Morgunblaðið - 18.08.2016, Blaðsíða 32
32 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. ÁGÚST 2016
HAGI ehf Stórhöfða 37 • 110 Reykjavík • S. 414-3700 • hagi@hagi.is • Hagi ehf HILTI
Hágæða
vinnuföt
í miklu úrvali
Sérmerkjum fyrir fyrirtæki
Verkfæri og festingar
Mikið úrval af
öryggisvörum
bundumst böndum við Íslendinga og
Ísland. Þau hafa styrkst með hverju
árinu,“ segir Eric.
Í samtali við Morgunblaðið fyrir
30 árum lýstu bræðurnir yfir
ánægju með Ísland og Íslendinga og
sögðu meðal annars að þeir kæmu
örugglega aftur. Það reyndust held-
ur betur orð að sönnu og að öðrum
ólöstuðum hafa þeir lagt manna
mest vestra að bættum tengslum við
Ísland og hafa unnið með stjórn-
völdum, fyrirtækjum og ein-
staklingum að auknum samskiptum.
Í því sambandi má nefna að Eric,
sem er fyrrverandi heilbrigð-
isráðherra, fjármálaráðherra og
aðstoðarforsætisráðherra í Mani-
toba, kom mikið við sögu þegar Ís-
land og Kanada gerðu með sér loft-
ferðasamning 2007 og tók þannig
þátt í því að opna Vesturheim enn
frekar fyrir Íslendingum. „Það er
sérstaklega ánægjulegt að sjá hvað
ríkisstjórn Íslands hefur beint aug-
um sínum vestur í auknum mæli og
að fylgjast með uppgangi íslenskra
fyrirtækja í Norður-Ameríku, sam-
anber stóraukið leiðakerfi Ice-
landair,“ segir hann.
Eric segir ekki síður ánægjulegt
að hafa fylgst með framförum á Ís-
landi undanfarna áratugi. „Vega-
kerfið hefur breyst mikið frá því við
komum fyrst til landsins, verslanir
eru opnar á sunnudögum, sjónvarp
alla daga, veitingastaðir á hverju
strái, bjór til sölu og ferðamenn að
nálgast tvær milljónir á ári,“ bendir
hann á.
Heiðursfélagi
Þjóðræknisfélagsins
Þjóðræknisfélag Íslendinga var
endurreist 1997 og var Eric fulltrúi
Kanada í stjórninni, þar til fyrir um
þremur árum, en í kjölfarið var
hann útnefndur heiðursfélagi ÞFÍ.
Viðurkenninguna fékk hann þó ekki
afhenta fyrr en í sumar, í hófi sem
hann hélt hérlendis til minningar
um bróður sinn. „Það var gaman að
taka þátt í uppbyggingu Þjóðrækn-
isfélagsins, koma að Snorraverkefn-
inu og öðrum málum og mér þykir
vænt um þessa viðurkenningu,“ seg-
ir hann.
Ísland var stór þáttur í lífi bræðr-
anna Erics og Kristjáns og þeir
sáðu fræjum í fjölskyldunni sem
hafa gert það að verkum að ætt-
ingjar og vinir heimsækja landið
reglulega. Nýjasti áhugamaðurinn
um land og þjóð er Signý, dóttur-
dóttir Erics. „Hún elskar Ísland og
vill koma sem fyrst aftur,“ segir Er-
ic.
Hola í höggi
Eric stundar golf af kappi og náði
merkum áfanga í íþróttinni í Winni-
peg á feðradaginn í sumar, fór holu í
höggi í fyrsta sinn.
„Mér gekk illa á fyrstu holunum,
ákvað að skipta um bolta, fann Ice-
landair-bolta í pokanum og fór holu í
höggi á þarnæstu holu. Þessi tíma-
mót voru skrifuð í skýin og stefnan
er að koma aftur til Íslands næsta
sumar og taka meðal annars þátt í
Arctic Open á Akureyri og Ice-
landair Volcano Open í Vest-
mannaeyjum.“
Íslandi allt í
þrjá áratugi
Eric Stefánsson, fyrrverandi ráð-
herra í Winnipeg, stendur vörð um
samvinnuna og samskiptin
Minningarathöfn um Kristján Stefánsson Eric, Myrna, Signý og Kristen við mynd af Kristjáni.
Hola í höggi Eric Stefánsson glaður
með boltann góða eftir árangurinn.
Á ferð um landið Fjölskyldan kom við á Ási í Kelduhverfi, en þangað á Eric
ættir að rekja. Eric er íslenskur í báðar ættir og stoltur af upprunanum.
Ágúst 1986 Fyrsta viðtalið við
bræðurna í Morgunblaðinu.
Heiðursfélagi Halldór Árnason, formaður ÞFÍ, afhendir Eric skírteinið.
VIÐTAL
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Fyrir um 30 árum komu vestur-
íslensku bræðurnir Kristján og Eric
Stefánssynir fyrst saman til Íslands.
Þeir héldu uppteknum hætti næstu
áratugina, stundum oftar en einu
sinni árlega, þar til Kristján hæsta-
réttadómari lést fyrr á þessu ári, en
Eric, fyrrverandi ráðherra í Mani-
toba, heldur í hefðina og sótti landið
heim með eiginkonu, dóttur og dótt-
urdóttur á dögunum.
„Við eigum margar góðar minn-
ingar frá heimsóknunum og höfum
kynnst fólki sem er á meðal bestu
vina okkar,“ segir Eric á þessum
tímamótum. „Traustir vinir þurfa
ekki að hittast daglega og það hefur
sýnt sig hvað okkur og íslensku vini
okkar varðar en samfara því að efla
vinskapinn höfum við unnið að því
að styrkja tengslin milli Manitoba
og Íslands og það hefur ekki síður
verið gefandi.“
Byrjaði á 200 ára afmæli
Reykjavíkur
Reykjavík og Winnipeg í Kanada
eru systraborgir. Eric var aðstoðar-
borgarstjóri Winnipeg 1986 og
vegna 200 ára afmælis Reykjavíkur
var yfirvöldum kanadísku borg-
arinnar boðið að senda fulltrúa á há-
tíðina. Bill Norrie, þáverandi borg-
arstjóri, átti ekki heimangengt og
sendi Eric í sinn stað. Vestur-
Íslendingurinn Magnús Elíasson
borgarfulltrúi var einnig með í för
og Eric taldi Kristján, bróður sinn,
á að koma með, en hann hafði farið í
fyrsta sinn til Íslands árið áður. „Við
náðum strax góðri tengingu og