Morgunblaðið - 18.08.2016, Page 19

Morgunblaðið - 18.08.2016, Page 19
FRÉTTIR 19Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. ÁGÚST 2016 VALID BESTA SKIPAFELAGIO i EVROPU ATTA AR i ROO , , , , • 6;",,,, , . . . ,111 - 111 • II ,, II I II II ti HONDURAS OG MEXiK6 12.- 24. okt. Vera fra kr. 335.000 NANAR A WWW.NORR/ENA.IS PASKAR i KARiBAHAFINU 7.-18. aprn Vera fra kr. 325.000 NANAR A WWW.NORR/ENA.IS EYSTRASALTOG RUSSLAND 25. mai -3. juni Vera fra kr. 335.000 NANAR A WWW.NORR/ENA.IS GRIKKLAND OG iTALiA 17.-31. agust Vera fra kr. 410.000 NANAR A WWW.NORRJENA.IS HAWAII 24. okt.-8. n6v. Vera fra kr. 570.000 PASKAR i LANDINU HELGA 10.-23. april Vera fra kr. 325.000 NANAR A WWW.NORR/ENA.IS FRAHAMBORG 26. mai -4. juni Vera fra kr. 300.000 NANAR A WWW.NORRJENA.IS HAUST i MIDJARDARHAFI 8.-18. sept. Vera fra kr. 310.000 NANAR A WWW.NORR/ENA.IS JOL i KARiBAHAFI 20. des. - 2. jan. 2018 Vera fra kr. 400.000 NANAR'A WWW.NORR/ENA.IS SÉRTILBOÐ FYRIR ALLA SEM BÓKA FYRIR 31. ÁGÚST Reynir Sveinsson Sandgerði Sú nýbreytni hefur nú verið tekin upp í Sandgerðisbæ að grunn- skólanemendur fá öll námsgögn í skólanum. Nemendur þurfa aðeins að eiga skólatösku, íþrótta- og sundföt í íþróttatösku (léttum bak- poka) ásamt nestisboxi. Að sögn Sigrúnar Árnadóttur, bæjastjóra Sandgerðisbæjar, er áætlaður kostnaður um tvær milljónir við þetta verkefni. Formlegt skólastarf nemenda í Grunnskólanum í Sandgerði hefst á morgun, 19. ágúst. Nemendur mæta til skólasetningar á sal skól- ans kl. 10. Grunnskólinn í Sandgerði er vel búinn tækjum og húsnæði glæsi- legt eftir gagngerar lagfæringar og stækkun skólans. Á undan- förnum árum hefur nemendum fækkað, en á þessu skólaári hefur þeim fjölgað um 30 en íbúum bæj- arins hefur fjölgað og er farið að vanta húsnæði. Nemendur í Sandgerði fá öll námsgögn Morgunblaðið/Reynir Skólahúsið Grunnskólinn í Sandgerði hefur verið endurbættur og stækkaður. Nemendur fá nú öll námsgögn. Íslendingar eru í fjórða sæta á lista yfir þjóðir sem verja hæstu hlut- falli af opinberu fé til barnahjálp- ar Sameinuðu þjóðanna (UNI- CEF) miðað við höfðatölu. Í Heimsljósi, vef- tímariti utan- ríkisráðuneytisins um þróunarmál, kemur fram að stuðningur Íslend- inga við verkefni í Mósambík vegi þar þyngst. Norðmenn, Svíar og Lúxemborg- arar skipa þrjú efstu sæti listans sem birtur er í skýrslu UNICEF. Verkefnið sem íslensk stjórnvöld hafa stutt í Mósambík felur í sér um- bætur í vatns- og salernismálum í sveitum og skólum Sambesíuhéraðs. Auk verkefnisins í Mósambík veita íslensk stjórnvöld UNICEF kjarnaframlög auk eyrnamerktra framlaga til starfsemi UNICEF í Palestínu. Einnig eru veitt framlög til samstarfsverkefnis UNICEF og Mannfjöldastofnunar SÞ (UN-FPA) sem hefur að markmiði að afnema limlestingar á kynfærum kvenna og stúlkna. Þá fjármagnaði Ísland stöðu ungs sérfræðings á skrifstofu UNICEF í Malaví um þriggja ára skeið þar sem sérfræðingurinn vann að verkefnum á sviði menntamála, að því er segir í Heimsljósi. Til viðbótar reglubundnum fram- lögum eru reglulega veitt framlög til neyðarverkefna á vegum UNI- CEF auk þess sem íslenskir sérfræð- ingar eru sendir til starfa fyrir stofnunina á vettvangi. Íslendingar með ein mestu fjárfram- lögin til UNICEF Skóli Með skóla- gögn frá Unicef. Golfklúbburinn Geysir í Haukadal og eigendur Haukadalsvallar fagna saman tíu ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni af því færði klúbb- urinn eigendunum veglega kopar- bjöllu að gjöf, sem komið hefur ver- ið fyrir handan blindhæðar á 9. braut svo kylfingar geti gefið þeim sem á eftir koma merki um að óhætt sé að slá. Slík merki verða æ nauðsynlegri þegar ásóknin eykst, en erlendum kylfingum hefur fjölgað mikið milli ára enda er völlurinn rómaður fyrir mikla náttúrufegurð. Á myndinni eru Pálmi Hlöðvers- son, til hægri, formaður Golf- klúbbsins Geysis, við bjölluna ásamt Einari Tryggvasyni sem á og rekur Haukadalsvöll ásamt eiginkonu sinni, Ágústu Þórisdóttur. sisi@mbl.is Ný bjalla sett upp á Haukadalsvelli

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.