Breiðfirðingur


Breiðfirðingur - 01.04.1957, Page 77

Breiðfirðingur - 01.04.1957, Page 77
BREIÐFIRÐINGUR 75 veldi, upp frá dapurri heimþrá og duldum söknuði yfir horfnum ástvinum og æskustöðvum, er hún kann að hafa horið í brjósti. Seljadalur á Vatnaheiði, ásamt hinum fornu seltóftum, hefur nokkra sérstöðu meðal slíkra staða hér á landi. Hann geymir eflaust í skauti sér dulin fótspor írskrar konungs- dóttur, sem hlaut þau ævikjör að verða fyrsta húsfreyja í Hraunsfirði og ein af formæðrum Islendinga. Horn: Land jarðarinnar náði frá Hraunsfjarðará og til endimarka landnáms Auðuns stota að austan. Þetta var góð bújörð, enda metin jafnhátt Hraunsfirði í jarðabókum. Sel jarðarinnar stóð nokkurn spöl austur frá hálsinum, við lít- inn læk og á skjólsælum stað. Jarðabók Árna Magnússonar getur selsins á þessa leið: „Selstaða góð í heimalandi.“ A 18. öld var Horni skipt í tvær sjálfstæðar bújarðir. Hin nýja hújörð hlaut nafnið Selvellir, enda var bærinn reistur þar, sem selið hafði áður staðið. Eftir skiptin bar Horn nafnið „hálft Horn“ í jarðabókum. Nú hefur verið getið þeirra selja, sem vitað er um hér. Vafalaust hafa þau verið fleiri, þótt nú sér þau týnd. Það er t. d. furðulegt, ef Drápuhlíð hefur ekki haft selstöðu á Hraundal, þar sem jörðin átti ágætt afréttarland. Um alda- mótin 1700 voru 13 eyjajarðir í ábúð í Helgafellssveit. Jarðabók A. M. getur þess, að 11 af þeim verði að kaupa selstöðu á landi. Nú eru ekki þekktar með vissu selstöður nema tveggja þessara jarða. Þessu líkt mun vera í öðrum byggðarlögum. Hér er mikið þjóðfræðilegt verðmæti horfið í gleymskunnar djúp. Það er því ráð að spyrna við fótum og reyna að bjarga því, sem bjargað verður. Allar fremstu menningarþjóðir leggja kapp á það að vernda þjóðminjar sínar, stórar og smáar, og halda þeim í heiðri. Þær trúa því, að ef tengslin milli fortíðar og framtíðar eru afrækt, sé skammt til ófarnaðar. Það, sem hér þarf að gjöra, er

x

Breiðfirðingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Breiðfirðingur
https://timarit.is/publication/1303

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.