Morgunblaðið - 18.08.2016, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 18.08.2016, Blaðsíða 34
34 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. ÁGÚST 2016 „Innblásið af fortíðinni… endurskapað fyrir þig“ Þórunn Kristjánsdóttir thorunn@mbl.is Stöðugur straumur ferðafólks er inn í Reykjadal ofan Hveragerðis og hefur verið í allt sumar. Líklega leggja um 500 manns leið sína inn í dalinn á hverjum degi, á öllum tímum sólar- hringsins. Bílastæðið fyrir neðan gönguleiðina er löngu sprungið og nær bílaröðin langt meðfram götunni. Flestir leggja á sig tæplega klukku- stundar fjallgöngu til að baða sig í heitu ánni og fara ýmist gangandi, hjólandi eða ríðandi á hestum inn dal- inn. Þegar blaðamann og ljósmyndara Morgunblaðsins bar að garði fyrir há- degi í gærmorgun voru bílastæðin orð- in full. Fólk á öllum aldri gekk inn dal- inn í rólegheitum í góðu veðri. Töluvert var um fjölskyldufólk með börn á öll- um aldri. Flestir voru í góðum skóm en eitt par var þó í sundtöflum. Göngustígar á svæðinu eru nokkuð góðir en leðja á nokkrum stöðum, sér- staklega í kringum hestagerði sem hef- ur verið komið upp. Í kringum heita lækinn þar sem fólk baðar sig notuðu margir krossgerði sem hafa verið reist á nokkrum stöðum til að skipta um föt. Í kringum baðsvæðið er orðið töluvert úttroðið. Umgengni ábótavant „Rætt hefur verið um að Reykjadal- ur og svæðið vestan og austan við hann fari alveg undir stjórn ríkisins því þar þarf að vera landvörður allan sólar- hringinn sem myndi líta eftir svæðinu. Það eru um 100 þúsund manns sem fara þarna inn á ári, að lágmarki. Um- gengnin verður því ekki góð miðað við þennan fjölda. Fólk heldur greinilega oft partí þarna og skilur eftir sig sund- föt, handklæði og rusl. Ekkert salerni er til staðar og fólk þarf að gera þarfir sínar og skilur þá eftir sig hvítan papp- ír,“ segir Sigurður Ósmann Jónsson sem hefur haft umsjón með fram- kvæmdum í Reykjadal um árabil og er jafnframt byggingar- og skipulags- fulltrúi Ölfuss. Lagfæring á gönguleiðum, að af- marka hættusvæði þar sem hverir eru og salernismálin eru það brýnasta sem þarf að leysa í Reykjadal að mati Sig- urðar sem bendir á að snúið gæti verið að leysa þann þátt. „Ef það yrði sett upp við heita lækinn er ekki einfalt að losa það, því losunarbíll kemst ekki að svæðinu. Það þyrfti að notast við ein- hverjar kemískar lausnir, sem einnig þarf að losa á ákveðnu tímabili,“ segir hann. Sigurður bendir á að fólk tjaldi í auknum mæli á svæðinu yfir nótt. Margir noti einnota grill, sem svíði jörðina, og skilji jafnvel eftir sig rusl. Bannað er að tjalda og vera með opinn eld s.s. grill. Engin ruslafata er á svæð- inu því enginn er til staðar til að sinna eftirliti og tæma þær. Fjölmargir leggja leið sína á svæðið, hjóla, ganga og skokka. „Margir fara ekki eftir stígunum. Búið er að troða gönguleiðir víða út með því að búa til nýja stíga og það er ekki gott,“ segir Sigurður. Til að stýra umferð og að- gangi fólks á svæðið hefur verið rætt um hvort ein leið sé gjaldtaka, segir hann. „Það væri líka hægt að vernda svæðið með takmörkun. Það þekkja erlendir ferðamenn úr heimalandi sínu, þeir fara t.d. ekki inn á svæði þar nema í fylgd þjóðgarðsvarðar,“ segir Sigurður. Hjá ferðaþjónustufyrirtækjum er Reykjadalur seldur sem einn af áhuga- verðustu stöðunum í nágrenni Reykja- víkur. Töluverðar framkvæmdir hafa verið á svæðinu frá árinu 2012 sem miða að því að sporna gegn átroðningi ferðafólks. Þar hafa m.a. verið lagðir göngustígar, reistar brýr, byggðir pall- ar við heita lækinn og sett upp kross- gerði á þeim svo fólk geti skipt um föt. Einnig eru hestagerði á tveimur stöð- um svo þeir sem koma ríðandi inn í dal- inn geti geymt hestana og gengið að heita læknum. Þrátt fyrir það er enn þörf á úrbótum. Í ár var áætlað að verja um 20 milljónum króna til að laga svæðið. Styrkir að upphæð átta millj- ónir koma frá Ferðamálastofu í verk- efni. Reykjadalur er í eigu ríkisins en Landbúnaðarháskólinn, LBHÍ að Reykjum, hefur umsjón með verkefn- inu. Skipulagsvaldið er hjá Sveitarfé- laginu Ölfusi og er unnið að end- urbótum í samstarfi við LBHÍ, Hveragerðisbæ og Eldhesta ehf. Þyrfti land- vörslu allan sólarhringinn  Telja að um 500 manns fari inn í Reykjadal hvern dag, á öllum tímum Fyrir hádegi Ýmislegt þarf að lagfæra í Reykjadal; leggja gönguleiðir, afmarka hættusvæði og koma upp salerni. Morgunblaðið/RAX Um hádegisbil Bílastæðið fyrir neðan gönguleiðina er löngu sprungið og nær bílaröðin meðfram götunni. Þetta hefur verið algeng sjón í sumar. Parið Viktor og Ton frá Ukraínu voru ein af fjölmörgum sem böðuðu sig í heitu ánni í gærmorgun. „Í hreinskilni sagt, þá kemur á óvart hvað þetta er gott. Maður býst ekki við að geta farið í fjallgöngu og baðað sig í heit- um læk,“ sagði Viktor. Þau voru sammála um að það væri þess virði að leggja á sig fjallgöngu ef þetta væru verðlaunin, heitur lækur í nátt- úrunni. Þetta var þriðji dagurinn þeirra á Íslandi og höfðu þau farið í Bláa lónið og líkað vel en þetta væri þó öðruvísi upplifun. Viktori fannst að- staðan til að skipta um föt fín og sagðist hann ekki vilja sjá meiri að- stöðu. „Það sem er heillandi er að þetta er úti í villtri náttúru. Svæðið myndi missa sjarmann ef það væri búið að koma upp góðri aðstöðu,“ sagði hann. Þau höfðu fundið upplýsingar um Reykjadal í gegnum samfélagsmiðla og benti Viktor á að staðurinn væri á mörgum topplistum á ýmsum miðl- um yfir þá staði sem þykja bestir á Íslandi. Reykjadalur stendur undir væntingum að þeirra mati. Þangað er auðvelt aðgengi, hann er stutt frá Reykjavík og er vel merktur. Parið ferðast um landið á svokölluðum „camper“ en næst á dagskrá hjá þeim var að fara á Gullfoss og Geysi. Þarf ekki betri aðstöðu HEITI LÆKURINN Í REYKJADAL HEILLAR ALLA ALDURSHÓPA Morgunblaðið/RAX Svamlað Parið frá Úkraínu lét fara vel um sig í heita læknum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.