Morgunblaðið - 12.05.2016, Qupperneq 40
40 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. MAÍ 2016
Verð á vasaúrum frá kr 18.900
Hjúkkuúr
frá 7.600
SVIÐSLJÓS
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Margir Skagfirðingar trúa sterkt að
til séu verur af öðrum heimum. Alls-
konar mórar eru við húshornin og í
klettum búa álfar og aðrar huldar
verur; velviljaðar og hjálpsamar. Að
þetta sé veruleiki vil ég ekki útiloka,
því um ævina hef
ég talað við margt
gott og grandvart
fólk sem hefur
séð í aðra veröld
og efast ekki. Við
skriftir síðustu
árin fannst mér
gaman að grúska
í þessum sögum
og skrifa þær, á
stundum hélt það
mér hreinlega
uppi,“ segir Páll Sigurðsson rithöf-
undur og fyrrverandi lagaprófessor
„Yfrum“ Héraðsvötnin
Út er komin Árbók Ferðafélags
Íslands 2016 sem ber titilinn Skaga-
fjörður austan vatna – Frá Hjaltadal
að Úlfsdölum. Þetta er þriðja árbók-
in um Skagafjörð sem Páll skrifar;
hin fyrsta kom út 2012 þar sem sagði
frá landi og lífi vestan Héraðsvatna.
Ritið 2014 fjallaði um svæðið frá
Hofsjökli og út í Viðvíkursveit að
Hegranesi meðtöldu. Í bókinni nú
eru svo þræddar slóðir frá Kolkuósi
og Hjaltadal og norður í Fljót, það er
norður fyrir Almenninga – þar sem
Fjallabyggð með Siglufirði er næsti
bær við. Alls er bókin um 250 blað-
síður, fróðleiksnáma með fjölda
mynda og korta.
„Upphaflega áttu Skagafjarðar-
bækurnar að verða tvær. Önnur
skyldi vera um héraðið vestan Hér-
aðsvatna en svo átti að fara yfrum
eins og vestanvatnamenn segja um
austanverðan Skagafjörð. Undir var
svæðið frá upptökum áa inni á há-
lendinu og út í Fljót. Fljótlega kom
þó í ljós að frá svo mörgu væri að
segja að ein bók dygði ekki – og þeg-
ar kom að uppskiptum var ágætt að
miða við Kolkuós, Viðvíkursveit og
Hjaltadal,“ segir Páll.
Út að austan
Að fara heim til Hóla er málvenja í
Skagafirði sem er áreiðanlega mörg
hundruð ára gömul. Það er raunar
samkvæmt öðru í Skagafirði, margt í
mannlífi þar byggist á menningu
fyrri alda og er daglegur veruleiki á
því herrans ári 2016.
Þegar Viðvíkursveit og Hjaltadal
sleppir tekur við það svæði sem
Skagfirðingar kalla „út að austan“.
Þetta eru Óslandshlíð, Höfðaströnd,
Sléttuhlíð og Fljót og svo dalirnir
sem ganga inn til fjalla Tröllaskag-
ans. Kalt sjávarloftið liggur gjarnan í
loftinu í þessum sveitum, sem hafa
mjög mátt undan láta. Búskapur hef-
ur látið talsvert undan, en eitt og
annað þó komið í staðinn.
Vesturfarasetrið á Hofsósi og
starfsemi þess, með sínum glæsilegu
byggingum, vekur athygli. Ein-
stakur þykir arkitektúr sundlaugar-
innar í þorpinu, sem athafnakon-
urnar Lilja Pálmadóttir á Hofi og
Steinunn Jónsdóttir í Bæ, gáfu. Sú
síðarnefnda starfrækir listasetur að
Bæ á Höfðaströnd. Þá er starfrækt
ferðaþjónusta í Lónkoti í Sléttuhlíð,
þar sem nafn Sölva Helgasonar er í
hávegum haft. Hinn alræmdi flakk-
ari 19. aldarinnar – Sólon Íslandus –
var af þessum slóðum og er fyrir
löngu orðinn „gull og gersemi“ eins
og hann lýsti sjálfum sér í vísu.
„Sölvi fór á milli bæja og sníkti sér
til matar. Þetta var hvort tveggja í
senn, snillingur til munns og handa
og hins vegar loddari sem falsaði
reisupassa og var reyndar fyrir þær
og aðrar sakir dæmdur til Brimar-
hólmsvistar. Knyttir hans eru þó
ósköp smávægilegir og bara fyndnir
þegar þeir eru bornir saman við til
dæmis hrunsglæpi nútímans,“ segir
Páll og hlær.
Ólýsanlega fallegt
Einhverjar frægustu sviðsmyndir
í íslensku bíói eru af Höfðaströnd. Í
kvikmyndum Friðriks Þórs Friðriks-
sonar bregður gamla bænum á
Höfða oft fyrir og stundum Málmey
og Þórðarhöfða, sem talinn er til
eyjanna á Skagafirði. Kemur þar til
að Höfðinn er úr fjarlægð að sjá sem
eyja, en tengist fastalandinu með
mjóum gröndum. Drangey Grettis
Ásmundarsonar, sem er utan sjón-
arsviðsins á Höfða, er svo þriðja
eyjan á firðinum og er um margt
táknmynd héraðsins.
„Ég fyllist lotningu þegar ég horfi
út til eyjanna. Þegar sólin sest að
baki þeim er það ólýsanlega fallegt,“
segir Páll sem lýsir Málmeyjarferð
sem upplifun. Setið var í búsæld-
arlegri eyjunni um aldir og alveg
fram til um 1950. Til eru margar
sagnir um byggð í Málmey svo sem
að þar mætti ekki hafa hesta og hjón
ekki búa þar lengur en 19 ár. Ella
átti bóndinn að missa konuna sína í
tröllahendur, eins og greinir frá í
Þjóðsögum Jóns Árnasonar, eða
önnur ógæfa að steðja að heimili
hans.
Úr annarri vídd
„Sögur og þjóðmenning mæta
manni hvarvetna í Skagafirði. Í
Þórðarhöfða sunnanverðum er fjöl-
býli álfa og krambúð í klettunum.
Karlar fyrri alda sem voru á leið frá
faktornum í Hofsósi villtust stundum
af leið í þokunni, hittu þá fyrir álfa-
kaupmann sem í verslun sinni átti
dýrindisvöru á góðu verði. Kaup-
unum fylgdi jafnvel silkidúkur og
annað fínirí sem hvergi annars stað-
ar fékkst,“ segir Páll Sigurðsson og
bætir við að síðustu. „Víða í Skaga-
firði telur fólk sig einnig vita af
huldufólki og álfum og að í högum
séu stundum sauðfé úr annarri vídd.
Svona sögur er gaman að skrifa – og
raunar hafa árbókarskrifin mín síð-
ustu árin verið ævintýri; frá upphafi
til enda.“
Álfar og krambúð í klettum
Árbók Ferðafélags Íslands um Skagafjörð er komin út Þriðja bók Fróðleiksnáma eftir Pál
Sigurðsson Huldufólk og mórar við húshorn Talandi helgidómur og þrjár eyjar á firðinum fagra
Hofsós Þorpið hefur gengið í endurnýjun lífdaga, til dæmis með endur-
reisn gamalla húsa. Vesturfarasetrið er mikið aðdráttarafl á staðnum.
Höfðaströnd Gamli bærinn á Höfða. Þetta er þekkt sviðsmynd úr kvik-
myndum Friðriks Þórs Friðrikssonar sem hingað á ættir sínar að rekja.
Páll
Sigurðsson
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Þórðarhöfði Er talinn til eyja en tengist fastalandinu með mjóum gröndum.
„Sem strákur á Sauðárkróki kynnt-
ist ég þeirri virðingu sem fólk bar
fyrir Hólum sem skólastað og bisk-
upssetri með mikla sögu. Hólasvein-
ar sem þar námu, meðan þar var
lærður skóli, kynntust ritlistinni og
öðrum fræðum og gerðust að námi
loknu gjarnan prestar á Norður-
landi. Menningarleg áhrif frá staðn-
um bárust því víða enda voru prest-
arnir í veigamiklu hlutverki, hver í
sinni sveit,“ segir Páll og bætir við
að Hólar grípi sig alltaf mjög sterk-
um tökum.
„Skólahúsið, dómkirkjan, turninn,
sem er minnismerki um Jón Arason
biskup, og himinhá Hólabyrða í bak-
sýn eru voldugt umhverfi. Og þegar
inn í kirkjuna kemur talar helgi-
dómurinn til mín. Í kirkjunni eru
varðveittar einhverjar dýrmætustu
menningarminjar á Íslandi, svo sem
altarisbríkin sem Jón Arason útveg-
aði, skírnarsárinn og róðulíkneski í
fullri líkamsstæð sem hefur haft svo
sterk áhrif á fólk að það beygir af,“
segir Skagfirðingurinn Páll Sigurðs-
son að síðustu.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Hólar Kirkjuturn sem er minnisvarði, skóli og kirkja. Hólabyrða að baki.
Áhrifin frá Hólastað
Dýrmætar minjar í dómkirkjunni