Breiðfirðingur - 01.04.1957, Blaðsíða 20
18
BREIÐFIRÐINGUR
klst. í senn og hvíldartímar verða fjórir nær 2 stundir hver.
Stöðin verður dýrari í stofnkostnaði með þessari tilhögun,
því að gera veður ráð fyrir tvöföldu aðrennsli og frá-
rennsli. Þó hafa þær framfarir orðið í véltækni síðari árin
að koma má þessum rásum fyrir á einfaldan hátt og smíð-
aðir hafa verið með stillanlegum spöðum, er starfað geta
á báðum föllum með sömu snúningsátt.
En ókosturinn við þessar stöðvar er einkum sá, að þær
þurfa að leggja niður starfið á biðtímunum um liggjandana.
Hafa menn því leitað þessu úrbóta og hafa komið fram ýms-
ar hugvitsamlegar tillögur um sjávarfallastöðvar, er starf-
að gætu stöðugt. Er þá ætlazt til að nota tvær eða fleiri uppi-
stöður, er starfað geta saman eða á víxl.
Það hefur mikið verið rætt og ritað, hvernig orkan frá
sjávarfallastöðvum yrði hagnýtt og er nú talið, að helzta
leiðin sé eð láta sjávarfallaorkuna inn í stórt landsveitu-
kerfi, sem getur tekið við henni jafnóðum, þegar hún gefst,
hvort sem sjávarfallastöðin starfar slitrótt eða stöðugt, en
láta aðrar stöðvar, sem tengdar eru við kerfið taka á sig
þær álagsbreytingar, sem af samstarfinu hlýzt. Verða þess-
ar samstarfsstöðvar þá að vera samtals tiltölulega miklu
aflmeiri en sjávarfallastöðin og hafa skilyrði til að spara
ýmist elsneyti, sem orku sjávarfallastöðvarinnar nemur eða
hafa nóg miðlunarrúm handa framrennsli vatnsaflstöðv-
anna til aðt geta hagnýtt það að fullu.
Margur mun nú spyrja, hvernig háttað muni vera í þessu
efni hér við land. Er þá skemmst frá því að segja, að hæðar-
munur sjávarfalla er ekki mikill hér við land á móts við þá
staði, sem rannsakaðir hafa verið erlendis og taldir líklegir
til virkjunar. Mestur er munurinn við vesturströnd Islands.
Þar er víða talið, að munurinn sé 2 m. í smástraumi upp í
4 m í stórstraumi. Þetta er þó minna en helmingur þess, sem
talið er við Ermasund og Fundyflóa. A Norðurlandi er hæð-