Breiðfirðingur - 01.04.1954, Page 23
BREIÐFIRÐINGUR
13
um í steinboga skammt frá lendingunni. — Iralönd heita
nokkrir samliggjandi hólmar í Svefneyjalöndum, og eru
þeir sennilega kenndir við þessa skozku þræla.
Hallsteini rann svo í skap er hann fann þrælana sofandi,
(sennilega hefur það verið um hádegisbil í steikjandi sól-
arhita) að hann rak þá út á skip sitt, tók þá með sér inn í
Sviðnur og hengdi þá þar í klettagjá við sjóinn. Þar heitir
síðan Gálgi og Gálgavík. Þrælana dysjaði hann síðan uppi
á eyjunni, og er sagt, að mótað hafi fyrir dysjum þeirra
þangað til túnið í Sviðnum var sléttað. Ef til vill mætti
grafa dysjarnar upp enn í dag, til að sanna hinum vantrú-
uðu þessa sögu alla.
Þegar þetta gerðist voru Sviðnur enn óbyggðar. ■—• Eyj-
arnar á Breiðafirði munu hafa byggzt seinna en sveitirnar
í kring um fjörðinn. En kornyrkja og önnur jarðrækt var
stunduð þar af bændum á landi. Til þess benda mvmörg
örnefni út um allar eyjar. Ef til vill hefur akuryrkjan gef-
izt betur þar en í landi, og verið hægra að verja sáðlöndin
þar fyrir ágangi búfjár.
Svo líða tímar fram. Sviðnur byggjast. Sturlungaöld
gengur í garð. Rán og lögleysur fara í vöxt. — Maga-Björn
og félagar hans ræna um Vestureyjar og drepa Játgeir
bónda í Sviðnum. Líklega hefur hann verið ofstopamönnun-
um eitthvað þungur í skauti. En Björn karlinn fékk nú
heldur fyrir ferðina. Fyrir morðið í Sviðnum og önnur
spellvirki í Breiðafirði, var hann nokkru seinna drepinn
suður í Fagurey og urðaður út í Gassaskerjum. Þar sungu
bárurnar breiðfirzku yfir honum sinn líksöng og sleiktu
bein hans lafandi tungum.
Og enn líða langir tímar.
Svartidauði (1402) gekk svo hart um garða í Sviðnum,
að þar dó hvert mannsbarn og féll þá niður byggð þar um
hríð, að sögn. Hversu lengi veit ég ekki. En þegar aftur