Orð og tunga - 01.06.2010, Page 44
34
Orð og tunga
5.2 Helstu verkefni starfshópsins til þessa
Fyrsta verkefni starfshópsins var að nefna götur í Norðlingaholti, sem
ég kem að hér á eftir. Næst var Geldingarnesi vísað til nefndarinn-
ar, sem lagði til að götur í íbúðarhverfi svæðisins enduðu á -fjara en
hefðu skelja- og náttúruheiti að forlið, og að sá hluti svæðisins sem
ætlaður var undir fyrirtæki fengi götunöfn sem hefðu viðliðinn -blá.
Nefndin lagði til að á Gufunesi yrði notaður viðliðurinn -bás á nyrðri
hluta fyrirhugaðs hverfis og tæki þar mið af örnefninu Básar en í for-
liði yrðu valin sækonungaheiti úr dróttkvæðum. Viðliðurinn -bót var
valinn á syðri hlutann. Hann átti að vísa til landuppfyllinga á staðn-
um, en í forliði voru valin konungaheiti úr dróttkvæðum. Á iðnað-
arsvæði norðan Suðurlandsvegar austan við skógræktina var lagt til
nafnið Merkurhverfi, með -mörk að viðlið í götuheitum en dvergaheiti
úr Völuspá að forlið. Viðliðnum var síðar breytt í -heiði vegna nálægð-
ar við Hólmsheiðina. Síðan bættist við hverfið í undirhlíðum Úlfars-
fells þar sem lagðir voru til viðliðirnir -tjörn, -brunnur, -á og -vatn.
Fyrsti hluti hverfisins hefur verið skipulagður og nöfnum raðað á göt-
ur og torg sem hafa ásynjuheiti að forlið en -brunnur að viðlið. Þar
fær Frigg loksins reykvíska götu nefnda eftir sér. Á síðustu misserum
hefur nefndin valið nöfn á nokkrar götur í eldri hluta borgarinnar og
á Kjalarnesi.
5.3 Götur á Norðlingaholti
Eitt af þeim hverfum sem nefndin hefur fjallað um er nánast fullbyggt
en það er holtið milli Rauðavatns og Elliðavatns. Árið 2002 afgreiddi
starfshópurinn frá sér þá tillögu að hverfið fengi nafnið Norðlingaliolt.
Þessu fylgdi eftirfarandi skýring:
Uppruni heitisins er óviss og eru minnst tvær kenningar á
lofti hvernig á nafngiftinni standi. í Þingnesi var þingstað-
ur og er talið að Kjalarnesþing hið forna hafi þar verið háð.
Það þing mun hafa verið sótt af Borgfirðingum sem komu
þá að norðan og hafa þess vegna verið kallaðir Norðling-
ar. Talið er að þeir hafi átt búðir í Norðlingaholti, rétt utan
þingstaðarins þar sem þeir voru utan þinghár. Önnur til-
gáta er að holtið taki nafngift af ferðum Norðlendinga suð-
ur með sjó á vertíð þeirra til skreiðarkaupa. Hvort sem er