þræddar slóðir frá Kolkuósi og Hjaltadal og norður í Fljót, það er norður fyrir Almenninga – þar sem Fjallabyggð með Siglufirði er næsti bær við. Alls er bókin um 250 blað- síður, fróðleiksnáma með fjölda mynda og korta. „Upphaflega áttu Skagafjarðar- bækurnar að verða tvær. Önnur skyldi vera um héraðið vestan Hér- aðsvatna en svo átti að fara yfrum eins og vestanvatnamenn segja um austanverðan Skagafjörð. Undir var svæðið frá upptökum áa inni á há- lendinu og út í Fljót. Fljótlega kom þó í ljós að frá svo mörgu væri að segja að ein bók dygði ekki – og þeg- ar kom að uppskiptum var ágætt að miða við Kolkuós, Viðvíkursveit og Hjaltadal,“ segir Páll. Út að austan Að fara heim til Hóla er málvenja í Skagafirði sem er áreiðanlega mörg hundruð ára gömul. Það er raunar samkvæmt öðru í Skagafirði, margt í mannlífi þar byggist á menningu fyrri alda og er daglegur veruleiki á því herrans ári 2016. Þegar Viðvíkursveit og Hjaltadal sleppir tekur við það svæði sem Skagfirðingar kalla „út að austan“. Þetta eru Óslandshlíð, Höfðaströnd, Sléttuhlíð og Fljót og svo dalirnir sem ganga inn til fjalla Tröllaskag- ans. Kalt sjávarloftið liggur gjarnan í loftinu í þessum sveitum, sem hafa mjög mátt undan láta. Búskapur hef- ur látið talsvert undan, en eitt og annað þó komið í staðinn. Vesturfarasetrið á Hofsósi og starfsemi þess, með sínum glæsilegu byggingum, vekur athygli. Ein- stakur þykir arkitektúr sundlaugar- innar í þorpinu, sem athafnakon- urnar Lilja Pálmadóttir á Hofi og Steinunn Jónsdóttir í Bæ, gáfu. Sú síðarnefnda starfrækir listasetur að Bæ á Höfðaströnd. Þá er starfrækt ferðaþjónusta í Lónkoti í Sléttuhlíð, þar sem nafn Sölva Helgasonar er í hávegum haft. Hinn alræmdi flakk- ari 19. aldarinnar – Sólon Íslandus – var af þessum slóðum og er fyrir löngu orðinn „gull og gersemi“ eins og hann lýsti sjálfum sér í vísu. „Sölvi fór á milli bæja og sníkti sér til matar. Þetta var hvort tveggja í senn, snillingur til munns og handa og hins vegar loddari sem falsaði reisupassa og var reyndar fyrir þær og aðrar sakir dæmdur til Brimar- hólmsvistar. Knyttir hans eru þó ósköp smávægilegir og bara fyndnir þegar þeir eru bornir saman við til dæmis hrunsglæpi nútímans,“ segir Páll og hlær. Ólýsanlega fallegt Einhverjar frægustu sviðsmyndir í íslensku bíói eru af Höfðaströnd. Í kvikmyndum Friðriks Þórs Friðriks- sonar bregður gamla bænum á Höfða oft fyrir og stundum Málmey og Þórðarhöfða, sem talinn er til eyjanna á Skagafirði. Kemur þar til að Höfðinn er úr fjarlægð að sjá sem eyja, en tengist fastalandinu með mjóum gröndum. Drangey Grettis Ásmundarsonar, sem er utan sjón- arsviðsins á Höfða, er svo þriðja eyjan á firðinum og er um margt táknmynd héraðsins. „Ég fyllist lotningu þegar ég horfi út til eyjanna. Þegar sólin sest að baki þeim er það ólýsanlega fallegt,“ segir Páll sem lýsir Málmeyjarferð sem upplifun. Setið var í búsæld- arlegri eyjunni um aldir og alveg fram til um 1950. Til eru margar sagnir um byggð í Málmey svo sem að þar mætti ekki hafa hesta og hjón ekki búa þar lengur en 19 ár. Ella átti bóndinn að missa konuna sína í tröllahendur, eins og greinir frá í Þjóðsögum Jóns Árnasonar, eða önnur ógæfa að steðja að heimili hans. Úr annarri vídd „Sögur og þjóðmenning mæta manni hvarvetna í Skagafirði. Í Þórðarhöfða sunnanverðum er fjöl- býli álfa og krambúð í klettunum. Karlar fyrri alda sem voru á leið frá faktornum í Hofsósi villtust stundum af leið í þokunni, hittu þá fyrir álfa- kaupmann sem í verslun sinni átti dýrindisvöru á góðu verði. Kaup- unum fylgdi jafnvel silkidúkur og annað fínirí sem hvergi annars stað- ar fékkst,“ segir Páll Sigurðsson og bætir við að síðustu. „Víða í Skaga- firði telur fólk sig einnig vita af huldufólki og álfum og að í högum séu stundum sauðfé úr annarri vídd. Svona sögur er gaman að skrifa – og raunar hafa árbókarskrifin mín síð- ustu árin verið ævintýri; frá upphafi til enda.“ Álfar og krambúð í klettum  Árbók Ferðafélags Íslands um Skagafjörð er komin út  Þriðja bók  Fróðleiksnáma eftir Pál Sigurðsson  Huldufólk og mórar við húshorn  Talandi helgidómur og þrjár eyjar á firðinum fagra Hofsós Þorpið hefur gengið í endurnýjun lífdaga, til dæmis með endur- reisn gamalla húsa. Vesturfarasetrið er mikið aðdráttarafl á staðnum. Höfðaströnd Gamli bærinn á Höfða. Þetta er þekkt sviðsmynd úr kvik- myndum Friðriks Þórs Friðrikssonar sem hingað á ættir sínar að rekja. Páll Sigurðsson Morgunblaðið/Sigurður Bogi Þórðarhöfði Er talinn til eyja en tengist fastalandinu með mjóum gröndum. „Sem strákur á Sauðárkróki kynnt- ist ég þeirri virðingu sem fólk bar fyrir Hólum sem skólastað og bisk- upssetri með mikla sögu. Hólasvein- ar sem þar námu, meðan þar var lærður skóli, kynntust ritlistinni og öðrum fræðum og gerðust að námi loknu gjarnan prestar á Norður- landi. Menningarleg áhrif frá staðn- um bárust því víða enda voru prest- arnir í veigamiklu hlutverki, hver í sinni sveit,“ segir Páll og bætir við að Hólar grípi sig alltaf mjög sterk- um tökum. „Skólahúsið, dómkirkjan, turninn, sem er minnismerki um Jón Arason biskup, og himinhá Hólabyrða í bak- sýn eru voldugt umhverfi. Og þegar inn í kirkjuna kemur talar helgi- dómurinn til mín. Í kirkjunni eru varðveittar einhverjar dýrmætustu menningarminjar á Íslandi, svo sem altarisbríkin sem Jón Arason útveg- aði, skírnarsárinn og róðulíkneski í fullri líkamsstæð sem hefur haft svo sterk áhrif á fólk að það beygir af,“ segir Skagfirðingurinn Páll Sigurðs- son að síðustu. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Hólar Kirkjuturn sem er minnisvarði, skóli og kirkja. Hólabyrða að baki. Áhrifin frá Hólastað  Dýrmætar minjar í dómkirkjunni

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.