Morgunblaðið - 18.08.2016, Page 56

Morgunblaðið - 18.08.2016, Page 56
HAUSTferðir 201656 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. ÁGÚST 2016 Volvo Penta á Íslandi | Brimborg • Bíldshöfða 6 • Sími 515 7070 • volvopenta.is ÞÚ ERT Í ÖRUGGUM HÖNDUM hjá volvo penta á íslandi Öflug Volvo Penta þjónusta Hjá Volvo Penta á Íslandi | Brimborg starfar framúrskarandi teymi sem samanstendur af öflugum fagmönnum Brimborgar og samstarfsaðilum um land allt. Komdu í dag og ræddu við ráðgjafa. HAFÐU SAMBAND Í DAG • Sími: 515 7070 • Netfang: volvopenta@brimborg.is • Ný heimasíða: volvopenta.is Kauptu bestu varahlutina Volvo Penta á Íslandi | Brimborg er með gott úrval varahluta á lager og á mjög hagstæðu verði. Varahlutasérfræðingar okkar veita þér fyrirtaksþjónustu og ráðgjöf við kaup. Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Tölur flugfélaganna benda til þess að landsmenn séu duglegir við að ferðast út í heim. Að sögn Svövu Hjartardóttur, verkefnastjóra pakkaferða hjá Icelandair Holidays, fara haustbókanirnar vel af stað. „Júlí er yfirleitt nokkuð rólegur en í ágúst, strax eftir verslunar- mannahelgi, fara haustbókanirnar að tínast inn.“ Auk þess að bjóða upp á beint flug á fjölda áfangastaða austan- og vest- anhafs leggur Icelandair mikla áherslu á sérferðir þar sem hugsað er fyrir öllum þörfum og íslenskur leiðsögumaður kynnir undur spenn- andi borga og svæða fyrir hópnum. Ein vinsælasta ferðin er til Péturs- borgar, með Pétri Óla Péturssyni. „Þessi ferð hefur núna verið í boði í hartnær tvo áratugi og alltaf verið uppselt. Í ár bættum við við auka- ferð og er nú þegar uppselt í báðar ferðir vetrarins,“ segir Svava og skrifar áhugann bæði á það hvað Pétursborg er fögur og heillandi en ekki síður að Pétur er hokinn af reynslu og þekkingu. „Þetta er þannig borg að það er mikils virði að hafa íslenskan leiðsögumann til taks, bæði til að miðla sögunni en líka til að gæta þess að allt gangi snurðu- laust fyrir sig, s.s. í landamæraeft- irlitinu þegar hópurinn fer landleið- ina frá Finnlandi til Rússlands.“ Listir og rómantík Laufey Helgadóttir er einnig þrautreyndur leiðsögumaður sem hefur áratugareynslu af að taka á móti Íslendingum í París og sýna þeim mest heillandi hliðar þessarar borgar rómantíkur og lista. „Laufey er listfræðingur að mennt og býr og starfar í París. Bæði þekkir hún sög- una sem bíður nánast við hvert fót- mál en fléttar líka listahlið borg- arinnar saman við dagskrána,“ segir Svava en í haust eru í boði tvær Par- ísarferðir í október og jólaferð fyr- irhuguð í desember. Þá geta þeir sem hafa mótorhjóla- og bíladellu heldur betur fundið eitt- hvað við sitt hæfi í sérferðaframboð- inu. Sigurður Lárusson stýrir að vanda ferð á fornbílasýninguna risa- stóru í Daytona í Flórída og Haf- steinn Emilsson leiðir mótor- hjólaferð frá Denver til Las Vegas. „Bandarísku ferðirnar eru ögn dýrari enda um lengra flug að ræða og gist í fleiri nætur á hóteli. Meðal þess sem gefur Daytona-ferðinni sjarma er að hópurinn snæðir saman veglega þakkargjörðardagsmáltíð á bandaríska vísu. Er einnig komin margra ára hefð fyrir mótor- hjólaferðinni þar sem leiðin liggur um Arizona, New Mexico, Colorado og Nevada,“ segir Svava og bætir við að Hafsteinn aðstoði ferðalangana við leigu á mótorhjóli við sitt hæfi. Kvennagleði í Birmingham Leiðsögumennirnir Carola og Guddý fara svo fyrir hópum til Glas- gow og Birmingham. Er Birm- ingham-ferðin ætluð konum ein- göngu en Glasgow-reisan hugsuð fyrir pör. „Birmingham er skemmti- leg borg heim að sækja og staður til að eiga þægilega helgi með vinkon- unum, s.s. með saumaklúbbnum eða kvennahópi úr vinnunni. Nóg er af góðum veitingastöðum, stærð- arinnar verslunarmiðstöð í boði og mjög stutt í allt. Glasgow er að taka á sig jólabúning þegar ferðinni er heitið þangað síðla í nóvember, hægt að njóta lífsins, kaupa nokkrar jóla- gjafir og í boði að skjótast yfir til Ed- inborgar í leiðinni,“ segir Svava. Skemmir ekki fyrir ferðaplön- unum til Glasgow og Birmingham að pundið hefur veikst eftir Brexit- atkvæðagreiðsluna. „Má því eiga von á að geta gert mjög góð kaup í versl- ununum og komast langt með jóla- innkaupin.“ Röð tilboða í vetur Auk sérferðanna verður Ice- landair með fjölda tilboðsferða í gangi yfir veturinn. Tilboðin taka á sig ýmsar myndir og segir Svava t.d. algengt að takist að bjóða upp á hag- stætt flug og fá fjórðu nóttina á hót- elinu ókeypis. „Með því að kaupa til- boðsferð fær fólk gott verð og búið að sjá um bæði flug og gistingu,“ segir hún og bendir t.d. á borgir eins og Brighton og Minneapolis. „Ís- lendingar eru óðum að uppgötva töfra strandbæjarins Brighton á Englandi. Bæði er bærinn fallegur og sjarmerandi og nægilega smár til að megi komast á milli allra staða fótgangandi. Ströndin og mannlífið á bryggjunni er engu líkt og hótelin á betra verði en í London og öðrum stærri borgum. Auðvelt er að heim- sækja Brighton ef flogið er á Gat- wick og einfaldlega stigið upp í lest á flugvellinum sem fer beinustu leið niður í miðbæ Brighton.“ Reiknar Svava með að margir muni vilja nota haustmánuðina til að skoða Chicago, einn af nýjustu áfangastöðum Icelandair. „Mat- armenningin trekkir marga að og Chicago þekkt fyrir pönnupitsurnar sínar. Áhugamenn um íþróttir hefðu líka gaman af að sjá með eigin aug- um leiki bæjarliðanna White Sox, Cubs og Bulls. Ekki skortir versl- anirnar og söfnin, en Chicago þykir líka mikil útivistarborg með fallega garða.“ Sérferðirnar óðum að seljast upp Morgunblaðið/Þórður Ævintýri „Bandarísku ferðirnar eru ögn dýrari enda um lengra flug að ræða og gist í fleiri nætur,“ segir Svava. Notalegheit Kvennaferðin til Birmingham verður eflaust eftirminnileg. Baunin Stórborgin Chicago er einn af nýjustu áfangastöðum Icelandair. Rómans París verður, ef eitthvað er, fallegri í vetrarbúningi.  Þrjár Parísarferðir á döfinni með Laufeyju Helgadóttur  Carola og Guddý stýra kvennaferð til Birmingham  Veiking pundsins ætti að koma sér vel fyrir þá sem vilja gera jólainnkaupin í ferðinni Hallir Töfrar Pétursborgar eru engu líkir. Smolniy-klaustrið er perla. Sæla Brighton er aðeins stutta lestarferð frá Gatwick og yndislegur bær.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.