Breiðfirðingur - 01.04.1957, Blaðsíða 5
ÞÖRÐUR JÓNSSON A FIRÐI:
Rekstrarferð um aldamótin
Um aldamótin síðustu var kominn vorhugur í bændur í
Múlahreppi, þar sem þeir voru búnr að mynda búnaðarfé-
lag þá fyrir 5 til 6 árum. Voru einn til tveir búfræðingar frá
Olafsdal á ári hverju við jarðabætur í hreppnum frá vori
til hausts,Jarðabæturnar voru þúfnaslétta og túngirðingar
úr torfi og grjóti, en mestmegnis grjótgarðar, ýmist ein eða
tvíhlæðir, að minnsta kosti tvíhlæðir upp undir miðju.
Um þetta leyti var myndað Pöntunarfélag Dalamanna
fyrir atbeina Torfa Bjarnasonar í Olafsdal, hins landskunna
athafnamanns^ Fleiri mætir menn við Breiðafjörð heittu sér
og fyrir stofnun pöntunarfélaga, og má þar nefna séra Guð-
mund Ouðmundsson í Gufudal. — Pöntunarfélögin breidd-
ust óðfluga út, og fyrir aldamótin var búið að stofna pöntun-
arfélag í Múlasveit. Allir fundu, hve mikill munur var að
fá vörur handa heimilum sínum einu sinni á ári hverju á
miklu lægra verði, heldur en að verzla við kaupmenn með
því verzlunarlagi, sem þá tíðkaðist. Ekki 'átti þetta hvað
sízt við um fátæka bændur, sem urðu að knýja á náðir kaup-
manna hverju sinni, er þeir þurftu á úttekt að halda. Ekki
var að tala um um að fá peninga hjá þessum verzlunum,
hvernig sem hagur bænda stóð. Kom það sér illa fyrir allan
þorra manna, þar sem breyting var að verða á verzlunarmál-
um og ýmsum fleiri sviðum til þróunar og aukinna fram-
fara á hag almennings.
Til þess að geta haldið pöntunarfélagsskapnum áfram,
varð það að ráði að hefja fjársölu til Isafjarðar um og