Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.2005, Page 104

Tímarit Máls og menningar - 01.02.2005, Page 104
Bókmenntir Þetta eru skiljanlegar vangaveltur í bók sem íjallar um síðustu áratugi nítjándu aldar og upphaf þeirrar tuttugustu þar sem gömul gildi voru að bresta, allt virt- ist leyfilegt ef menn vildu taka áhættuna og axla sektarkenndina sem því fylgdi. í samanburði við það fordómaleysi sem þá var víða á döfinni verður hins vegar einkennileg augljós óvild Jóns Viðars Jónssonar í garð Ingeborg Blom, eða Ib eins og hún var kölluð. Þetta kemur oft fram í ályktunum sem virðast byggja á veikum forsendum. Til dæmis mætti nefna þá tilgátu höfundar að skáldgáfa Jóhanns hafi brotist fram ótrufluð í Merði Valgarðssyni vegna þess að hann hafi verið að losna undan ofurvaldi ástarinnar á Ib, - sem að sögn Jóns Viðars byggðist á gagn- kvæmri blekkingu! (279) Ib er kölluð til ábyrgðar fyrir að hafa ekki haldið Jóhanni frá drykkjunni og sökuð um að hafa „brennt hann upp“. Þó er ekki hægt að sjá af bók Jóns Viðars að Jóhann hafi þurft hjálp til þess. Því mætti bæta við að bréf Jóhanns sem birt eru í bóJdnni bera vott um mjög einlæga ást hans á Ib. JáiJóns Sá Jóhann sem Jón Viðar lýsir er innst inni alltaf á leiðinni heim til mömmu en veit þó vel að sú leið er ekki fær. (50) Jón leitar að rótum ritverka Jóhanns í afstöðu hans til foreldra sinna og segir skáldskap hans sprottinn upp úr tvíbentri afstöðu til foreldranna. Öðrum þræði hlýtur Jón hér að vera að tala um afstöðu hans til kynhlutverkanna og vissulega er Jóhann ekki einn um að hafa verið tví- stígandi gagnvart þeim vanda. Feðraveldi hins íslenska bændasamfélags stóð frammi fýrir ógnvekjandi breytingum á þessum tíma. Kvenfrelsisbaráttan var hafin og Bríet farin að fýrirlesa um réttindi kvenna í Reykjavík (1888). Ekkert barna Sigurjóns á Laxamýri átti möguleika á því að þóknast karlinum. Hans tími var liðinn og hans líkar að hverfa. Vinnufólkið streymir rétt fyrir aldamótin vestur um haf og í þéttbýli. Auður Laxamýrarbóndans stenst ekki samkeppni við nýja atvinnuhætti. Jóhann fer til náms á Sauðárkróki 15 ára gamall, árið 1895. Laxamýri hlýtur að hafa smækkað og breyst við þá dvöl og ýmis sannindi bernskunnar verið nokkrum vafa undirorpin eftir hana. Þaðan liggur leiðin í Lærða skólann í Reykjavík sem vafalaust hefur varpað óhagstæðu ljósi á Sauðárkrók. Hann sest síðan að í Kaupmannahöfn og enn hlýtur það að smækka sem að baki er. Sterk einstaklingshyggja er ríkjandi í túlkun Jóns Viðars á Jóhanni Sigurjóns- syni. Skáldskapur Jóhanns á að mati Jóns einungis rót sína í honum sjálfum og hann á rætur sínar í fjölskyldunni sem einnig hefur sterk einkenni og stendur í átökum við umhverfið. Þessi einstaklingshyggja Jóns gengur svo langt að hann vitnar í prýðisgóðan og skarplegan texta Gunnars Gunnarssonar og leggur hann út sem illgirni, segir að Gunnar sé að „hefja sig á stall“ vegna þess að hann bendir á nokkra sameiginlega drætti í fari meintra snillinga samtímans. Jón segir að Gunnar sé að gefa í skyn að tíðarandinn hafi verið ein helsta undirrótin að harmleik Jóhanns, og það tel ég rétt hjá Gunnari. Jóhann var ekki aðeins einn helsti merkisberi síns tíma, hann var líka barn hans svo um munar. Vinsælustu hugmyndir samtímans blómstruðu fagurlega í skáldskap hans. Um hann mætti 102 TMM 2005 • 1
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.