Breiðfirðingur - 01.04.1957, Blaðsíða 72
70
BREIÐFIRÐINGUR
Mostrarskegg hafi í upphafi tekið þetta ágæta selland fyrir
sjálfan sig, því að það vantaði hann tilfinnanlega til þess
að geta rekið rausnarbú á Hofstöðum. Eða hví skyldi hann
ekki hafa þurft að hafa selland, eins og hinir landnáms-
mennirnir í sveitinni, Björn Austræni og Auðunn Stoti?
Síðan gat selland þetta hafa gengið til afkomenda hans að
Helgafelli. En þetta er aðeins tilgáta, sem við engin sögu-
leg rök hefur að styðjast.
Selskarðssel í Arnarstaðalandi: Norðan við Vogaskeið
er skarð, millum tveggja ása, sem Selskarð heitir. Þar eru
mildar og allgreinilegar seltóftir. Þar nærri eru allmiklar
fitjar sem sjór flæðir yfir um stórstreymi. Eru þær hið mesta
kostaland fyrir búsmala. Selið er svo skammt frá Arnar-
stöðum, að lítt er trúlegt, að það hafi verið notað þaðan,
enda munu Arnarstaðir ekki hafa orðið sjálfstæð jörð
snemma á öldum. Um það segir jarðb. A. M. svo: „Jörðin
tíundast engum. Er eign kirkjunnar á Helgafelli, byggt af
heimalandi staðarins og óskipt“. Liggur því næst að halda,
að selið hafi verið notað annað hvort frá Hofstöðum eða
Helgafelli. Einnig mætti hugsa sér, að bóndi á Grunna-
sundsnesi hefði leigt þar selland. En hvernig sem þessu er
varið, er víst, að í Selskarði hefur langa tíð sel verið starf-
rækt.
Helgusel: — Norðanvert við skarð milli tveggja ása, á
landamerkjum Þingvalla og Dældarkots, (sem nú heitir
Borgaland), er svonefnd Helgusel. Þar sást glöggt fyrir
fornum rústum til skamms tíma. Fyrir nokkrum áratugum
var vegur lagður gegn um skarðið, og röskuðust rústirnar
nokkuð við það. Enn sér þó lítið eitt fyrir þeim. Ekki er
unnt að vita, hvaðan sel þetta hefur verið notað. Lítið kosta-
land er þar til og sízt fyrir búsmala. Lang líklegast er, að
sel þetta hafi verið tilheyrandi bóndanum í Skorey, en þær
liggja þar örskammt undan landi. I jarðabók A. M. segir