Morgunblaðið - 18.08.2016, Page 34
34 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. ÁGÚST 2016
„Innblásið af fortíðinni…
endurskapað fyrir þig“
Þórunn Kristjánsdóttir
thorunn@mbl.is
Stöðugur straumur ferðafólks er inn í
Reykjadal ofan Hveragerðis og hefur
verið í allt sumar. Líklega leggja um
500 manns leið sína inn í dalinn á
hverjum degi, á öllum tímum sólar-
hringsins. Bílastæðið fyrir neðan
gönguleiðina er löngu sprungið og nær
bílaröðin langt meðfram götunni.
Flestir leggja á sig tæplega klukku-
stundar fjallgöngu til að baða sig í
heitu ánni og fara ýmist gangandi,
hjólandi eða ríðandi á hestum inn dal-
inn. Þegar blaðamann og ljósmyndara
Morgunblaðsins bar að garði fyrir há-
degi í gærmorgun voru bílastæðin orð-
in full. Fólk á öllum aldri gekk inn dal-
inn í rólegheitum í góðu veðri. Töluvert
var um fjölskyldufólk með börn á öll-
um aldri. Flestir voru í góðum skóm en
eitt par var þó í sundtöflum.
Göngustígar á svæðinu eru nokkuð
góðir en leðja á nokkrum stöðum, sér-
staklega í kringum hestagerði sem hef-
ur verið komið upp. Í kringum heita
lækinn þar sem fólk baðar sig notuðu
margir krossgerði sem hafa verið reist
á nokkrum stöðum til að skipta um föt.
Í kringum baðsvæðið er orðið töluvert
úttroðið.
Umgengni ábótavant
„Rætt hefur verið um að Reykjadal-
ur og svæðið vestan og austan við hann
fari alveg undir stjórn ríkisins því þar
þarf að vera landvörður allan sólar-
hringinn sem myndi líta eftir svæðinu.
Það eru um 100 þúsund manns sem
fara þarna inn á ári, að lágmarki. Um-
gengnin verður því ekki góð miðað við
þennan fjölda. Fólk heldur greinilega
oft partí þarna og skilur eftir sig sund-
föt, handklæði og rusl. Ekkert salerni
er til staðar og fólk þarf að gera þarfir
sínar og skilur þá eftir sig hvítan papp-
ír,“ segir Sigurður Ósmann Jónsson
sem hefur haft umsjón með fram-
kvæmdum í Reykjadal um árabil og er
jafnframt byggingar- og skipulags-
fulltrúi Ölfuss.
Lagfæring á gönguleiðum, að af-
marka hættusvæði þar sem hverir eru
og salernismálin eru það brýnasta sem
þarf að leysa í Reykjadal að mati Sig-
urðar sem bendir á að snúið gæti verið
að leysa þann þátt. „Ef það yrði sett
upp við heita lækinn er ekki einfalt að
losa það, því losunarbíll kemst ekki að
svæðinu. Það þyrfti að notast við ein-
hverjar kemískar lausnir, sem einnig
þarf að losa á ákveðnu tímabili,“ segir
hann.
Sigurður bendir á að fólk tjaldi í
auknum mæli á svæðinu yfir nótt.
Margir noti einnota grill, sem svíði
jörðina, og skilji jafnvel eftir sig rusl.
Bannað er að tjalda og vera með opinn
eld s.s. grill. Engin ruslafata er á svæð-
inu því enginn er til staðar til að sinna
eftirliti og tæma þær.
Fjölmargir leggja leið sína á svæðið,
hjóla, ganga og skokka. „Margir fara
ekki eftir stígunum. Búið er að troða
gönguleiðir víða út með því að búa til
nýja stíga og það er ekki gott,“ segir
Sigurður. Til að stýra umferð og að-
gangi fólks á svæðið hefur verið rætt
um hvort ein leið sé gjaldtaka, segir
hann. „Það væri líka hægt að vernda
svæðið með takmörkun. Það þekkja
erlendir ferðamenn úr heimalandi
sínu, þeir fara t.d. ekki inn á svæði þar
nema í fylgd þjóðgarðsvarðar,“ segir
Sigurður.
Hjá ferðaþjónustufyrirtækjum er
Reykjadalur seldur sem einn af áhuga-
verðustu stöðunum í nágrenni Reykja-
víkur. Töluverðar framkvæmdir hafa
verið á svæðinu frá árinu 2012 sem
miða að því að sporna gegn átroðningi
ferðafólks. Þar hafa m.a. verið lagðir
göngustígar, reistar brýr, byggðir pall-
ar við heita lækinn og sett upp kross-
gerði á þeim svo fólk geti skipt um föt.
Einnig eru hestagerði á tveimur stöð-
um svo þeir sem koma ríðandi inn í dal-
inn geti geymt hestana og gengið að
heita læknum. Þrátt fyrir það er enn
þörf á úrbótum. Í ár var áætlað að
verja um 20 milljónum króna til að laga
svæðið. Styrkir að upphæð átta millj-
ónir koma frá Ferðamálastofu í verk-
efni. Reykjadalur er í eigu ríkisins en
Landbúnaðarháskólinn, LBHÍ að
Reykjum, hefur umsjón með verkefn-
inu. Skipulagsvaldið er hjá Sveitarfé-
laginu Ölfusi og er unnið að end-
urbótum í samstarfi við LBHÍ,
Hveragerðisbæ og Eldhesta ehf.
Þyrfti land-
vörslu allan
sólarhringinn
Telja að um 500 manns fari inn í
Reykjadal hvern dag, á öllum tímum
Fyrir hádegi Ýmislegt þarf að lagfæra í Reykjadal; leggja gönguleiðir, afmarka hættusvæði og koma upp salerni.
Morgunblaðið/RAX
Um hádegisbil Bílastæðið fyrir neðan gönguleiðina er löngu sprungið og
nær bílaröðin meðfram götunni. Þetta hefur verið algeng sjón í sumar.
Parið Viktor og Ton frá Ukraínu voru ein af fjölmörgum sem böðuðu sig í
heitu ánni í gærmorgun. „Í hreinskilni sagt, þá kemur á óvart hvað þetta
er gott. Maður býst ekki við að geta farið í fjallgöngu og baðað sig í heit-
um læk,“ sagði Viktor. Þau voru sammála um að það væri þess virði að
leggja á sig fjallgöngu ef þetta væru verðlaunin, heitur lækur í nátt-
úrunni. Þetta var þriðji dagurinn þeirra á Íslandi og höfðu þau farið í Bláa
lónið og líkað vel en þetta væri þó öðruvísi upplifun. Viktori fannst að-
staðan til að skipta um föt fín og sagðist hann ekki vilja sjá meiri að-
stöðu. „Það sem er heillandi er að þetta er úti í villtri náttúru. Svæðið
myndi missa sjarmann ef það væri búið að koma upp góðri aðstöðu,“
sagði hann.
Þau höfðu fundið upplýsingar um Reykjadal í gegnum samfélagsmiðla
og benti Viktor á að staðurinn væri á mörgum topplistum á ýmsum miðl-
um yfir þá staði sem þykja bestir á Íslandi. Reykjadalur stendur undir
væntingum að þeirra mati. Þangað er auðvelt aðgengi, hann er stutt frá
Reykjavík og er vel merktur. Parið ferðast um landið á svokölluðum
„camper“ en næst á dagskrá hjá þeim var að fara á Gullfoss og Geysi.
Þarf ekki betri aðstöðu
HEITI LÆKURINN Í REYKJADAL HEILLAR ALLA ALDURSHÓPA
Morgunblaðið/RAX
Svamlað Parið frá Úkraínu lét fara vel um sig í heita læknum.