Morgunblaðið - 18.08.2016, Page 47
FRÉTTIR 47Erflent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. ÁGÚST 2016
Ráðamenn í Pjongjang segjast hafa
hafið framleiðslu á kjarnkleyfa efn-
inu plútóníum og að þeir muni ekki
láta af prófunum sínum með kjarna-
vopn á meðan Bandaríkin halda enn
áfram „hótunum“ sínum. Er það
fréttaveita AFP sem greinir frá.
Sameinuðu þjóðirnar vöruðu við
því í júní sl. að Norður-Kóreumenn
hefðu að líkindum endurræst kjarna-
kljúfinn í Yongbyon. Er talið að hann
geti, þegar hann er kominn í fullan
gang, framleitt nógu mikið plútóní-
um til að geta búið til eina kjarn-
orkusprengju á ári. Ekki er vitað
með vissu hversu mikið plútóníum
Norður-Kóreumenn eiga nú þegar,
en sérfræðingar í öryggismálum
telja hins vegar að þeir eigi nóg til að
framleiða um átta kjarnorku-
sprengjur á borð við þær sem varpað
var á japönsku borgirnar Hiroshima
og Nagasaki í síðari heimsstyrjöld.
Spennan á Kóreuskaga hefur vax-
ið mjög undanfarið og hafa margir
ráðamenn varað við ástandinu.
AFP
Eldflaugarskot Kim Jong-un, leiðtogi Norður-Kóreu, leynir ekki ánægju
sinni með vel heppnað tilraunaskot, en hjá honum standa herforingjar.
Kjarnorkutilraun-
um haldið áfram
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Rússneskar sprengju- og orrustu-
þotur héldu í gær áfram að nota her-
flugvöll í Íran til að gera loftárásir í
Sýrlandi. Stjórnvöld í Washington
D.C. segja notkun Rússa á flugvell-
inum brjóta í bága við ályktun ör-
yggisráðs Sameinuðu þjóðanna en
því neita rússneskir ráðamenn.
Samkvæmt ályktun ráðsins sem
Bandaríkjamenn vísa til er óheimilt
með öllu að afhenda, selja og flytja
herflugvélar til Írans án sérstaks
leyfis frá öryggisráðinu. „Það er
ekki hægt að halda því fram að
Rússland hafi brotið þessa ályktun,“
hefur fréttaveita AFP eftir Sergei
Lavrov, utanríkisráðherra Rúss-
lands.
Með Deir Ezzor í sigtinu
Varnarmálaráðuneytið í Moskvu
tilkynnti í fyrradag að her Rúss-
lands hefði notað Hamedan-herflug-
völlinn í vesturhluta Írans og voru
þá notaðar sprengjuþotur af gerð-
inni Tupolev 22M3 og Sukhoi-orr-
ustuþotur í árásunum. Var þetta í
fyrsta skipti sem rússneskar her-
sveitir gera árásir í Sýrlandi frá
þriðja landinu síðan Rússar hófu
lofthernað sinn til stuðnings Bas-
hars al-Assads Sýrlandsforseta.
Fara sprengjuvélar Rússa einnig til
árása gegn vígasveitum frá herflug-
völlum í Rússlandi og Sýrlandi.
Að sögn AFP fóru í gær nokkrar
herþotur af gerðinni Sukhoi-34 á loft
frá herstöðinni og vörpuðu þær
sprengjum sínum á skotmörk í Deir
Ezzor í Sýrlandi. Varnarmálaráðu-
neyti Rússa segir tvær stjórnstöðv-
ar og þjálfunarbúðir vígamanna hafa
eyðilagst í árásinni. Telur ráðuneyt-
ið minnst 150 liðsmenn vígasamtaka
hafa fallið í sprengjuregninu.
Þarfnast ekki frekari umræðu
Mark Toner, talsmaður utanríkis-
ráðuneytis Bandaríkjanna, segir
lofthernað Rússa frá Íran „vel geta
talist brot“ á ályktun öryggisráðsins.
Lavrov segir ályktun ráðsins hins
vegar ekki eiga við „í því tilfelli sem
hér er til umræðu. Það var ekki ver-
ið að selja, afhenda eða flytja her-
flugvélar til Írans“.
Þá segir Lavrov vélarnar ekki
vera aðgengilegar Írönum. „Þessar
herflugvélar eru, með leyfi Írana,
notaðar af rússneska flughernum til
að taka þátt í aðgerðum gegn
hryðjuverkamönnum í Sýrlandi. Og
er það gert að beiðni lögmætra
stjórnvalda Sýrlands,“ segir Lavrov
og bætir við: „Það er ekkert í þessu
máli sem þarfnast frekari umræðu.“
Rússneski herinn hefur notað
Mozdok-herflugvöllinn í suðurhluta
Rússlands til að senda á loft lang-
drægar sprengjuþotur til árása í
Sýrlandi. Sérfræðingur í öryggis-
málum sem AFP ræddi við telur að
Rússar geti ekki lengur notað völl-
inn tímabundið vegna yfirstandandi
framkvæmda þar.
„Svo virðist sem rof hafi komið í
aðgerðir þeirra þaðan vegna fram-
kvæmda á nýrri flugbraut,“ segir
hann, en myndir frá gervitunglum
benda til að framkvæmdir hafi hafist
einhvern tímann í maí eða júní.
Auk Rússa hefur klerkastjórnin í
Íran stutt við bakið á Assad Sýr-
landsforseta frá upphafi átaka, m.a.
með hernaði og fjárhagsaðstoð.
Rússneskar vélar til árása í
Sýrlandi frá þremur löndum
Ráðamenn í Moskvu neita því algerlega að hafa brotið ályktun öryggisráðsins
AFP
Herveldi Rússnesk sprengjuþota af gerðinni Tupolev Tu-22M3 sleppir sprengjum sínum yfir Sýrlandi, en herþotan
tók á loft frá Hamedan-herflugvellinum í Íran. Líklegt þykir að Rússar muni nota flugvöllinn áfram til árása.
Hernaður Rússa
» Lofthernaður Rússa innan
landamæra Sýrlands hófst 30.
september 2015.
» Með árásunum er stutt við
Bashar al-Assad, forseta Sýr-
lands.
» Fara herþotur Rússa nú í
árásir frá þremur löndum, þ.e.
Rússlandi, Sýrlandi og Íran.
» Einnig hafa verið gerðar
nokkrar stýriflaugaárásir.
Um tíu manns
særðust alvar-
lega þegar far-
þegalest sem
þeir voru um
borð í var ekið á
tré sem fallið
hafði á lestar-
teinana, en
óhappið átti sér
stað í suðurhluta
Frakklands. Fréttaveita AFP
greinir frá því að um 50 aðrir hafi
særst og hlutu flestir þeirra minni-
háttar skrámur og áverka.
Að sögn AFP var lestin á ferð á
milli Nimes og Montpellier, á um
140 km hraða, þegar hún hafnaði á
tré sem rifnað hafði upp með rótum
í miklum veðurofsa. Um 250 manns
voru þá um borð í farþegalestinni.
Einn þeirra sem særðust mest
var fluttur með þyrlu á sjúkrahús.
Ástand hans er talið mjög alvar-
legt, en í gær voru ekki veittar
frekari upplýsingar um líðan við-
komandi. Um 80 björgunar- og lög-
reglumenn tóku þátt í störfum á
slysstaðnum.
FRAKKLAND
Farþegalest ekið á
tré á 140 km hraða
Tvö ung börn,
fjögurra og sex
ára gömul, og
karlmaður á þrí-
tugsaldri létust
eftir að hafa
flækst í hala á
flugdrekum, en
þeir voru þaktir
fjölmörgum
beittum gler-
brotum. Atvikið átti sér stað í Nýju-
Delí á Indlandi og var fólkið að
fagna þjóðhátíðardegi landsins.
Fréttaveita AFP greinir frá því
að flugdrekarnir hafi verið sér-
staklega útbúnir til að granda öðr-
um drekum á flugi og útskýrir það
glerbrotin. Að sögn lögreglunnar
flæktust halarnir um háls hinna
látnu er þeir fylgdust með flug-
drekasýningu. Indversk stjórnvöld
hafa nú lagt bann við sölu og notk-
un á flugdrekahölum sem þessum.
INDLAND
Þrír látnir eftir
flugdrekaslys
Since 1921
Ég elska Weleda
andlitsvörurnar
Weleda vörurnar stuðla að heilbrigði húðarinnar.
Hver einasta vörulína inniheldur eina lækningajurt sem er kjarni viðkomandi línu
og er valin með tilliti til áhrifa hennar á húðina. Í samhljómi við mann og náttúru,
lesið meira um vörurnar á www.weleda.is
-Útsölustaðir Weleda eru heilsuverslanir og apótek.
Vertu vinur okkar á facebook
www.facebook.com/weledaísland