Breiðfirðingur - 01.04.1954, Síða 34
24
BREIÐFIRÐINGUR
í búið okkar Ólafur minn, að ég ætti með að gefa einn bát-
garm. — Já, ætli þú hafir ekki átt með það. — Já, ætli að
þú hafir ekki átt með það, sagði Ólafur þá. — Var málið
þar með útrætt, og aldrei minnzt á það framar.
Bæði voru þau hjón vel látin, af öllum sem þeim kynnt-
ust. Heimili þeirra ávallt talið til fyrirmyndar heimila í
eyjunum.
Björg var fædd í Svefneyjum 30. marz 1815, en dó í
Sviðnum 12. marz 1899.
Börn þeirra Sviðnahjóna voru þessi:
1. Bergsveinn, fæddur 23. september 1839.
2. Erlendur, fæddur 15. marz 1841.
3. Guðrún, fædd 14. ágúst 1842.
4. Sigríður, fædd 10. desember 1843.
5. Halldóra, fædd 5. maí 1845.
6. Jóhanna, fædd 16. ágúst 1846.
7. Guðrún, fædd 13. október 1847.
8. Þorbjörg, fædd 17. maí 1849.
9. Kristín, fædd 8. ágúst 1850.
10. Jóhanna, fædd 5. nóvember 1851.
11. Teitur, fæddur 7. júlí 1853.
12. Eyjólfur, fæddur 19. janúar 1855.
13. Einar, fæddur 15. febrúar 1856.
— Auk þessara barna átti Ólafur, með Guðríði Einars-
dóttur frá Vesturbúðum í Flatey, dóttur er Þorbjörg hét.
Hún var fædd 24. apríl 1854.
Nokkur börnin dóu ung, en fleiri komust til fullorðins
ára og er margt manna frá þeim komið.
Bergsveinn Skúlason.