Breiðfirðingur - 01.04.1954, Page 50
Kristín Einarsdóttir
Minning.
Hún var frændkona okkar systkinanna og kölluðum hana
Kristínu frænku.
Hún var fædd í Svefneyjum 2. des. 1876. Foreldrar henn-
ar voru þau hjónin Einar Gíslason, Einarssonar bónda í
Skáleyjum og Þórhildur Hafliðadóttir, Eyjólfssonar hónda
í Svefneyjum. Þau fluttu til Ameríku þegar Kristín var á
barns aldri. Hún ólst því upp hjá afa sínum í Skáleyjum og
seinni konu hans, Kristínu Pétursdóttur. Ung giftist hún
Skúla Bergsveinssyni Olafssonar bónda í Bjarneyjum. Þau
voru þremenningar að frændsemi. Alla sína búskapartíð,
eða um 40 ára skeið, bjuggu þau í Skáleyjum að undan-
teknu fyrsta árinu, sem þau voru í Hvallátrum. Búskapinn
hófu þau af litlum sem engum efnum, en komust áður en
langt um leið með eljusemi og hyggindum í efnaðra bænda
tölu, þeirra, sem þá bjuggu í Breiðafjarðareyjum. Mótbýli
og um leið sambýli þeirra við foreldra mína, var með þeirri
prýði sem bezt verður á kosið. Og fór það að vonum, því
Skúli var sérstakt ljúfmenni, Kristín drengur góður og
andbýlingarnir ekki ádeilnir. Þrjú börn eignuðust þau
hjón: Bergsvein, Gísla Kristinn, húsgagnasmíðameistara á
Þóroddsstöðum í Reykjavík og Ingveldi. Hún lézt á 20.
aldurs ári. Sex börn ung tóku þau í fóstur og ólu upp til
fullorðins ára. Heimili þeirra var jafnan heimkynni rausn-
ar og myndugleika og glaðværðar. Og þó allt í hófi.