Orð og tunga - 01.06.2010, Page 150

Orð og tunga - 01.06.2010, Page 150
140 Orð og tunga haldnir. Alls eru greinarnar 19 og ritstjórarnir fylgja þeim úr hlaði með ítarlegum inngangi. Flestir höfundanna eru norskir og fjalla fyrst og fremst um norskar málaðstæður. Þær einkennast ekki síst af því að þar eru tveir ritmálsstaðlar, bókmál og nýnorska, auk þess sem gild- andi reglur um málnotkun á opinberum vettvangi veita talsvert val- frelsi í rithætti og vali orðmynda innan hvors afbrigðis. Aðstæður í Noregi eru því um margt óvenjulegar. í greinunum er drepið á ýmis hagnýt og fræðileg úrlausnarefni sem hafa víðari skírskotun. Meðal höfunda eru Gunnstein Akselberg sem fjallar um afstöðu málnotenda til stöðlunar í talmáli, Endre Brunstad og Jan Olav Fretland sem báðir fjalla um málrækt í nýnorsku samhengi, Svein Lie sem ræðir um er- lend nöfn í norsku, Helge Sandoy sem fjallar um staðalmál (standard- sprák) og Ragnhild Tonnessen sem spyr hvernig megi bregðast við ókostunum sem fylgja valfrelsinu. í safninu eru einnig greinar eftir erlenda höfunda sem tóku þátt í ráðstefnunni. Sérstakir gestafyrirles- arar voru þau Kerstin Guthert frá Þýskalandi, Olle Josephson frá Sví- þjóð og Jorn Lund frá Danmörku sem öll eiga grein í ritinu þar sem þau fjalla um málstöðlun og málrækt í sínu landi. Auk þeirra skrifar Ari Páll Kristinsson um stöðlun beygingarmynda í íslensku, Charlotta af Hállström-Reijonen um finnlandssænska málrækt og Wim Vanden- bussche um málstýringu og málstöðlun í hinum flæmska hluta Belgíu á 19. öld. Marie Maegaard, Frans Gregersen, Pia Quist & J. Normann Jorgensen (ritstj.). Language attitudes, standardization and la^iguage change. Perspectives on themes raised by Tore Kristiansen on the occasion of his 60th birthday. Oslo: Novus forlag. 2009. ISBN 938-82-7099-527-1. 316 bls. Þetta greinasafn er gefið út í tilefni af sextugsafmæli norska málfræð- ingsins Tore Kristiansen sem hefur búið alla starfsævi sína í Dan- mörku og starfar við Norrænu rannsóknarstofnunina (Nordisk forsk- ningsinstitut) við Kaupmannahafnarháskóla. Viðfangsefni grein- anna í ritinu taka mið af áhuga- og rannsóknasviði hans. Tore Kristi- ansen hefur einkum fengist við mállýskur og félagsmálfræði og er þekktur á Norðurlöndum og víðar fyrir rannsóknir sínar, ekki síst á sambandi mállýskna og staðalmáls og á viðhorfum málnotenda og málsamfélags og áhrifum þeirra á þróun tungumálsins. Tveir ritstjór- anna, þau Frans Gregersen og Pia Quist, skrifa ítarlegan inngang að
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156

x

Orð og tunga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Orð og tunga
https://timarit.is/publication/1210

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.