Morgunblaðið - 18.08.2016, Blaðsíða 84
FIMMTUDAGUR 18. ÁGÚST 231. DAGUR ÁRSINS 2016
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 517 KR. ÁSKRIFT 5613 KR. HELGARÁSKRIFT 3505 KR. PDF Á MBL.IS 4978 KR. I-PAD ÁSKRIFT 4978 KR.
1. Ósætti eftir „maraþonnótt af kynlífi“
2. Íslandsmet Anítu dugði ekki til
3. Andlát: Ólöf Eldjárn
4. Var of fljót fyrir atrennuna
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Efnt verður til tónleika á skemmti-
staðnum Græna herberginu, sem
opnaður var fyrir skemmstu í Lækj-
argötu 6, í kvöld en þar munu Ívar
Daníels og Magnús Hafdal stíga á
svið. Tvímenningarnir tóku þátt í Ís-
land Got Talent fyrir skemmstu og
vöktu talsverða athygli, þá sér-
staklega Ívar fyrir flutning sinn á
slagara Villa Vill, Þú átt mig ein, eins
og segir í tilkynningu. Tvímenning-
arnir ætla að halda uppi mikilli gít-
arstemningu í kvöld og hvetja þeir
áhorfendur eindregið til að taka virk-
an þátt.
Gestir hvattir til að
syngja með gítarnum
Listasumar á Akureyri heldur
áfram í kvöld en þá verður sérstök
dagskrá um þátt Matthíasar Joch-
umssonar í lífi Davíðs Stefánssonar
í Davíðshúsi klukkan 16. Í dag hefst
einnig raftónlistarsmiðja Haraldar
Arnar í sal Myndlistarfélagsins en
smiðjan er ókeypis og hentar krökk-
um frá fjórtán ára aldri. Þá verður
tríóið Hrafnaspark með tónleika í
kvöld á Græna hattinum en fjöl-
breytt dagskrá þeirra spannar allt
frá Billy Joel til Edvards Grieg.
Þá má þess einnig geta að á
morgun kl. 19 verður opnuð samsýn-
ing fjölþjóðlegu listamannanna Jón-
ínu Mjallar Þormóðsdóttur, Ingrid
Elsa Maria Ogenstedt og
Arne Rawe í Kaktus,
kjallara Listasafns-
ins á Akureyri, og
síðar um kvöldið
heldur hljóm-
sveitin Á móti sól
20 ára afmælistón-
leika á Græna
hattinum.
Matthías hafði þó-
nokkur áhrif á Davíð
Á föstudag Hæg austlæg eða breytileg átt og víða léttskýjað en
líkur á þokulofti með austurströndinni. Hiti 10-18 stig.
Á laugardag Austan 5-10 m/s og dálítil væta við suðurströndina
en annars hægviðri og skýjað með köflum. Hiti 10-18 stig.
VEÐUR
„Ég er rosalega stoltur af
því að Aníta skyldi bæta sig
og setja Íslandsmet á sínum
fyrstu Ólympíuleikum, við
þessar aðstæður. En ég veit
líka, miðað við æfingar og
annað, hvað býr í henni og
að hún getur hlaupið enn
hraðar en þetta,“ sagði
Gunnar Páll Jóakimsson,
þjálfari Anítu Hinriksdóttur,
eftir að hún setti Íslands-
met í 800 m hlaupi á ÓL í
Ríó í gær. »1
Aníta getur
hlaupið hraðar
„Leikarnir í Sydney árið 2000, þegar
ég var landsliðsþjálfari Íslands, standa
líka upp úr enda fékk Vala Flosadóttir
þar brons og frjálsíþróttafólkinu gekk
mjög vel. Sydney er líka mjög
skemmtileg borg, og mér fannst leik-
arnir 2012 í London
líka heppnast virki-
lega vel,“ segir Vé-
steinn Haf-
steinsson,
frjálsíþróttaþjálfari
og fyrirlesari, sem
nú tekur þátt í sín-
um níundu
Ólympíu-
leikum.
»2
Ólympíuleikarnir í
Sydney standa upp úr
„Þetta er ekki það sem við vildum,
ekki það sem við bjuggumst við og
ekki það sem Ásdís hefur fórnað fjór-
um árum ævi sinnar fyrir,“ sagði
Terry McHugh, hinn írski þjálfari Ás-
dísar Hjálmsdóttur, eftir að Ásdís
lauk keppni á Ólympíuleikunum í Ríó í
fyrrinótt. Ásdís náði sér engan veg-
inn á strik og varð næstsíðust af 31
keppanda. »4
Ásdís var langt frá því
sem vonast var eftir
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Erla María Markúsdóttir
erla@mbl.is
Ofursnapparinn og blaðamaðurinn
Guðrún Veiga Guðmundsdóttir gekk
að eiga unnusta sinn, Guðmund Þór
Valsson, í Eskifjarðarkirkju á laugar-
dag. Brúðkaupið var hefðbundið að
mörgu leyti nema ef til vill fyrir þær
sakir að rúmlega 13.000 manns fylgd-
ust með því sem fram fór í gegnum
Snapchat.
Guðrún Veiga hefur getið sér gott
orð sem snappari þar sem hún spjallar
hispurslaust um daginn og veginn, oft-
ar en ekki með rauðvínsglas í hendi,
við fylgjendur sína. Hún sagði fyrst frá
snappinu sínu á bloggsíðunni sinni,
gveiga85.blogspot.is, í október í fyrra.
Hana grunaði hins vegar ekki að fylgj-
endurnir myndu skipta þúsundum áð-
ur en langt um liði. „Það var rosalega
fjarri mér að ég myndi enda sem ein af
þeim sem eru með andlitið á sér límt
við símaskjáinn, gjammandi við hann
allan daginn, mér fannst ekkert fárán-
legra í öllum heiminum. Svo veit ég
ekki alveg hvað kom yfir mig. Núna er
þetta bara orðinn órjúfanlegur hluti af
deginum.“
Bað Tuskubrands
Guðrún Veiga bað Guðmundar fyrir
um ári síðan. Guðmundur er þó þekkt-
ari undir nafninu Tuskubrandur meðal
fylgjenda snappsins, en þar sýnir hann
oft góða takta með tuskuna á
lofti. Fylgjendur hafa
fengið að fylgjast með
brúðkaupsundirbún-
ingnum í beinni á Snap-
chat síðastliðið ár og
því fannst Guðrúnu
Veigu hún ekki geta
annað en leyft fólki
að fylgjast með
stóra deginum.
„Brúðkaupið yf-
irtók líf mitt síð-
ustu mánuði þannig að
mér fannst svo leiðinlegt
ef fólk fengi bara að fylgjast með sí-
röflandi kvíða- og taugahrúgu en fengi
svo ekkert í staðinn.“ Móðir hennar
benti henni þó góðfúslega á að það
kæmi ekki til greina að hún yrði sjálf
með símann á lofti á stóra daginn. Vin-
kona Guðrúnar Veigu, Sigrún Sig-
urpálsdóttir, sá því um snappið á brúð-
kaupsdaginn, en þær kynntust einmitt
í gegnum miðilinn. Guðrún Veiga er af-
ar hamingjusöm með hvernig til tókst
og svífur enn um á bleiku skýi. Hún er
að sjálfsögðu búin að horfa á snöppin
frá laugardeginum, oftar en einu sinni.
„Þegar ég var að horfa á þetta í þrett-
ánda skipti tók eiginmaðurinn af mér
símann og bað mig vinsamlegast um
að hætta þessu.“ Guðrún Veiga er alls
ekki búin að fá nóg af Snapchat og
geta áhugasamir fylgst með henni
undir notendanafninu gveiga85.
13.000 manna brúðkaup
Snapchat lék
stórt hlutverk í
brúðkaupi
Morgunblaðið/Golli
Ofursnappari Guðrún Veiga gekk að eiga unnusta sinn, Guðmund Þór, um helgina. 13.000 manns fylgdust með at-
höfninni og veislunni á Snapchat, en þar hefur Guðrún Veiga getið sér gott orð síðastliðið ár, enda stórskemmtileg.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Hæg suðlæg eða breytileg átt og víða lítils-
háttar skúrir en bjartviðri fyrir austan. Hiti víða 12 til 18 stig.
„Það kom aldrei annað til greina
en að gifta sig í gulu, það er minn
einkennislitur og hefur alltaf
verið. Ég var ekkert að spá í sal
eða prest strax eftir bónorðið,
ég var að spá í að finna ein-
hvern til að gera kjól
drauma minna,“ segir Guð-
rún Veiga.
Bára Atladótt-
ir hannaði kjól-
inn, sem Guð-
rún Veiga er í
skýjunum með. „Við pöntuðum
efnið í kjólinn á Ali Express, það er
hægt að finna allt þar.“ Guðrún
Veiga nýtti sér kínversku vefversl-
unina til hins ýtrasta í undirbún-
ingnum. „Ég er farin að fá ótrúleg-
ustu skilaboð um að fólk vilji
kaupa hitt og þetta sem það sá,
allt frá borðbúnaði yfir í brúð-
arkjólinn, þannig að ég hef engar
áhyggjur af að ég losni ekki við
þetta.“ Kjólinn mun hún þó ekki
láta frá sér.
Heiðgult sumarbrúðkaup
„VILTU GIFTAST MÉR? ÉG ÆTLA AÐ VERA Í GULUM KJÓL“