Orð og tunga - 01.06.2010, Blaðsíða 83
Torfi Hjartarson: Kennarinn og kennileitin
73
starfs má svo segja að hugsmíðahyggjan kalli á opin vinnubrögð og
sveigjanleika í námi. Tölvan sem miðill ætti að ýta undir samþættingu
námsgreina, þemavinnu og opin verkefni. Hafa ber í huga að tengsl í
tíma og rúmi breytast fyrir tilstuðlan tækninnar og hefðbundnu hlut-
verki eða áhrifasviði kennara er ögrað.
5 Hvað er átt við með námsefni?
Þegar rætt er um útgefið námsefni grunnskóla þarf að gera nokkurn
greinarmun á efni eftir notkun og áherslum. Sumt efni má kalla
kjarnaefni og liggur í miðjum straumnum þar sem flestir nemend-
ur og kennarar koma við, annað efni er fremur jaðarefni sem stöku
kennarar grípa til þegar svo ber undir. Sumu efni fylgir ítarefni af
ýmsu tagi og vinnuefni er útbreitt. Þá má nefna verkefnahugmynd-
ir eða kennsluleiðbeiningar og hvers konar handbækur eða uppfletti-
efni. Kvikmyndir, hljóðbækur, teikningar og ljósmyndir eiga sér hefð
í skólastarfi og á seinni árum hefur stafrænt efni komið til sögunnar.
Hver sem vill efla umfjöllun um örnefni í grunnskólum með útgáfu á
námsefni stendur því frammi fyrir býsna flóknu vali um leiðir. Náms-
bækur, landakort, landabréfabækur og kortavefsjár koma fljótt upp í
hugann en margt annað kemur til greina og getur hentað.
5.1 Dæmi um prentgögn
Fyrir um tveimur áratugum réðst ungur höfundur í það verkefni að
skrifa tvær námsbækur fyrir miðstig grunnskóla um landafræði Is-
lands. Fyrri bókin hét Land og líf(sjá Torfa Hjartarson 1988) og þar var
fjallað um lykilþætti í náttúru landsins og sambúð lands og þjóðar;
rætt um eldvirkni og landmótun, náttúrufar, þróun byggðar og um-
gengni við náttúru. Sú síðari hét Landshorna á milli (sjá Torfa Hjartar-
son 1990) og þar var áhersla á að lýsa landshlutum og kynna helstu
kennileiti, rekja staðfræði í stuttu máli um leið og reynt var að gefa
góða hugmynd um byggð og atvinnuvegi. Höfundur stóð frammi fyr-
ir því vandasama hlutverki að gæða staglkenndan fróðleik lífi og vekja
áhuga tíu til tólf ára barna á fjarlægum kennileitum. Til þess var beitt
ýmsum ráðum. Margar myndir voru í báðum bókum og mikil vinna
lögð í að velja saman myndefni sem myndaði sterka sjónræna heild og
fól í sér líf, sýndi farartæki á leið um landið, börn að leik, veður, dýralíf