Morgunblaðið - 14.12.2017, Page 58
Fyrirhuguð ok-
urgjaldtaka Isavia af
hópferðabílum við flug-
stöðina er ekki til að
mæta kostnaði við bíla-
stæðin, heldur til að
safna í sjóð fyrir upp-
byggingu á Keflavík-
urflugvelli. Þetta er
fullkomlega öfugsnúin
leið við að fjármagna
framkvæmdir.
Hin venjulega og eðlilega leið upp-
byggingar er að sækja sér fjármagn,
byggja upp og hafa síðan tekjur af því
sem byggt hefur verið. Ekki öfugt. Ef
eiginfjárstaða Isavia er of veik til að
fjármagna uppbyggingu á Keflavík-
urflugvelli, þá þarf fyrirtækið að
sækja sér aukið hlutafé frá eigand-
anum, íslenska ríkinu. Eða að fá fjár-
festa til að kaupa hluti í fyrirtækinu
og styrkja þannig eiginfjárstöðu þess.
Eigandinn situr hjá
Ríkissjóður, eigandi Isavia, hefur
ekki lagt krónu til uppbyggingar á
Keflavíkurflugvelli eftir 2010, þegar
ferðamönnum tók fyrst að fjölga
verulega og ráðast þurfti í miklar
framkvæmdir til að mæta aukinni
flugumferð. Uppbyggingin hefur al-
farið verið fjármögnuð með not-
endagjöldum. Engu að síður hefur
ríkið gríðarlega miklar tekjur af þeim
ferðamönnum sem um flugvöllinn
fara. Á sama tíma hefur eigið fé
Isavia aukist um 17 milljarða króna.
Flugvöllurinn er mikilvægur
hlekkur í innviðakerfi landsins. Isavia
hefur staðið sig vel við að mæta sífellt
vaxandi flugumferð.
Raunar hefur Isavia
lagt mikla áherslu á að
auka hana, þar á meðal
með hvatagreiðslum til
erlendra flugfélaga. En
ekkert réttlætir að nú-
verandi notendur beri
allan kostnað af fram-
tíðaruppbyggingu vall-
arins og flugstöðv-
arinnar.
Misnotkun á
einokunaraðstöðu
Um 97% ferðamanna fara um
Keflavíkurflugvöll. Óeðlilegt er af
Isavia að nýta sér þessa einokunar-
aðstöðu til að láta ferðamenn greiða í
uppbyggingarsjóð fremur en fara
eðlilegar leiðir fjármögnunar. Óeðli-
legt er að kúga ferðaþjónustufyr-
irtæki til að borga Isavia háar fjár-
hæðir fyrir að fá að veita
viðskiptavinum þjónustu. Fyrirhuguð
gjaldtaka upp á 19.900 krónur fyrir
hvert skipti sem stór rúta tekur upp
farþega er margfalt hærri en á flug-
völlum erlendis. Í London er sam-
bærilegt gjald um 3.900 kr. á Heat-
hrow og 2.400 kr. á Gatwick. Á
mörgum flugvöllum er engin gjald-
taka fyrir aðkomu hópferðabíla enda
um umhverfisvænasta samgöngu-
mátann að ræða.
Ekkert mælir þó á móti því að
greiðsla komi fyrir þjónustu og að-
stöðu á ferðamannastöðum, hvort
sem er við flugstöð Leifs Eiríkssonar,
Seljalandsfoss eða Ásbyrgi. Ferða-
þjónustan hefur lýst því yfir að sjálf-
sagt sé að greiða fyrir virðisaukandi
þjónustu, þar á meðal rekstr-
arkostnað, afskriftir og eðlilega hagn-
aðarkröfu. Óhófleg gjaldtaka umfram
það í skjóli einokunaraðstöðu flokkast
hins vegar undir ofsagræðgi og við
það er ekki hægt að una.
Því verður seint trúað að stjórn-
völd ætli að leyfa ríkisfyrirtækinu
Isavia að stunda fordæmalausa fjár-
kúgun með þessum hætti.
Eftir Þóri
Garðarsson
»Ef eiginfjárstaða
Isavia er of veik til
að fjármagna uppbygg-
ingu á Keflavíkurflug-
velli, þá þarf fyrirtækið
að sækja sér aukið
hlutafé.
Höfundur er stjórnarformaður Gray
Line.
Þórir Garðarsson
Öfugsnúin féþúfa
Isavia á Kefla-
víkurflugvelli
Systir mín sem
verður 30 ára 11.
desember bíður
enn eftir að verða
úthlutað fé-
lagslegri íbúð hjá
Reykjavíkurborg.
Fyrir stuttu kom
Dagur B. Eggerts-
son, borgarstjóri
Reykjavíkur, fram
í fjölmiðlum og
kenndi nágrannasveitarfélögum um
að þau hafi ekki gert nóg fyrir sína
íbúa, til að tryggja nægilegt framboð
af félagslegum íbúðum. Systir mín
hefur beðið eftir að Dagur B. úthluti
sér íbúð, hún hefur ekki beðið Kópa-
vog, Garðabæ, Hafnarfjörð eða Mos-
fellsbæ, hún bíður eftir íbúð í Reykja-
vík. Hve lengi á hún, ásamt mörgum
öðrum, að þurfa að bíða eftir að fá fé-
lagslega íbúð frá Reykjavíkurborg?
Borgarstjóri Reykjavíkur ætti að
sjá sóma sinn að líta í eigin barm í
stað þess að kenna öðrum sveit-
arfélögum um mistök meirihluta
borgarstjórnar Reykjavíkur.
Nú þarf að spýta í lófanna og stytta
biðtíma eftir félagslegu hús-
næði, byggja þarf ný hverfi á
sama tíma og verið er að
þétta byggð. Það hefur verið
sýnt að þétting byggðar er
ekki nóg til að mæta eft-
irspurn eftir fasteignum.
Nóg er af landi til að
byggja á, eins og minnihlut-
inn hefur margoft bent á, en
meirihlutinn neitar að hlusta
á, neitar að hlusta á íbúa
sína, neitar að aðstoða.
Meirihluti meirihlutans er
búsettur í miðbæ Reykjavík-
ur og hefur sýnt fram á að
hann hafi engan áhuga á að huga að
svæðum utan miðsvæðis Reykjavík-
ur. Stefna meirihlutans er að íbúar
Reykjavíkur nær og fjær skuli selja
einkabílinn eða flytja til annarra
sveitarfélaga svo að vandamálið verði
ekki lengur þeirra.
Dagur B. Eggertsson lofaði að
heimilislausir í Laugardalnum fengju
húsnæði á vegum Reykjavíkur og að
sveitarfélagið sem þeir væru skráðir í
yrði rukkað, en hvað ætlar borg-
arstjóri Reykjavíkur að gera fyrir
sína íbúa?
Hefur kæri borgarstjóri lofað sín-
um íbúum og efnt þau loforð? Hann
hefur ekki gert það, tími Dags B.
Eggertssonar er liðinn sem borg-
arstjóra Reykjavíkur, beðið er eftir
afsögn hans.
Meirihlutinn er fallinn. Þessi orð
munu heyrast eftir næstu sveitar-
stjórnarkosningar, þar sem kjós-
endur Reykjavíkur munu átta sig á
því að núverandi meirihluta er ekki
treystandi til að verja hag íbúa sinna,
of lengi hafa íbúar beðið eftir stjórn
sem hefur hag íbúa að leiðarljósi.
Lygum og svikum Dags B. Eggerts-
sonar mun ljúka árið 2018 í sveit-
arstjórnarkosningum.
Svo mikla trú hef ég á íbúum
Reykjavíkur, að þeir muni velja sér
nýjan flokk og nýjan leiðtoga til að
leiða höfuðborg landsins til framtíð-
arinnar til hagsbóta fyrir íbúa sína.
Eftir Kristján
Óla Níels
Sigmundsson
Kristján Óli Níels
Sigmundsson
» Í meira en tíu ár hefur
systir mín, sem bú-
sett er í Reykjavík, beðið
eftir félagslegri íbúð hjá
Reykjavíkurborg – og
enn bíður hún.
Höfundur er fv. frambjóðandi Sjálf-
stæðisflokks í Suðurkjördæmi.
Kristjanoli_1@hotmail.com
Aðgerðarleysi borgar-
stjórnar Reykjavíkur
58 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 2017
Á forsíðu Morg-
unblaðsins 5. desem-
ber sl. er vakin athygli
á alvarleika þess að
heilu húsin séu byggð
án nokkurrar aðkomu
fagmenntaðs fólks
þrátt fyrir að lög í
landinu kveði á um
annað. Einstök fag-
félög iðnaðarmanna í
byggingagreinum hafa til margra
ára lýst þungum áhyggjum af
áhugaleysi stjórnvalda á þessum
málum og tíðum brotum vinnuveit-
enda á iðnaðarlögunum þar sem þeir
láta ófaglærða verkamenn, marga af
erlendu þjóðerni, ganga í störf iðn-
aðarmanna. Ítrekað hefur verið ósk-
að eftir því við viðkomandi stjórn-
völd að þau hlutist til um að
ákvæðum iðnaðarlaga verði fram-
fylgt af festu og að þeir, sem staðnir
verði að brotum, verði látnir sæta
ábyrgð. Til margra ára hefur varla
orðið vart við athugasemdir regn-
hlífarsamtakanna vegna brota á lög-
vernduðum störfum iðnaðarmanna.
Þvert á móti fögnuðu þau nýjum út-
lendingalögum því þá yrði auðveld-
ara að ráða erlent starfsfólk. Sam-
tökin gáfu líka Alþingi umsögn um
lögin og gerðu engar athugasemdir
við að iðnnám yrði fellt brott úr
þeim. Væntanlega telja samtökin að
fagháskólastig og fjórða iðnbylt-
ingin muni leysa öll vandamál fram-
tíðarinnar.
Íslensku iðnaðarlögin nr. 42/1978
eru einstök að þeim þýsku frátöld-
um því þau vernda bæði starfsheiti
og fagmennsku. Þau eru sett til að
tryggja að þeir, sem bjóða tiltekna
þjónustu, hafi þekkingu á því sem
þeir gera. Er það ekki sjálfsögð
krafa?
Nú er ljóst að stórir hópar ófag-
lærðra ganga í fagleg störf löggiltra
iðnaðarmanna við vandasamar og
flóknar húsbyggingar án tilskilinna
fagréttinda. Hverjir munu tapa á
því? Þegar allt kemur til alls eru það
kaupendur gallaðrar vöru sem sitja í
súpunni. Sennilega verður það þó
atvinnuskapandi á komandi árum
fyrir einhverja af þeim hundruðum
laganema dagsins í dag að reka
gallamál fyrir dómstólunum. Nú
liggur fyrir að erlent vinnuafl er
flutt til landsins í meira mæli en áð-
ur, ekki einungis í byggingariðnaði
heldur einnig í matvæla- og þjón-
ustugreinum. Að fenginni reynslu er
ástæða til að ætla að iðnaðarlaga-
brotum fjölgi að sama skapi. Ákvæði
iðnaðarlaganna eru skynsamleg og
sanngjörn en framkvæmd þeirra
hefur einkennst af tómlæti þeirra
sem eiga að framfylgja þeim. Án
skilvirkrar framkvæmdar eru laga-
ákvæði einskis virði.
Á tyllidögum tala stjórn-
málamenn og aðrir, sem telja sig
geta leiðbeint iðnaðarmönnum, um
að efla þurfi virðingu fyrir iðn-
aðinum í landinu. Er hægt að sýna
honum meiri óvirðingu en að láta
það viðgangast athugasemdalaust
að ófaglærðir vinni störf sem krefj-
ast hið minnsta fjögurra ára iðn-
náms?
Látum verkin tala og hættum að
láta aðgerðaleysi lögleiða fúsk.
Eftir Sigurð Má
Guðjónsson og
Helga Steinar
Karlsson
Helgi Steinar
Karlsson
Sigurður Már Guðjónsson, bakara- og
kökugerðarmeistari, Helgi Steinar
Karlsson múrarameistari.
Sigurður Már
Guðjónsson
» Þegar allt kemur til
alls eru það kaup-
endur gallaðrar vöru
sem sitja í súpunni.
Hvað varð af fagmennskunni?
Vertu viðbúinn vetrinum
LÉTTAR – STERKAR – TRAUSTAR
SNJÓKEÐJUR
Hafðu samband og kynntu þér
vöruúrvalið og þjónustuna
Rafhitarar
í skip, hús og sumarhús
Ryðfríir
neysluvatnshitarar
með 12 ára ábyrgð
Hitöld (element), hitastillar,
hitastýringar og flest annað
til rafhitunar
Við erum sérfræðingar í öllu sem
Kaplahrauni 19 • Hafnarfirði
Sími: 565 3265
rafhitun@rafhitun.is • www.rafhitun.is
viðkemur rafhitun.