Orð og tunga - 01.06.2010, Blaðsíða 56
46
Orð og tunga
fer fram á staðnum.8 Bakarabrekkan er eldra nafn á Bankastræti, nú
er þar hvorki banki né bakarí. Rúgbrauðsgerðin er í Borgartúni 6. Þar
var Hlutafélagið Rúgbrauðsgerðin til húsa og bakaði brauð frá 1948
og fram um 1970. Síðan voru þar veitinga- og fundasalir á vegum
hins opinbera og héldu nafninu á lofti. Enn er nafnið við lýði, nú á
veisluþjónustu sem þar er rekin. Gamla Bíó hét upphaflega frá 1906
Reykjavíkur Biografteater en snemma hefur það gengið undir nafninu
Bíó. Eftir að Nýja Bíó er sett á fót 1912 fer „gamla Bíó" að ganga undir
nafninu „Gamla Bíó", fyrst óformlega en síðan er það heiti gert að op-
inberu nafni kvikmyndahússins (í Fjalakettinum við Aðalstræti). Það
nafn loddi síðan lengi við nýja húsið eftir að bíóið fluttist upp í Ing-
ólfsstræti 1926 og lengi eftir að bíóstarfsemi var hætt. Eftir að íslenska
óperan tók þar til starfa hefur nafnið íslenska óperan nær útrýmt hinu
gamla heiti. Bryggjulnísið (Vesturgata 2) stóð fast við sjóinn í eina tíð og
þar voru rætur bryggjunnar sem húsið er kennt við. Húsið er annars
núllpunktur Reykjavíkur í vissum skilningi. Frá Bryggjuhúsinu séð,
þar sem Aðalstræti byrjar, miðast öll húsnúmer í borginni: jafnar tölur
eru á hægri hönd en ójafnar á vinstri. jesúprent (Bergstaðastræti 27),
þar var Prentsmiðja Jóns Helgasonar og mikið prentað af guðsorða-
bæklingum. Hér með á líklega heima fyrirbæri eins og Ríkið (Áfeng-
isútsala ríkisins) sem er nú mjög á undanhaldi eftir að farið var að
kalla þessar verslanir ÁTVR og síðan Vínbúðir. Útibú Ríkisins á Lindar-
götu var kallað Lindm eftir götunni en hún hét aftur eftir Móakotslind,
vatnsbóli sem þar var. Nafnið vísaði þannig bæði til staðsetningar og
söluvöru. Bæjarins beztu er að öllum líkindum upphaflega partur af
auglýsingaskilti sem staðið hefur utan á pylsusjoppunni, „Bæjarins
beztu pylsur", en þróast síðan yfir í eiginnafn á henni.
4. Uppnefni. Nöfn í þessum flokki geta ýmist verið saklaus gælu-
nöfn, rætin illnefni eða spaugilegur útúrsnúningur. Bráðræði og Ráð-
leysa voru nöfn á húsum í útjaðri Reykjavíkur. Það fyrrnefnda stóð
þar sem nú er Grandavegur 37. Annað nafn er ekki varðveitt á húsinu
og er e.t.v. til vitnis um að það hafi aldrei haft annað nafn, óform-
lega nafnið hefur strax orðið almennt. Ráðleysa stóð þar sem nú er
Laugavegur 40 en var á sínum tíma úr alfaraleið og þótti val á staðn-
um sýna fyrirhyggjuleysi. Á þessum tíma var Reykjavík sögð byrja í
Bráðræði en enda í Ráðleysu! Svínastían var veitingastaður á Hótel ís-
8Þó er svolítið óvíst hvernig flokka á Bryggjuhúsið, nær væri að tala um stnðsetn-
ingii.