Morgunblaðið - 18.08.2016, Page 40
40 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. ÁGÚST 2016
bestalambid.isBeztu uppskriftirnar okkar
Enn einn dagur
í Paradís
Bez
t á allt
SVIÐSLJÓS
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Það hefur verið líf og fjör í Akranes-
höfn í sumar og höfnin full af smábát-
um og skútum eins og meðfylgjandi
myndir Ómars Óskarssonar ljós-
myndara bera með sér.
Að sögn Gísla Gíslasonar, hafnar-
stjóra Faxaflóahafna, gera nokkrir
öflugir aðilar út smábáta frá Akra-
nesi en ekki hefur orðið veruleg
aukning í útgerð smábáta á undan-
förnum árum. Hins vegar hafa
strandveiðarnar hleypt lífi í höfnina
og í þeim geira hefur orðið mesta
aukningin. Þá hefur sjósport verið að
aukast og allnokkrir eru með báta og
skútur til útivistar og heilsubótar. Þá
hefur verið fjölgun á ferðasiglurum á
skútum og sportbátum.
Löndun togara dregst saman
Það hefur vissulega orðið sú breyt-
ing, að sögn Gísla, að löndun togara
hefur dregist verulega saman á und-
anförnum árum. Það kann að breyt-
ast í framtíðinni ef áform HB Granda
um aukna vinnslu á bolfiski ganga
eftir. Hins vegar eru uppsjávarskipin
tíðir gestir í byrjun árs þegar loðnu-
vertíð stendur hvað hæst enda er öfl-
ug fiskimjölsverksmiðja á Akranesi.
Þótt Sementsverksmiðjan hafi
hætt framleiðslu fyrir nokkrum ár-
um koma flutningaskip frá útlöndum
með sement í hverjum mánuði. Einn-
ig er nokkur umferð vegna þjónustu
við minni fiskiskip hjá Þorgeiri og
Ellert.
Í sögupunktum um Akraneshöfn
má finna ýmislegan fróðleik um höfn-
ina. Þar kemur m.a. fram að um alda-
skeið hafi útgerð verið á Akranesi og
frá fyrri tíð sé e.t.v. frægust útgerð
Brynjólfs biskups Sveinssonar um
miðbik 17. aldar, en útgerð Brynjólfs
var nokkuð umsvifamikil og halda
má því fram að þar hafi orðið til
fyrsti vísir að sjávarþorpi á Íslandi.
Hafnaraðstaða var hins vegar engin
heldur notast við varir og lendingar,
en fjöldi örnefna á Akranesi vísar til
þess.
Upphaf bryggjuframkvæmda á
Akranesi má rekja til þess að Skoti
að nafni James M. Ritchie flutti á
Akranes árið 1863 en Ritchie var
fyrsti borgarinn á Akranesi og
stundaði þar verslun, eftir að hrepp-
urinn fékk verslunarréttindi árið
1864. Ritchie hafði með sér frá Skot-
landi „lítilfjörlega hjólabryggju-
mynd“ sem hann setti í Lamb-
húsasund og var henni ýtt í sjó fram
þegar á þurfti að halda en annars var
hún dregin á land. Um aðra bryggju
var ekki að ræða á Akranesi fyrr en
árið 1874, en þá lét Ritchie smíða tré-
bryggju í stað hinnar eldri.
Árið 1895 gerði Thor Jensen
bryggju við svonefnda Steinsvör, en
hreppsnefndin hafði nokkrum árum
fyrr haft frumkvæði að lending-
arbótum í Steinsvörinni.
Árið 1930 ákvað hreppsnefnd Ytri-
Akraneshrepps að hefja fram-
kvæmdir við gerð hafnargarðs í
Krossvík þar sem núverandi hafnar-
aðstaða hefur verið undanfarna ára-
tugi. Á sínum tíma voru nokkuð
skiptar skoðanir um legu hafnar-
garðsins. Sumir vildu hafa hann vest-
ar en raun varð á.
Framkvæmdir við höfnina í Kross-
vík hafa nánast staðið yfir frá árinu
1930 til dagsins í dag, en hægt og bít-
andi var bætt við mikilvægum áföng-
um í bryggjugerð og brimvörnum.
Lokið var við fyrsta áfanga svo-
nefndrar Bátabryggju árið 1945 og
1947-1949 voru keypt fjögur innrás-
arker, 62 metrar á lengd hvert, og
notuð við hafnargerðina.
Líf og fjör í Akraneshöfn
Höfnin hefur verið full af smábátum og skútum í sumar Strandveiðibátar hafa sett svip á
höfnina Allnokkrir eru með báta og skútur til útivistar og heilsubótar Sjósportið er að aukast
Morgunblaðið/Ómar
Akraneshöfn Smábátar og skútur setja svip sinn á höfnina á fögrum sumardögum. Í baksýn má sjá sementsturnana sem minna á gamla góða daga.
Höfnin Nokkur uppsjávarveiðiskip eru gerð út frá Akranesi.
Haraldur Böðvarsson útgerðar-
maður hóf útgerð 17. nóvember
1906 þegar hann keypti sexæring-
inn Helgu Maríu. Nokkru síðar hóf
hann fiskverkun. Allar götur síðan
hefur fyrirtækið stundað útgerð og
fiskvinnslu á Akranesi. Haraldur
Böðvarsson hf. sameinaðist Granda
hf. í Reykjavík árið 2004 og úr varð
hið öfluga fyrirtæki HB Grandi.
Síðla árs 2014 kynnti HB Grandi
áform um aukna fiskvinnslu á
Akranesi.
„Við sjáum fyrir okkur betri að-
stöðu fyrir bolfiskvinnsluna. Það er
óhagræði að vera með hana í öku-
færi frá löndunarstað og hagræði
að breyta því í lyftarafæri eins og í
Reykjavík. Við höfum aukið þorsk-
vinnsluna verulega á Skaganum.
Hún var um 2.000 tonn á ári fyrir
nokkrum misserum en stefnir í
6.500 tonn í ár. Einnig fer að koma
að því að huga að frystigeymslu á
Akranesi og ganga framtíðaráform
okkar út á að flytja starfsemina
sem mest á einn stað,“ sagði Vil-
hjálmur Vilhjálmsson, forstjóri HB
Granda, í samtali við Morgunblaðið
árið 2014.
Rætt var um að ráðast í allt að 70
þúsund fermetra landfyllingu við
aðalhafnargarðinn undir starfsemi
HB Granda og var áætlaður fram-
kvæmdakostnaður 1,7 til 2,1 millj-
arður króna. Þar var m.a. gert ráð
fyrir nýju frystihúsi og byggingum
undir vinnslu á bolfiski og upp-
sjávarfiski. Núverandi athafna-
svæði fyrirtækisins er skammt frá
fyrirhugaðri landfyllingu.
Jákvæð viðbrögð bæjarins
Bæjarstjórn Akraness tók já-
kvætt í erindið og sendi bréf til
Faxaflóahafna með ósk um sam-
starf. Að sögn Gísla Gíslasonar
hafnarstjóra hafa verið gerðar
nokkrar tillögur um útfærslu á
landgerð. Verkefnið er ekki komið
lengra, en það þarf líklega að fara í
umhverfismat. sisi@mbl.is
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Nýtt skip Víkingur AK 100 kemur
til heimahafnar á Akranesi.
HB Grandi vill
auka vinnslu
Stór landfylling er til skoðunar