Breiðfirðingur


Breiðfirðingur - 01.04.1957, Side 6

Breiðfirðingur - 01.04.1957, Side 6
4 BREIÐFIRÐINGUR eftir aldamótin. Yar féð selt á ísafirði fyrir peninga. Upp- hafsmenn þessa voru séra Guðmundur í Gufudal og Þórður Arason, bóndi á Kletti í Kollafirði. Þessi háttur komst einnig á í Múlasveit, en þó var miklu færra fé rekið þaðan heldur en úr Gufudalssveit, en þó um hundrað kindur eða svo á ári hverju. — Eg valdist til þessara fara á hausti hverju um fjögurra ára skeið. Var fé úr báðum hreppun- um rekið í einum hóp norður og voru í hópnum um 400 kindur, stundum yfir og stundum undir. Rekstrarmenn voru fjórir lil fimm, og tók fimm daga að reka alla leiðina til Isafjarðar. I þessum ferðum hrepptum við oft vond veður. Man ég eftir ein usinni, að við vorum veður tepptir á Kirkju- bóli í Skutulsfirði hálfan annan dag vegna snjóbyls af norðri. Varð féð brynjað sem kallað er, þar sem krapahríð var fyrst, en síðan gerði hart frost er upp birti. Að enduðum þessum inngangi langar mig til að segja frá einni rekstrarferð af þeim fjórum, er ég tók þátt í Ferðin hófst á því, að sá hópur, er ég hafði til meðferðar, var rekinn að Kletti í Kollafirði, og átti ferðin að hefjast þaðan morguninn eftir. Var sá dagur tekinn snemma, því að allt féð var hýst í nátthaga, svo að engar tafir voru að byrja ferðina. Fyrst varð að reka féð upp á Klettshálsinn; er það ekki mjög bratt, heldur áframhaldandi halli að Rauðuborg. Það an er stutt á Skálmardalsheiði, sem er milli Skálmardals og Gerfidals. Gerfidalur liggur inn frá ísafirði, og er mjór fjallgarður á milli hans og ísafjarðardala, sem liggja upp frá botni ísafjarðar. Frá Rauðuborg var rekið eins og leið liggur að Pálsvötnum og þaðan niður með Torfsgili, niður á eyrarnar fyrir ísafjarðarbotni. Þar var áð og féð látið bíta í hálfan annan til tvo tíma, þegar áningunni var lokið, var næst fyrir að reka féð yfir fyrstu ána á leiðinni, ísafjarðará. I rigningartíð var hún venjulega á sund á fénu og á mönnun-

x

Breiðfirðingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Breiðfirðingur
https://timarit.is/publication/1303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.