Breiðfirðingur


Breiðfirðingur - 01.04.1957, Side 42

Breiðfirðingur - 01.04.1957, Side 42
Kvöldljóð Nú líður sól að sævardjúpi og sveipar aftanroði fjöll og dal. Esjan skartar skærum geislahjúpi og skín á Snæfellsjökli roðatraf. En lognaldan við lága ströndu hjalar, og ljúft um fegurð sumarkvöldsins talar, er sólarljóminn svási jörðu gaf. Úti á hafi blika segl á bárum í blíðum þey þeir sigla landi frá. Þörf er ei að þreyta hönd á árum, þreytan hverfur, ljómar gleði á brá. Sælt er nú að sigla um djúpið bláa, sækja matbjörg handa sinni þjóð. Björgin vex í bátnum þeirra smáa og bráðum heim þeir snúa, ef veiði er góð. Nú leggur vornótt bláa blæju sína á byggð og fjöll, á haf og strönd og dal, en yzt í vestri aftangeislar skína og asúrblámi fer um himinsal. Þá geng ég heim frá ströndu, hrifni, hljóð, og hugsa um, hvað þú, móðir jörð, ert góð, ef mennirnir þér aðeins ekki spilla, en af því góða huga og hjarta fylla. J?óra M. Stefánsdóttir.

x

Breiðfirðingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Breiðfirðingur
https://timarit.is/publication/1303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.