Fréttablaðið - 19.03.2016, Blaðsíða 21
Fótbolti Það er enn óvíst hvort
Lars Lagerbäck muni þekkjast boð
Knattspyrnusambands Íslands
um að halda áfram starfi sínu sem
landsliðsþjálfari karlaliðsins næstu
tvö árin. Núverandi samningur
Lagerbäcks rennur út í sumar.
Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ,
hefur rætt við Lagerbäck um fram-
haldið og vilji hans er skýr. Geir vill
halda Lagerbäck í þjálfarateymi
íslenska landsliðsins þar sem hann
hefur deilt aðalþjálfarastöðunni
með Heimi Hallgrímssyni.
„Það er ekkert ákveðið,“ sagði
Lagerbäck á blaðamannafundi KSÍ
í gær. „Ég vil aðeins bíða og sjá til
hvernig mér líður. Ég vona að það
verði ekki löng bið því KSÍ hefur
sýnt mér mikla þolinmæði. En ég
þarf tíma til að átta mig á minni
stöðu. Þessu starfi fylgja mikil
ferðalög og ég er ekki að yngjast.“
Minni óvissa vegna Heimis
Hann segir mikilvægt að framtíð
landsliðsins skýrist sem fyrst en að
það hjálpi til að vitað sé að Heimir
Hallgrímsson verði áfram landsliðs-
þjálfari, hvort sem Lars fylgi honum
inn í næstu undankeppni eða ekki.
„Ég vildi gjarnan halda áfram því
ég hef notið þessara fjögurra ára.
Þetta hefur verið frábær tími. En ég
þarf að skoða mína stöðu og íhuga
hvaða niðurstaða er best fyrir mig,
landsliðið og íslenskan fótbolta.“
Geir sagðist sáttur við þau svör
sem hann hafði fengið frá Lager-
bäck og að KSÍ sé reiðubúið að bíða.
„Ég hef rætt við alla þjálfarana.
Draumateymi KSÍ til að leiða Ísland
áfram inn í næstu undankeppni
situr hér við þetta borð,“ sagði Geir
og benti á þá Lagerbäck, Heimi og
Guðmund Hreiðarsson markvarða-
þjálfara. „Við munum sjá hvað gerist
en allar dyr eru opnar eins og er. Ef
við náum að halda okkar drauma-
teymi þá væri það mjög ánægjuleg
niðurstaða fyrir KSÍ.“
Lagerbäck kom Íslandi í umspil-
ið fyrir HM í Brasilíu þar sem strák-
arnir okkar töpuðu fyrir Króatíu en
undir stjórn hans og Heimis komst
Ísland beint inn á EM í Frakklandi
þar sem liðið lagði meðal annars
Holland tvívegis að velli.
Útilokar ekki annað starf
Lagerbäck verður 68 ára skömmu
eftir að EM lýkur í sumar. En hann
útilokar ekki að taka að sér annað
starf, þó svo að hann myndi hætta
með Ísland í sumar.
„Ég vona að mér beri gæfu til
að setjast í helgan stein en samt
sem áður vil ég ekki útiloka neina
möguleika, ef eitthvað spennandi
kæmi upp. Það gæti vel verið eitt-
hvað hlutastarf tengt knattspyrnu
og væri heimskulegt af mér að loka
á alla aðra möguleika strax.“
eirikur@frettabladid.is
Ég er ekki að yngjast
Lars Lagerbäck vildi gjarnan halda áfram að þjálfa íslenska landsliðið næstu tvö
árin en er ekki enn reiðubúinn að gefa KSÍ svar um framhaldið. Samningur hans
rennur að óbreyttu út eftir EM í sumar, þegar Lagerbäck verður 68 ára gamall.
Lagerbäck ætlar að gefa KSÍ lokasvar í byrjun maí, í síðasta lagi. FréttabLaðið/aFP
58%
Lars Lagerbäck hefur á
sínum fjórum árum sem
landsliðsþjálfari unnið ellefu
af 22 mótsleikjum sínum og
gert fimm jafntefli. Sigurhlut-
fall Íslands undir hans stjórn
er því 58% en markatalan er
32-23
35
Andstæðingar Íslands í
undankeppni EM 2016
höfðu aðeins forystu gegn
Íslandi í 35 mínútur alls í
þeim tíu leikjum sem Ísland
spilaði. Strákarnir höfðu
hins vegar forystu í samtals
398 mínútur í leikjunum tíu.
Reitir fasteignafélag Kringlan 4–12 103 Reykjavík www.reitir.is 575 9000
TIL LEIGU Nánari upplýsingar á www.reitir.is og hjá Halldóri Jenssyni, sölustjóra
í 840 2100 eða halldor@reitir.is
Um 695 m² efri hæð til leigu við Efstaland 26, við Bústaðaveg. Hæðin er innréttuð
sem skrifstofa en einnig liggja fyrir samþykktar teikningar að gistiheimili. Hæðin
er björt með stórum suðursvölum. Hún skiptist í nokkrar skrifstofur, fundarherbergi
og opið vinnurými. Í Grímsbæ er fjölbreytt þjónusta við höndina, næg bílastæði eru
við húsið og góð aðkoma er að hæðinni bakatil.
Grímsbær
Skrifstofur eða gistiheimili á 2. hæð
s p o r t ∙ F r É t t A b l A ð i ð 21l A U G A r D A G U r 1 9 . m A r s 2 0 1 6