Breiðfirðingur - 01.04.1954, Page 104
94
BREIÐFIRÐINGUR
Beinum hug að dagsins striti og störfum,
því starf er margþœtt hér á norðurslóð.
Ef mönnum, dýrum miðlum eftir þörfum,
er margföld gœfa búin vorri þjóð.
Seim og auð ber sœkja í drafnarhendur.
síld, þorsk, ýsu, margþœtt fiskakyn.
Rœsum mýrar, rœktum víðar lendur,
á ritlisi, iðnað haldgott berum skyn.
Haft skal allt á hagkvœmastan máta
og h'.úð að fleiru en framleiðslu og mat;
smíö'um hús og byggjum trausta báta,
bre jftum ull í sokk og haldgott fat.
Að fegrun allri fólkið ótrautt vinni,
svo fágœtt sé að líta bera mörk.
Prýðum bœinn úti jafnt sem inni;
allt skal Nesið hulið furu og björk.
Líkamsrœkt skal örlynd œska stunda,
iðka sund og firrast kveifarbrag.
Spjót og kúlu máttkri hendi munda,
meta glímu og skíðaferðalag.
Framar öllu höldum háttum góðum
hér við þennan kostaríka fjörð.
Gjörum heit á gömlum söguslóðum,
að geyma tungu og unna móðurjörð.
Frjálsra manna framtak ekkert lami,
þvi frelsisást í brjóstum vorum slœr.
Með árum vaxi vegur þinn og frami
þú vinalegi, sólskinsríki bœr.
Ólafur lónsson, frá Elliðaey.