Breiðfirðingur - 01.04.1954, Page 122
„BREIÐFIRÐINGUR“.
Tímaritið Breiðfirðingur heilsar nú einu sinni enn eftir
langa hvíld og höfga. Þótti sumum sem hann mundi naum-
ast vakna aftur af þeim dvala, sem hafði sótt á hann um
skeið.
Stefán Jónsson, námstjóri lætur nú af ritstjórn og flytja
allir, sem hlut eiga að máli honum alúðarþakkir fyrir mik-
ið starf og óeigingjarnt í þágu ritsins. Það vita menn, sem
næst standa að slík verk eru ekki unnin til fjár, heldur af
þegnskap og tryggð til átthaga og uppruna.
„Breiðfirðingi“ var upphaflega ætlað það hlutverk, að
vernda frá gleymsku minningar mætra manna og kvenna
breiðfirzkra og vera auk þess nokkurs konar andleg líf-
taug milli Breiðfirðinga heima og í dreifingu um borg og
sveit.
Þar gætu orðið sýnishorn af hugsun og hugðarefnum,
þroska og reynslu, minningum og vonum breiðfirzkrar al-
þýðu í ljóði og sögu.
Það mun enn reynt að fylgja þessari leið að takmarki,
sem nefna mætti: Breiðfirzk menning byggð á helgum
leifðum heiman að.
Eg fel ykkur „Breiðfirðing“ lesendur góðir, eflið hann
til átaks með skilvísi og góðu efni, sem þið sendið til mín.
Með aðstoð ykkar er unnt að gera hann ágætt tímarit, sann-
an Breiðfirðing að anda og efni. Hann á eitthvert erindi á
öll breiðfirzk heimili heima og heiman.
Ritstjórinn.