Morgunblaðið - 18.01.2018, Side 65

Morgunblaðið - 18.01.2018, Side 65
65 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JANÚAR 2018 Morgunblaðið/Hanna sínu sætsúra og ferska bragði. Hefð- bundinn Moscow mule er gerður úr vodka, engiferbjór, og fersku súr- aldini, en það má líka prufa að skipta vodkanum út fyrir brennivín og myndi ég þá nota sítrónu frekar en súraldinið.“ Brennivínið má setja í marga kokkteila, og nota í staðinn fyrir vodka og aðra spíra. „Brennivín er í raun bara vodki sem hefur verið bragðbættur með kúmeni, ekki ósvipað og annað ákavíti sem oftast er kryddað með dilli eða stjörnuanís. Að skipta vodka út fyrir brennivín í Moscow mule er því til þess fallið að gefa drykknum ögn meiri persónu- leika,“ segir Jónas. Sama má prófa að gera við kokk- teilinn Tom Collins sem er bæði eld- gamall, klassískur og einfaldur. „Í hefðbundinn Tom Collins notum við gin, ferskan sítrónusafa, ögn af sykri og sódavatn og hægt að nota brennivín í stað ginsins. Raunar er Tom Collins mjög þægilegur drykk- ur til að prófa nýja spíra og skoða hvaða eiginleikar koma fram þegar þeir eru notaðir í kokkteil.“ Þeir sem vilja enn meiri inn- blástur geta flett upp brennivíns- kokkteilum á Google, en bandarískir barþjónar hafa verið mjög iðnir við að þróa drykki þar sem brennivín er eitt af innihaldsefnunum. „Brenni- vín er núna fáanlegt vestanhafs og hafa seljendur staðið fyrir sér- stökum viðburðum til að hampa bestu kokkteilunum sem nota ís- lenskt brennivín og Reyka vodka,“ upplýsir Jónas. Brennivínið best ískalt Ef áhuginn á brennivíns- kokkteilum er takmarkaður má í staðinn reyna að bera brennivínið fram eins og fagmaður. Jónas gætir þess að geyma brennivínsflöskuna í frysti og bera drykkinn fram eins kaldan og hægt er: „Á Apótekinu förum við þá leið að fylla litla fötu með muldum klaka og setjum glösin í klakabað áður en brennivíninu er hellt í. Þannig tryggjum við að brennivínið er ískalt þegar það er drukkið. Brennivínið þykir betra eftir því sem það er kaldara enda tekur kuldinn burt svolítið af brun- anum.“ Jónas bendir líka á að gera megi áhugaverða kokkteila úr bjór. Er þá aðeins litlu magni af bjór bætt í drykkinn til að gefa rétta bragð- áferð. „En það er lítið hægt að gera til að bragðbæta góða bjóra, enda hafa bruggmeistarar lagt mikla vinnu í að fullkomna bragðið.“ Aðrar áfengistegundir en bjór og brennivín geta passað við þorramat- inn og nefnir Jónas kokkteila eins og Old Fashioned, Manhattan, og hefð- bundinn Moscow mule. „Gott skoskt viskí, eða rúgviskíin bandarísku sem eru ögn krydduð og með mikinn karakter, ættu líka að henta vel með þorramat en síður bandarískt bur- bon enda er það of sætt.“ ai@mbl.is Tilþrif Það sakar ekki að sýna smá kúnstir við kokkteilagerðina.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.