Breiðfirðingur - 01.04.1957, Blaðsíða 62
60
BREIÐFIRÐINGUR
Huldufólk í Ásgarðsstapa.
Framan við Sælingsdal, á mýrunum fyrir neðan Ásgarð,
er Ásgarðsstapi. Þar er huldufólksbyggð, og er um það
þessi saga:
Húsfreyja í Ásgarði. var eitt sinn ein frammi í búri á að-
fangadag jóla. Kom þá til hennar ókunnugur maður, tók
í hönd hennar og leiddi hana út og niður að stapanum. —
Stapinn var nú opinn og gengu þau þar inn. Þar lá álfkona
í barnsnauð. Mennska konan hjálpaði henni fljótt og vel.
Fékk huldukonan henni þá svartan stein og biður, að hún
strjúki honum um augu barnsins. Konan gerði það, en brá
steininum í laumi á annað auga sitt. Þótti henni þá við
bregða, því að upp frá því sá hún með því auga í jörðu
og á og ekki síður anda en menn. Er nú ekki að orðlengja
það, að 10 ár í röð eftir þetta var hún sótt í stapann, til þess
að sitja yfir huldukonunni, en seinast dó huldukonan af
barnsförum. Mörgum árum seinna kom húsfreyjan í Ásgarði
til Stykkishólms. Þar var þá kaupstefna. Þar sá hún álfa-
manninn úr stapanum, og varð henni þá að orði: „Þú ert þá
hérna“. En um leið og hún sleppti orðinu, rak álfamaður-
inn fingurinn í hið skyggna auga hennar, svo að hún varð
blind á því til æviloka.
Hvemig akur í Skeggjadal byggðist.
Hvammur í Dölum stendur, eins og kunnugt er, í dal
þeim, er Skeggjadalur nefnist. Dregur dalurinn nafn af
Skeggjasonarsyni Þórðar gellis, sem bjó í Hvammi. Auk
Hvamms eru nú tveir bæir í dalnum. Skerðingsstaðir og
Akur. Þjóðsaga er til um það, hvernig Akur byggðist fyrst.
Er hún á þessa leið.
Forynja nokkur, sem Gullbrá hét, náði með brögðum
kaupi á landi hjá ráðsmanni Auðar djúpúðgu. Reisti hún
þarna bæ og hof, og var bærinn þá nefndur Hof-Akur. Auði