Morgunblaðið - 18.08.2016, Blaðsíða 62

Morgunblaðið - 18.08.2016, Blaðsíða 62
62 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. ÁGÚST 2016 Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Ekki er erfitt að útskýra hvers vegna Kína heillar svona marga. Langt í austri er þetta dularfulla land á fleygi- ferð inn í framtíðina, ríkt að menningu og sögu, óviðjafnanlegum nátt- úruundrum og risavöxnum stór- borgum þar sem skýjakljúfarnir teygja sig til himins. Er ekki skrítið að Unnur Guðjóns- dóttir skuli hafa tekið svo miklu ást- fóstri við landið að hún hefur í 24 ár staðið fyrir hópferðum til Kína. Þenn- an veturinn skipuleggur Kínaklúbbur Unnar ferð sem varir frá 1. til 19. nóv- ember og liggur leiðin um marga áhugaverðustu viðkomustaði „miðrík- isins“ eins og landið heitir upp á kín- versku. „Þetta er eiginlega óskaferðin ef fólk fer bara einu sinni á ævinni til Kína og viðdvöl á öllum aðalstöð- unum,“ segir Unnur en ferðin felur í sér þrjár flugferðir innanlands í Kína og upplifa ferðalangar bæði miðhlut- ann, suðrið og norðrið. „Við sjáum bæði mismunandi borgir og bygg- ingar, mismunandi landslag og borð- um mjög mismunandi mat.“ Nútími og fortíð mætast Ferðin hefst í Sjanghaí, aðal- viðskipta- og fjármálaborg landsins. „Það er hálfgerður hrepparígur á milli Sjanghaí og Beijing, því á meðan Beij- ing ræður öllu þá er Sjanghaí með peningana. Við fáum að kynnast nú- tímalegri heimsborg sem geymir þó líka hverfi frá Ming-tímanum sem haldist hefur óbreytt til okkar tíma,“ útskýrir Unnur. „Þá er farið yfir til borgarinnar Suzhou. Hún er á svæði þar sem veðráttan er geysilega góð fyrir mórberjarunnaræktun og um leið kjörskilyrði til að framleiða silki því silkiormurinn lifir á runnunum. Þetta er afskaplega fallegt svæði, mik- ið um vötn og liggur leiðin áleiðis til Tongli sem er lítill og bílalaus bær. Þar fara allir um ýmist gangandi, á bátum, eða með rikksjá og hægt að hverfa aftur í tímann.“ Næst heldur hópurinn til Guilin þar sem landslagið þykir engu líkt; flatt og grænt en með smáum og bröttum fjöll- um á víð og dreif sem gnæfa yfir hrís- grjónaökrunum. „Þetta svæði er af- skaplega fagurt og siglum við part úr degi á fljótinu Lí sem rennur síðan út í Perlufljótið. Finnum við svo bæinn Yangshuo sem er líka forn og bílalaus byggð.“ Staðfastir hermenn Þá er flogið til Xían og meðal annars litið á terrakotta-leirherinn sem hefur staðið vörð frá því 200 árum fyrir Krist. „Svo förum við til Beijing sem er lokastaðurinn. Þar er Kínamúrinn heimsóttur, Torg hins himneska frið- ar, Forboðna borgin og Sumarhöllin, en við kíkjum líka á náttúruminjasafn- ið sem er mjög áhrifaríkt og spenn- andi. Þar er meðal annars að finna beinagrindur af 65 milljón ára risaeðl- um sem eru svo heillegar að vantar varla tönn í kjaftinn á þeim.“ Unnur er löngu orðin þekkt fyrir að skipuleggja vandaðar og fræðandi ferðir þar sem vel er hugsað um gesti og tíminn vel nýttur. Þannig leggur Unnur áherslu á að gisting sé mið- svæðis. „Ég vil ekki eyða tíma í að vera að keyra frá úthverfum inn í borgirnar þó að það gæti gert gistinguna ódýr- ari. Fólk á að sjá og upplifa á ferðum sínum frekar en að standa í löngum flutningum,“ segir Unnur en fyrir hverja ferð útbýr hún upplýs- ingapakka um áfangastaðina og sögu landsins og heldur kynningu fyrir hóp- inn áður en haldið er af stað. Hagstæð gengisþróun Að sögn Unnar er ekki eftir neinu að bíða að skoða Kína enda breytist landið svo hratt og aldrei að vita hve- nær hið forna og upprunalega víkur fyrir nútímanum. Ekki skemmir held- ur fyrir að kínverski gjaldmiðillinn, renminbíið, er að veikjast á meðan krónan styrkist. „Renminbí kostaði 19,80 krónur í janúar en núna 17,80 og munar um minna. Er það meðal ann- ars út af þessari hagstæðu geng- isþróun að ég get boðið þeim sem bóka fyrir ágústlok 60.000 kr. afslátt.“ Þá hefur marga kosti að uppgötva Kína í hópferð, þar sem fagmenn sjá um leiðsögn og utanumhald. Tungu- mála- og menningarmunur þýðir að erfiðara getur verið að heimsækja Kína á eigin vegum en mörg önnur lönd. „Þegar ferðast er í hóp sleppur fólk líka við alls kyns umstang eins og að sækja um áritun. Ég fæ hópferða- áritun og þarf ekki önnur gögn frá ferðalöngunum en nafn og fæðing- ardag. Ekki þarf að standa í biðröð á flugvöllunum og ekki einu sinni að skrifa sig inn á hótelin því ég er búin að ganga frá því öllu.“ Góður taktur og enginn asi Þó farið sé víða er þægilegur hraði á skipulagi ferðarinnar. „Þetta er ekk- ert voðalega mikil ganga og þá allt á jafnsléttu og í rólegheitunum. Ég stjórna öllum sem koma nálægt þessu og enginn bílstjóri eða leiðsögumaður sem rekur á eftir mér. Hóparnir geta verið misjafnir og laga ég hraðann að ferðalöngunum og sé til þess að eng- inn heltist úr lestinni. Við byrjum aldrei eldsnemma, fólk þarf ekki að rífa sig upp og getur gefið sér góðan tíma til að njóta æðislegs morg- unverðarins á þessum 4 og 5 stjörnu hótelum þar sem við gistum.“ Aðspurð hvort viðskiptavinirnir fái mikið menningarsjokk segir Unnur að það sé þá aðallega vegna þess að land- ið kemur skemmtilega á óvart. „Við höfum mörg mjög lélega mynd af Kína og fréttirnar þaðan eru oft í leið- inlegri kantinum. Eitt af því sem fólk- ið í ferðunum mínum tekur iðulega fyrst eftir er hvað almenningur lítur vel út og hvað Kínverjarnir virðast ánægðir og brosmildir. Núna er að vaxa úr grasi kynslóð sem hefur alist upp við miklar framfarir og ekki kynnst þeim hörmungum síðustu ald- ar sem eflaust mótuðu eldri kynslóð- ina.“ „Þetta er óskaferðin ef fólk fer bara einu sinni á ævinni til Kína“  Kínaklúbburinn fer í rúmlega tveggja vikna ferðalag í nóvember  Skoða öll helstu undur Kína og upplifa matinn og menninguna á hverjum stað  Kínamúrinn og Sjanghaí meðal viðkomustaða AFP Heimar Kína er gríðarstórt land og hefur hvert hérað sín sérkenni og sögu. Stúlkur í þjóðbúningum stíga hér dans í Xichang í Sichuan-héraði. Morgunblaðið/RAX Uppgötvun Unnur segir það helst koma Íslendingum á óvart hvað Kínverjar eru almennt ánægðir og brosmildir. AFP Miðstöð Flogið er til Sjanghaí, fjármalahöfuðborgar SA-Asíu. Þar skortir ekki lúxusinn og metnaðinn. HAUSTferðir 2016
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.