Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.2005, Side 103

Tímarit Máls og menningar - 01.02.2005, Side 103
Bókmenntir Aðgát skal höfð ... Jóhann Sigurjónsson var gerður að goðsögn í lifanda lífi og margir urðu til að leggja sitt lóð á þá vogarskál. í bók sinni reynir Jón Viðar Jónsson að svara spurningunni: hvernig var Jóhann Sigurjónsson í raun og veru? Þessari spurn- ingu fylgir hann effir af mikilli einbeitni og hikar ekki við að nefna kynhneigð, drykkju- og spilasýki, fjármálaóreiðu, svik, afbrýðisemi og annað slíkt. Höf- undur segist nota sálgreiningu við lestur sinn á verkum Jóhanns en allt er það með nokkuð óljósum hætti. Jón segir: Af þessu leiðir að sú aðferð, sem er að mínum dómi vænlegust til skilnings á skáldskap Jóhanns, hlýtur að taka mið af aðferðum og kenningum nútíma sálvísinda.... sjálfsagt gæti sálfræðingur eða geðlæknir gert sér mat úr því að skilgreina þessi umbrot sálar- innar læknisfræðilega, m.a. með tilliti til fjölskyldusögunnar; það sem ég hef um málið að segja getur ekki byggst á öðru en leikmannsþekkingu minni. En ég sé enga ástæðu til þess að biðjast afsökunar á henni, fyrirfram a.m.k., enda er ekkert nýtt að fræði- menn í listum og bókmenntum grípi til sálgreiningar í bland við aðrar aðferðir. (10) Þetta er býsna mótsagnakenndur texti. Það er eins og verið sé að svara væntan- legum árásum. Hvaða árásum? Það er hárrétt að bókmenntafræðingar hafa notað sáigreiningu í rannsóknum sínum í ótal formum í næstum hundrað ár. Á því þarf enginn að biðjast afsökunar. En fyrirvararnir eru fleiri: Til að átta sig á þessum djúpmynstrum í skáldskap Jóhanns er óhjákvæmilegt að styðj- ast við hugmyndir upphafsmanna nútíma sálvísinda, manna eins og Sigmunds Freud og Carls Gustavs Jung. Ég ítreka það, sem ég sagði í formálanum, að ég hef enga sér- þekkingu á fræðum þeirra, en helstu hugtök þeirra eru löngu orðin sjálfsagður þáttur í hugarheimi venjulegs nútímamanns. (44-45) Það er frekar óþægilegt þegar höfundar gera svo lítið úr þekkingu sinni og hlýtur að hafa neikvæð áhrif á lesanda, og í þessu tilfelli eru ailir þessir fýrirvarar alveg óþarfir. Jón Viðar vitnar tvisvar sinnum í rit Jungs en aldrei til neinna verka Freuds svo að seint yrði hann ásakaður um að fara þar rangt með tilvitnanir eða túlkanir. Það er talað almennt um að túlkun hefði orðið á ákveðinn veg „Ef Freud hefði komist í verkið ...“ (113) og það er talað um að „Ef við grípum enn upp gleraugu Freuds ...“ (198) Höfundur hefði ekki þurft að benda á að þetta er alþýðleg nálgun og fræðilegt gildi þessarar bókar liggur fyrst og fremst í leik- bókmenntasögulegu framlagi hennar sem er ærið. Eins og áður segir spyr Kaktusblómið og nóttin um málefni sem sumar ævi- sögur þegja yfir. Til dæmis: Hvaðan kom Jóhanni næmleiki hans á kvenlegt eðli? Bjó hann yfir því beina sambandi við kvenlega þætti sjálfsins sem sumir telja að einkenni marga mikla listamenn? Var hann jafnvel að einhverju leyti „bisexual“, eins og Gunnar Gunnarsson, vinur hans, gefur fínlega í skyn í Fjallkirkjunni? Tilfinningar hans gagnvart bestu vinum sínum gátu auðsæilega orðið svo heitar að það minnti a. m. k. suma á sjálfa ástina. (46) TMM 2005 • 1 101
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.