Skírnir - 01.09.2012, Blaðsíða 149
SKÍRNIR AF HVERJU ERU KONUR MEÐ FÆTUR? 409
hans við nýja (hvíta) starfsmenn, fólk sem hann var að kynnast. Til-
raunin heppnaðist þó ekki betur en svo að einn nýju starfsmann-
anna kvartaði undan brandaravalinu svo hann hlaut ákúrur fyrir frá
yfirmanni sínum. Brandarar eru að þessu leyti vandmeðfarnir. En á
móti eru þeir að stórum hluta lausir við þau mótunaráhrif og þá
ritskoðun sem einkennir opinbera menningu, en sem dæmi um slíkt
má nefna karlrembubrandara og stórslysabrandara sem margir hafa
heyrt og sagt um ævina en fáum þykir við hæfi að setja á prent, segja
í útvarpi eða á fjölmennari samkomum. Brandarar ganga þó engu að
síður manna eða hópa á milli svo lengi sem þeir þykja eiga erindi
við fólk. Brandarar úreldast hins vegar eða detta úr umferð þegar
þeir eiga sér ekki lengur hljómgrunn. Nýlegir brandarar gefa því
vísbendingar um hugðarefni stærri eða minni samfélagshópa sam-
tímans. Því geta brandarar gefið okkur aðra mynd af „almennings-
álitinu"5 eða þankagangi fólks en þá sem fjölmiðlar eða skoðana-
kannanir draga jafnan upp.
1.1. Söfnun brandara innan þjóðfrœði við Háskóla Islands
Frá árinu 2000 hefur námskeiðið „Þjóðfræði samtímans: Álfar, inn-
flytjendur og hryðjuverkamenn“ verið kennt alls sex sinnum við
Háskóla Islands.6 I námskeiðinu hafa nemendur og kennarar
kannað birtingarmyndir þjóðfræðaefnis í samtímanum en megin-
þáttur námsmatsins hefur verið söfnunarverkefni þar sem hver nem-
andi safnar þremur dæmum á viku um hverskyns þjóðfræðaefni sem
er í umferð. Samtals eru dæmin nú hátt á þriðja þúsund og þar á
meðal eru 649 brandarar. Efnið hefur nú verið flokkað, greint og
lyklað í gagnagrunn í von um að það geti nýst sem aðgengilegar
heimildir fyrir ýmiskonar rannsóknir. Börn, dýr, dauði, elli, for-
dómar, frægð, fyllirí, gort, innflytjendur, mannát, kynin, ljóskur,
peningar, prestar, skyndibitastaðir, tungumál, útlitsdýrkun og
5 Hér er vísað til almenningsálitsins eins og það kemur fyrir í skrifum Bourdieu
(2007: 61-81).
6 Þjóðfræðingurinn Valdimar Tr. Hafstein kenndi námskeiðið 2000, 2003, 2005,
2007 og 2009. Námskeiðið var síðast kennt á vorönn 2012 af greinarhöfundi sem
einnig var aðstoðarkennari Valdimars 2007 og 2009.