Breiðfirðingur


Breiðfirðingur - 01.04.1957, Page 82

Breiðfirðingur - 01.04.1957, Page 82
30 BREIÐFIRÐINGUR árg. ritsins ljósprentaðan á þessu liðna ári, en hann hafði verið ófáanlegur árum saman. Svo að nú fæst ritið í heild og er hin eigulegasta heimild um menn og menntir Breið- firðinga síðustu tvo áratugina. Vildi ég hvetja sem flesta félagsmenn til að eignast rilið allt, en það fæst með sæmi- legum kjörum hjá Jóni Júl. Sigurðssyni og mun hann segja ykkur nánar frá þessu. Tala fullgildra félagsmanna mun vera nálægt 600 manns og er félagið enn fjölmennasta átthagafélag landsins, að því er ég bezt veit, og auðugasta. Vil ég eindregið hvetja félagsmenn til að fá börn sín uppkomin með sér í félagið og tryggja þannig áframhaldandi áhrif heiman að á hug þeirra og hjarta. Mun það vænlegt til heilla og farsældar. Eg þakka svo öllum, sem lagt hafa Breiðfirðingafélaginu og hugðarefnum þess lið og fært því krafta sína á einn eða annan hátt, en einkum þakka ég samstarfsmönnum mínum í stjórninni, sem hver á sinn liátt hefur lagt sig fram til samstarfs og framtaks af fórnfýsi og lipurð, sönnum félags- anda og árvekni, svo að engan skugga ber á, þegar litið er til baka. Heill hverjum þeim, sem ber heiður og heiðríkju, festu og tryggð breiðfirzkra byggða með sér, hvar sem að störf- um er staðið, svo að hvarvetna megi segja um Breiðfirðing, heima eða heiman: að liann sé drengur góður og vaxandi. Á. N. BREIÐFIRÐINGUR TÍMARIT BREIÐFIRÐINGAFÉLAGSINS Ritstjóri: Rrtlíus Níelsstm, Sólheinium 17. Sími 33580. Framkvænidarstjóri: Jón Júl. SigurSsstm, Lynghaga 18. Sími 22555. V-----------------------------------> 8

x

Breiðfirðingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Breiðfirðingur
https://timarit.is/publication/1303

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.