Orð og tunga - 01.06.2010, Page 28
18
Orð og tunga
saur í ritmálsskrá Orðabókar Háskólans bendir þó til þess að merking-
in 'skítur' sé langoftast bundin orðinu saur í eintölu. Fleirtalan saurar
er á hinn bóginn mun fremur höfð um blautan jarðveg, mýri eða slíkt.
Örnefnanefnd barst fyrir fáeinum árum beiðni um breytingu á
nafni eins hinna 6 býla á íslandi sem heita Saurar. Umsækjendur sögðu
að nafnið Saurar félli ekki lengur að málvenjum þar sem eldri skilning-
ur á nafninu væri horfinn en í hans stað væri alls ráðandi skilningur-
inn 'skítur'. Þeir töldu nafnið Saurar fæla fólk frá því að koma og velja
sér lóð á sumarhúsalóðasvæði í landinu og að heimilisfangið Saurar
væri ekki gott til að auglýsa þá starfsemi sem þar væri stunduð.
Við úrlausn málsins vó örnefnanefnd sjónarmið eigenda um ama
af nafninu á móti þeim sjónarmiðum um varðveislu íslensks menn-
ingararfs og örnefnavernd sem nefndinni ber að vinna eftir, sem og
öðrum takmarkandi ákvæðum um nafnbreytingar sem er að finna í
bæjanafnalögunum. Niðurstaða örnefnanefndar var sú að sjónarmið
um ama af nafninu væru léttvægari en þau sem lúta að örnefnavernd
og sú takmörkun á nafnbreytingum sem kveðið er á um í bæjanafna-
lögunum. Beiðninni var því hafnað.15 í rökstuðningi nefndarinnar, í
bréfi dags. 12. janúar 2006, sagði m.a.:
Ljóst þykir að mjög ríkar ástæður þurfi til að örnefnanefnd
sé heimilt að leyfa nafnbreytingu. í bæjanafnalögunum
segir að það megi ekki gera nema alveg sérstaklega standi
á, s.s. að býlið eigi samnefnt við annað lögbýli. Ákvæði
reglugerðarinnar um þetta, sem gefa færi á slíku sé eldra
nafn mjög óviðeigandi eða óheppilega myndað eða þannig
að það geti skaðað þá starfsemi sem fram fer á býlinu, hafa
ekki sömu þýðingu og texti laganna sjálfra. Hafa ber og í
huga að í reglugerðinni segir að nafnbreyting komi til álita
sé eldra nafn „mjög" óviðeigandi. Þá ber að líta til þeirrar
skyldu örnefnanefndar að miða í störfum sínum að varð-
veislu íslensks menningararfs og örnefnavernd. Við það
síðastnefnda má bæta að samþykktir sérfræðinganefndar
Sameinuðu þjóðanna um örnefni (United Nations Group
of Experts on Geographical Names) hníga nú orðið mjög
15Ömefnanefnd fylgdi með þessari niðurstöðu að vissu leyti fordæmi því sem sett
var árið 1936 þegar nefndin hafnaði beiðni um að breyta bæjamafninu Saurar í Hlíð-
arendi (Þórhallur Vilmundarson 1980:29).