Fréttablaðið - 19.03.2016, Blaðsíða 126
Ég er svona soldið
að vekja upp þessa
gömlu drauga úr minni
vinnu og sinna þeim aðeins.
TónlisT
sinfóníutónleikar
HHHHH
Tónlist eftir Jóhann Jóhannsson,
John Williams, Jonny Greenwood
og Mica levi. sinfóníuhljómsveit
Íslands lék undir stjórn Adrian
Prabava.
Eldborg í Hörpu
Fimmtudaginn 17. mars
Það lá við að ég fyndi lyktina af
poppkorninu á tónleikum Sinfóníu-
hljómsveitar Íslands á fimmtudags-
kvöldið. Þetta voru kvikmyndatón-
leikar og á þeim var leikin tónlist
úr nýjum og eldri myndum. Jóhann
Jóhannsson var í aðalhlutverki,
en einnig var flutt tónlist úr kvik-
myndum Spielbergs. Svo var þarna
músíkin eftir Jonny Greenwood úr
There Will Be Blood, þeirri óhugn-
anlegu mynd. Tónlistin er eingöngu
fyrir strengi og er mjög ómstríð. Það
var dálítið erfitt að hlusta á hana á
tónleikunum. Hún styður ákaflega
vel við frásögnina í kvikmyndinni og
er stór hluti af stemningunni. En án
kvikmyndarinnar verður hún eigin-
lega of skelfileg! Það er engin hvíld
á milli atriða, hver hroðinn á fætur
öðrum hellist yfir mann. Hljóm-
sveitin spilaði verkið af kostgæfni
undir öruggri stjórn Adrian Prabava.
Leikurinn var vandvirknislegur en
afar tilfinningaþrunginn og eftir því
áhrifamikill. Þetta var sársaukafull
upplifun.
Eftir Jóhann var leikin tónlist úr
The Theory of Everything, Priso-
ners og Sicario. Hún var þægilegri,
en þó var flutningurinn ekki áfalla-
laus. Einhver kona meðal áheyr-
enda lét í sér heyra svo um munaði,
hún virtist vera í hávaðarifrildi við
einhvern nærstaddan. Ég veit ekki
nákvæmlega hvað var á seyði, en
þetta var nokkuð truflandi. Engu að
síður var gaman að hlýða á tónlist
Jóhanns, hún svínvirkar eins og sagt
er. Í fyrstnefndu myndinni er stemn-
ingin létt og rómantísk, en talsvert
þyngri í hinum, þar er meira myrkur
og drama. Jóhann hefur óneitanlega
unnið frábært verk, hvílíkum árangri
hefur hann náð! Hljómsveitin spil-
aði af aðdáunarverðri fagmennsku.
Hún var samtaka, strengjahljómur-
inn var notalega þykkur og fókuser-
aður, og aðrir hljóðfæraleikarar voru
með allt sitt á hreinu. Sérstaklega
verður að nefna Skúla Sverrisson á
rafbassa, hann var magnaður.
Á tónleikunum hljómaði líka
músíkin eftir Mica Levi úr hryll-
ingsmyndinni Under the Skin. And-
rúmsloftið var annarlegt, eiginlega
vírað, enda er um að ræða vísinda-
skáldsögu. Tónarnir voru óljósir,
þeir einhvern veginn runnu yfir í
næstu tóna án þess að hægt væri að
greina mörkin á milli þeirra. Hljóm-
sveitin útfærði það fallega, útkoman
var þéttofinn og blæbrigðaríkur
tónavefur sem unaður var að hlýða
á.
Tónleikarnir hefðu verið full-
komnir ef verk John Williams
úr myndunum Jurassic Park, ET,
Superman og Schindler's List hefðu
verið almennilega flutt, en svo var
ekki að öllu leyti. Málmblásararnir
léku óhreint í Jurassic Park, en þó
sérstaklega í ET og var það pínlegt
áheyrnar. Í Schindler's List spilaði
Sigrún Eðvaldsdóttir einleik og
gerði það af öryggi en með svo ýktu
víbratói að það jaðraði við smekk-
leysi. Helst var það Superman sem
hljómaði ágætlega, þar var málm-
blásturinn vandaðri og krafturinn
var yfirgengilegur. Þetta er ótrúlega
lýsandi tónlist fyrir einhvern sem
getur flogið á ógnarhraða um himin-
geiminn. Allar hendingar vísa upp
á við og ægileg heljarstökk koma
fyrir með reglulegu millibili. Hér
var málmblásturinn miklu betri, í
heild fór hljómsveitin á kostum,
svo mjög að maður nánast flaug út
í náttmyrkrið á eftir.
Jónas Sen
niðursTAðA: Yfirleitt frábærir tón-
leikar með magnaðri tónlist.
Tónlist Jóhanns Jóhannssonar svínvirkar
Á tónleikum fimmduagskvöldsins var
flutt kvikmyndatónlist eftir Jóhann
Jóhannsson og fleiri. Mynd/GEtty
Þar sem Speglagerðin var áður til húsa að Klappar-stíg 16 í Reykjavík var í gær opnað nýtt gallerí, Berg Contemporary, en
það er helgað samtímalist og því má
segja að þar sé á ferðinni ákveðinn
samtímaspegill. Berg Contemporary
hefur verið lengi í undirbúningi en
Margrét Áskelsdóttir framkvæmda-
stjóri segir að Ingibjörg Jónsdóttir,
eigandi gallerísins, sé myndlistar-
maður sem hafi líka fengist mikið
við sýningastjórn og flest annað sem
tengist myndlist.
„Þetta var eiginlega síðasti stóll-
inn sem hún átti eftir að setjast í og
hún var búin að hugsa þetta lengi. En
hvað mig varðar þá hefur það alltaf
verið markmið hjá mér að starfa hjá
galleríi. Þetta er búið að taka tals-
verðan tíma því það þurfti að fara í
talsverðar framkvæmdir á húsnæð-
inu en það gladdi reyndar fyrri eig-
endur hússins og nágrannana mikið
að þessu væri ekki breytt í hótel,“
segir Margrét glaðlega.
Berg Contemporary er með átta
listamenn á sínum snærum og mun
fyrst um sinn sýna verkin þeirra en í
framhaldinu verði fleiri listamönn-
um boðið að sýna í galleríinu. „Þetta
snýst mikið um það að styðja við feril
listamannanna, kynna þá hérlendis
og erlendis, fara með þá á listamessur
og annað í þeim dúr. En við opnum
með sýningu á verkum Finnboga
Péturssonar sem er mikið gleðiefni
fyrir okkur.“
Verkin sem Finnbogi Pétursson
sýnir að þessu sinni eru eins og oft
áður unnin sérstaklega inn í sýning-
arrýmið en hann segir að það hafi
viljað þannig til að hann var laus
frá galleríi þegar honum bauðst að
koma og að honum hafi strax litist
vel á þetta tækifæri og þá hugsun
sem lægi að baki. „Þetta er allt í hæsta
gæðaflokki hvar sem á er litið og það
er gaman að koma að því að starta
þessu verkefni og vera fyrstur.
Ég er að sýna nokkur verk sem eru
ákveðið ferðalag frá vatnsverkunum
sem ég byrjaði að vinna að í kringum
1988 til 1989 og sýndi fyrst á Nýlista-
safninu sem var þá á Vatnsstígnum.
Það verk er núna uppi í Orkuveitu.
Þetta eru pælingar sem hafa orðið
til á leiðinni þaðan og fram á dag-
inn í dag. Þetta eru hugleiðingar um
geómetríuna í formi og hljóði. Geó-
metrísku formin sem við þekkjum í
formfræðinni, t.d. þríhyrningur og
ferningur, eru sömu form og í hljóð-
bylgjum. Þetta er svona það sem ég
er að vinna og tvinna með. Þetta
er tvinnað saman, hringur á móti
sínusbylgjunni, ég er að blanda
þessu saman og sýna þetta í vatni.
Þetta eru svona þessar pælingar sem
hafa dúkkað upp en svo orðið eftir
á ferðalaginu sem maður er á hverju
sinni því maður er svo upptekinn af
því sem maður er í hverju sinni. Ég
er svona soldið að vekja upp þessa
gömlu drauga úr minni vinnu og
sinna þeim aðeins enda voru þeir
margir hverjir búnir að bíða lengi.
Reyndar hef ég alltaf unnið þann-
ig að ég tek eitt skref áfram, hálft
afturábak og svo tvö skref áfram og í
rauninni er ég alltaf að vísa í það sem
ég hef verið að gera áður. Tek pínu-
lítið úr þessu verki og blanda saman
við nýtt og þá verður til nýtt verk. Svo
eftir nokkur ár þá fer ég kannski í það
aftur. Þetta er svona eins og Mogginn,
þetta er hæg breyting en maður sér
hana þegar maður fer að skoða vand-
lega og leggja þetta saman.“
Finnbogi segist vissulega hafa
verið með nýja húsnæðið í huga
þegar hann var að að vinna að
þessari nýju sýningu. „Það hefur
verið langur aðdragandi að þessari
sýningu, alveg eitt og hálft ár, sem
er kannski ekkert endilega gott.
Sérstaklega ekki þegar maður er að
fara að vekja upp gamla drauga því
þá standa þeir í biðröðum og banka
í hausinn á manni klukkan þrjú á
næturnar. En ég er núna eiginlega
að klára það sem ég byrjaði á fyrir
einu og hálfu ári eftir að hafa tekið
það í nokkra hringi. Þannig að það
verður ákveðinn léttir að opna þessa
sýningu en það er aðallega léttir að
fá svona stóra kanónu eins og Ingi-
björgu inn í galleríheiminn og að sjá
þetta vakna og verða til. En svo er ég
að fara til Kína núna á sunnudaginn
að setja upp verk þar og það er mjög
spennandi dæmi þannig að það er
nóg að gera.“
Eitt skref áfram, hálft
afturábak og tvö áfram
Berg Contemporary er nýtt gallerí sem var opnað í gær með
sýningu á verkum eftir Finnboga pétursson sem segir að bæði
sýningin og galleríið hafi átt sér langan aðdraganda.
Finnbogi Pétursson myndlistarmaður við eitt verka sinna í Berg Contemporary.
FréttaBlaðið/StEFÁn
Styrkir fyrir sérstaklega
myndríka útgáfu um sögu
Reykjavíkur
Styrkirnir eru ætlaðir til niðurgreiðslu á kostnaði vegna
kaupa á ljósmyndum til birtingar frá Ljósmyndasafni Reykja-
víkur. Styrkirnir eru vegna útgáfu bóka og annars efnis sem
kemur út á árinu 2016 eða í ársbyrjun 2017. Styrkirnir eru
aðgerð í kjölfar menningarstefnu Reykjavíkurborgar sem
miðar m.a. að því að hlúa að varðveislu menningararfleifðar
og hvetja til miðlunar hennar í fjölbreyttu formi. Þriggja
manna dómnefnd skipuð tveimur starfsmönnum Borgarsögu-
safns Reykjavíkur og skrifstofustjóra menningarmála metur
umsóknir.
Í umsókn komi fram nauðsynlegar upplýsingar um um-
sækjanda ásamt lýsingu á fyrirhugaðri útgáfu og verðáætlun
Ljósmyndasafns Reykjavíkur vegna afgreiðslu ljósmynda í
höfundarétti sem bera birtingagjald skv. gjaldskrá safnsins.
Umsókn merkt ,,Myndrík bók um sögu Reykjavíkur“ berist á
netfangið menning@reykjavik.is. Umsóknir berist í síðasta
lagi í dagslok mánudaginn 2. maí.
Magnús
Guðmundsson
magnus@frettabladid.is
1 9 . M A r s 2 0 1 6 l A u G A r D A G u r62 M e n n i n G ∙ F r É T T A B l A ð i ð
menning