Morgunblaðið - 12.05.2016, Síða 42

Morgunblaðið - 12.05.2016, Síða 42
42 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. MAÍ 2016 urt skeið skrifað og birt fréttir sem skrifaðar eru á þennan sjálfvirka hátt og verið þar í fararbroddi. Þar er notað forritið Wordsmith sem er aðgengilegt öllum á netinu. Á vef- síðu Wordsmith segir að eftir að AP tók forritið í þjónustu sína hafi fjöldi frétta um ársfjórðungslega afkomu fyrirtækja margfaldast. Áður hafi um 300 slíkar fréttir ver- ið skrifaðar á hverjum ársfjórð- ungi, nú séu þær um 4.300 og með þessari tækni sé t.d. hægt að skrifa 1.000 útgáfur af sömu fréttinni, sem birtar séu á mismunandi vett- vangi og ætlað er að höfða til mis- munandi hópa í stað þess að skrifa eina frétt sem eigi að hafa skír- skotun til allra. „Nú er komið tækið sem vinnur þau verk sem blaða- mönnum leiðist,“ segir í umfjöll- uninni. Þar er haft eftir talsmanni AP að færri villur séu núna gerðar í þessum fréttum en áður var. Eng- um hafi verið sagt upp vegna til- komu forritsins, því nú gefist blaða- mönnum tækifæri til að vinna ítarlegri umfjallanir. Ekki gert í hagræðingarskyni Fyrir tveimur vikum tilkynnti John Micklethwait, aðalritstjóri Bloomberg-fréttaveitunnar, að þar hefði verið sett á stofn teymi tíu blaðamanna sem ættu að kanna hvort og hvernig sjálfvirk blaða- mennska myndi henta við frétta- skrif Bloomberg, sem fyrst og fremst eru viðskiptafréttir. Mick- lethwait lagði áherslu á að þetta væri ekki gert í hagræðingarskyni. „Þegar vel tekst til, býður sjálfvirk blaðamennska upp á möguleika til að gera starfið okkar miklu áhuga- verðara,“ sagði hann af þessu til- efni. „Þeim tíma sem við verjum til að leita staðreynda getum við núna varið til að útskýra þær. En nota- gildið er takmarkað nema við stjórnvölinn sitji blaðamaður með gagnrýnið fréttamat.“ Ógn eða tímanna tákn?  Svokölluð róbótablaðamennska verður sífellt útbreiddari  Ein af mörgum breytingum í fjölmiðlaheiminum  Notagildið sagt takmarkað án blaðamanns AFP Vélmenni Munu þessi róbóti og hans líkar verða í framvarðasveit fréttamennsku? Bent hefur verið á að tæknin sem býður upp á sjálfvirk fréttaskrif hafi takmarkað notagildi ef ekki komi til blaðamaður með gagnrýnið fréttamat. SVIÐSLJÓS Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Um nokkurt skeið hafa ýmsir stórir erlendir fjölmiðlar, auglýsinga- stofur og fréttaveitur notast við textagerðarforrit við fréttaskrif. Tækninni á þessu sviði fleygir sí- fellt fram, áður voru vangaveltur um að þessi tækni myndi ýta blaða- mönnum úr starfi nokkuð áberandi en í seinni tíð hafa margir bent á að hún sé kærkomin viðbót í sífellt breytilegu starfsumhverfi blaðamannsins. Á vef WAN- IFRA, sem eru alþjóðasamtök blaða- og frétta- miðlaútgefenda, er fjallað um sjálfvirka blaða- mennsku, sem á ensku kallast automated journ- alism. Stundum er líka talað um ró- bótablaðamennsku. Þar eru ýmis dæmi nefnd til sögunnar, m.a. vef- síðan PollyVote.com. Þar eru nið- urstöður skoðanakannana og ýmsar aðrar tölulegar upplýsingar færðar inn í kerfið PollyBot sem með full- tingi reiknirita eða algóritma breytir þessum upplýsingum í fréttatexta. Á vefsíðu PollyVote segir að þetta henti við skrif frétta þar sem töluleg gögn séu fyrir hendi, eins og t.d. niðurstöður skoðanakannana og afkomutölur fyrirtækja. Þetta þýðir þó ekki að manns- höndin komi hvergi nærri, því allt sem algóritminn gerir er vegna þess að einhver hefur forritað hann til að gera það. Þá þarf að viðhalda og uppfæra hann. Gætu farið dýpra í hlutina „Þessi tækni er ein af mörgum breytingum sem hafa orðið í fjöl- miðlaheiminum undanfarin ár,“ segir Valgerður Anna Jóhanns- dóttir, aðjunkt og umsjónarmaður MA-náms í blaða- og frétta- mennsku í Háskóla Íslands. „Það er ekki orðið þannig að þetta geti leyst af hendi öll verkefni blaða- manna; t.d. er ekki hægt að taka viðtöl með þessari tækni eða út- skýra af hverju eitthvað gerðist. Það hefur verið nokkuð í um- ræðunni að þetta gæti orðið til þess að auka þann tíma sem blaðamenn hefðu til að fara dýpra í hlutina.“ Fréttaveitan AP hefur um nokk- Valgerður Anna Jóhannsdóttir Aðalfundur Samfoks, samtaka for- eldra grunnskólabarna í Reykjavík, var haldinn í Norðlingaskóla í vik- unni. Á undan fundinum leiddi Sif Víg- þórsdóttir skólastjóri fundargesti um skólann og sagði frá starfinu en Norðlingaskóli hefur hlotið mikið lof fyrir nálgun sína við nemendur með fjölþættan vanda, segir í frétt frá samtökunum. Í lok aðalfundarins var Helgu Margréti Guðmundsdóttur, tóm- stunda- og félagsmálafræðingi, veitt Fjöregg Samfoks fyrir ómetanlegt framlag til foreldrasamstarfs. Á að baki langan feril „Helga Margrét hefur starfað lengi að málefnum skólaforeldra og nemenda, fyrst í Reykjanesbæ, síð- an hjá Heimili og skóla og nú síðast í starfi sínu hjá Þjónustumiðstöð Laugardals og Háaleitis. Virkni borgaranna og lýðræði í skólastarfi hefur verið henni sérstaklega hug- leikið og hefur hún af ástríðu barist fyrir réttindum nemenda og foreldra um leið og hún hefur hvatt foreldra til dáða og kallað þá til ábyrgðar. Helga Margrét er hafsjór af fróð- leik, hún kom að gerð grunnskóla- laganna árið 2008 og er líklega sá að- ili sem mesta og besta yfirsýn hefur um þróun foreldrasamstarfs og að- komu foreldra að skólastarfi hér á landi,“ segir í fréttinni. Samfok hafi notið starfskrafta og leiðsagnar Helgu Margrétar í mörg- um stórum verkefnum á undan- förnum árum og með verðlaununum vilji samtökin þakka henni fyrir frá- bært samstarf, innblástur og hvatn- ingu. Birgitta Bára Hassenstein, for- maður Samfoks, afhenti Helgu Mar- gréti Guðmundsdóttir Fjöreggið. Ljósmynd/Samfok Fékk Fjöregg Samfoks  Ómetanlegt framlag til for- eldrasamstarfs Heiður Birgitta Bára Hassenstein (t.v.) og Helga M. Guðmundsdóttir. Fjórir karlmenn á þrítugsaldri gáfu sig fram við áhöfn Norrænu við komu skipsins til Seyðisfjarðar í fyrradag. Mennirnir, sem eru frá Marokkó og Túnis, voru laumufar- þegar með skipinu og sögðust vera í atvinnuleit. Samkvæmt upplýs- ingum frá lögreglu á Austurlandi eru mennirnir rúmlega tvítugir. Nokkrum mínútum eftir að skip- ið lagði að bryggju kom í ljós að þeir væru um borð. Þar sem menn- irnir voru ekki með viðeigandi skil- ríki fengu þeir ekki að fara frá borði. Einn mannanna tók fljótlega ákvörðun um að sækja um hæli hér. Hinir mennirnir voru áfram í skip- inu en struku frá borði þegar leið á daginn, en fundust skömmu síðar. Tveir mannanna tóku þá ákvörð- un um að sækja um hæli hér á landi en sá þriðji fór aftur með skipinu til Danmerkur. Laumufarþegar með Norrænu sækja um hæli Frábær húðhreinsilína frá ENJO Reykjavíkurvegi 64, Hfj, s. 555 1515, enjo.is Komið í verslun okkar og sjáið úrvalið Opið kl. 11-18 alla virka daga VÍKURVAGNAR EHF. Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is Einnig mikið úrval varahluta í Ifor Williams og aðrar gerðir af kerrum, ásamt úrvals viðgerðarþjónustu. Kerrur frá Ifor Williams í öllum stærðum og útfærslum
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.