Morgunblaðið - 18.08.2016, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 18.08.2016, Qupperneq 24
24 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. ÁGÚST 2016 Laugavegi 7, 101 Reykjavík - Sími: 551-3033 Flottir í fötum SUMAR ÚTSALAN hefst á morgun aðeins í stuttan tíma 40% afsláttur Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Á fundi umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkurborgar í gær var lögð fram fyrirspurn Ask arkitekta varð- andi breytingu á deiliskipulagi sem felst í að koma fyrir sjálfsafgreiðslu- stöð fyrir eldsneyti á bílastæðum á suðausturenda lóðarinnar nr. 15-21 við Fiskislóð á Granda. Á þessari lóð eru verslanir Krónunnar, Byko, Elko og Rúmfatalagersins. Fulltrúar meirihlutans í ráðinu; fulltrúar Samfylkingarinnar, Hjálm- ar Sveinsson og Stefán Benediktsson, fulltrúi Bjartrar framtíðar, Magnea Guðmundsdóttir, fulltrúi Vinstri- hreyfingarinnar – græns framboðs, Gísli Garðarsson, og áheyrnarfulltrúi Pírata, Sigurborg Ósk Haraldsdóttir, tóku neikvætt í fyrirspurnina. Festi stórmarkaði í sessi Þau bókuðu að tillagan samræmd- ist hvorki stefnu Reykjavíkurborgar um fækkun bensínstöðva né nýsam- þykktri loftslagsstefnu Reykjavíkur- borgar þar sem segir m.a. að mark- miðið verði að dælur fyrir jarðefnaeldsneyti innan borgarmark- anna verði 50% færri árið 2030 og verði að mestu horfnar árið 2040. „Stórmarkaðir með matvöru í jaðri íbúasvæðis eru jafnframt andstæðir gildandi aðalskipulagi Reykjavíkur þar sem er að finna stefnur um skipu- lag vistvænna hverfa og hverfis- verslanir. Myndi sjálfsafgreiðslustöð á umræddum stað að öllum líkindum festa stórmarkaðina enn frekar í sessi,“ segir m.a. í bókun fulltrúa meirihlutans í ráðinu. Fulltrúar minnihlutans í ráðinu, þ.e. fulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Marta Guðjónsdóttir og Herdís Anna Þorvaldsdóttir, og fulltrúi Fram- sóknar og flugvallarvina, Guðfinna Jóhanna Guðmundsdóttir ,tóku já- kvætt í fyrirspurnina og bókuðu eft- irfarandi: „Valið stendur um það að hafa bensínsstöðvar á sérlóðum eins og fyrirfinnast nú víða um borg eða bjóða upp á þann möguleika að hafa sjálfsafgreiðslustöðvar fyrir eldsneyti á lóðum þar sem fólk gerir stór- innkaup. Slíkt fyrirkomulag dregur úr ferðum og þar með mengun og meiri möguleikar eru á því að lóð- unum sem nú eru sérstaklega nýttar fyrir bensínstöðvar fækki. Mikið af verslunum er á þessu svæði sem stór hluti borgarbúa sækir enda mikill fólksfjöldi sem býr þar í kring og fyr- irhuguð er mikil uppbygging í næsta nágrenni.“ Nýrri bensínstöð á Granda var hafnað  Minnihlutinn segir að stöðin hefði dregið úr mengun Morgunblaðið/Styrmir Kári Fiskislóð á Granda Þar er að finna nokkrar þekktar verslanir; Krónuna, Byko, Rúmfatalagerinn og Elko. Í nágrenninu eru Bónus og Nettó. Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Í kjölfar frétta þess efnis að Guðni Th. Jóhannesson forseti hafi afþakk- að fylgd handhafa forsetavalds út á Keflavíkurflugvöll hafa sprottið um- ræður um handhafana og hlutverk þeirra. Margar nefndir hafa starfað í gegnum tíðina við endurskoðun stjórnarskrárinnar. Ekki er hægt í fljótu bragði að sjá að þær hafi fjallað um þá grein stjórnarskrár- innar þar sem fjallað er um hand- hafa forsetavaldsins, þ.e. 8. greinina. Í frumvarpi Stjórnlagaráðs til stjórnskipunarlaga, sem ráðið skil- aði til Alþingis í lok júlí árið 2011, er gerð tillaga um breytingu á 8. grein- inni. Óþarft að leysa forseta af í heimsóknum í útlöndum Í frumvarpinu er talað um stað- gengil forseta Íslands í 82. grein en ekki handhafa forsetavalds. Greinin er svohljóðandi: „Geti for- seti Íslands ekki gegnt störfum um sinn vegna heilsufars eða af öðrum ástæðum fer forseti Alþingis með forsetavald á meðan.“ Í skýringum með frumvarpinu segir að 82. greinin fjalli um hand- höfn forsetavalds. Því sé breytt á þá leið að staðgengill forseta verði nú aðeins einn í stað þriggja. „Ekki er gert ráð fyrir að stað- gengil þurfi í tímabundnum heim- sókn um forseta á erlendri grundu í ljósi þess hversu mjög samgöngur og tækni hafa þróast. Staðgengill tekur því aðeins við ef forseti veikist eða forfallast af öðrum orsökum til lengri tíma. Stjórnlaganefnd lagði ekki fram tillögur að breytingum á þessu fyrirkomulagi en í frumvarpi þessu er hins vegar gert ráð fyrir því að forseti Alþingis fari einn með for- setavald í forföllum forseta Íslands. Þessa breytingu skal skoða í ljósi þess að fyrirkomulag um að kalla saman þrjá mismunandi aðila úr stjórnkerfinu til að gegna starfi for- seta er óþjált og þekkist ekki í öðr- um löndum. Jafnframt leggur Stjórnlagaráð til að starfi forseta Al- þingis verði breytt þannig að hann hafi betri burði til að hlaupa í skarð- ið fyrir forsetann.“ Ráðið vildi að forseti Alþingis tæki þetta hlutverk að sér ólaunað. Stjórnlagaráð vildi staðgengil  Forseti Alþingis leysti forsetann af Morgunblaðið/Sigurgeir S 2011 Salvör Nordal afhendir Ástu R. Jóhannesdóttur frumvarpið.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.