Fréttablaðið - 19.03.2016, Blaðsíða 118
Elskulegur sonur, faðir, tengdafaðir,
bróðir, mágur og afi,
Kristleifur Leósson
Gvendargeisla 21, Reykjavík,
lést 3. mars sl. Útförin hefur farið fram
í kyrrþey. Þökkum veittan stuðning
og hlýhug.
Lilja Þorkelsdóttir
Sessilía Dögg Kristleifsdóttir Birgir Smári Ársælsson
Leó Kristleifsson
Danilía Guðrún Kristjánsdóttir
Kristbjörg Leósdóttir Tryggvi Friðjónsson
Gunnlaugur Leó Birgisson
Ástkær eiginkona mín, móðir,
tengdamóðir og amma,
Ásdís Óskarsdóttir
hjúkrunarfræðingur,
Kastalagerði 13, Kópavogi,
lést á Vífilsstöðum þann 13. mars
síðastliðinn. Útför hennar fer fram
frá Háteigskirkju, miðvikudaginn 23. mars kl. 13.00.
Benedikt Gunnarsson
Valgerður Benediktsdóttir, Grímur Björnsson
Gunnar Grímsson
Sóley Grímsdóttir
Innilegar þakkir færum við öllum þeim
sem sýndu okkur samúð og hlýhug
við andlát og útför föður okkar,
Sighvats Arnórssonar
frá Miðhúsum.
Sérstakar þakkir fær starfsfólkið á
Kumbaravogi fyrir alúð og hlýju í garð
föður okkar síðustu árin.
Fyrir hönd aðstandenda,
Geirþrúður, Hjálmur, Arnór, Helga, Ingunn og Hallur
Elskuleg eiginkona mín, móðir,
tengdamóðir, systir og amma,
Helga Haraldsdóttir
andaðist fimmtudaginn 10. mars.
Útför hefur farið fram í kyrrþey.
Markús Úlfsson
Karólína Markúsdóttir Ívan Burkni
Dagmar Markúsdóttir
Rannveig Haraldsdóttir
Sigrún Haraldsdóttir
Dagmar Haraldsdóttir
og ömmubörn.
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
Auðbrekku 1, Kópavogi Útfararþjónusta síðan 1996
Vaktsímar: 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is • Allan sólarhringinn
ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242
Kristín
Ingólfsdóttir
Hilmar
Erlendsson
Sverrir
Einarsson
Vesturhlíð 2 Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Útfararstofa kirkjugarðanna
Útfarar- og lögfræðiþjónusta
Lögfræðiþjónusta
Veist þú hvert eignir þínar renna
eftir þinn dag? Kynntu þér málið á
heimasíðu okkar, www.útför.is.
Þar getur þú m.a. sett inn þínar forsendur
í reiknivél. Við aðstoðum þig við gerð
erfðaskrár, kaupmála og við dánarbússkipti.
Katla Þorsteinsdóttir,
lögfræðingur
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Guðrún Nielsen
íþróttakennari,
Lerkihlíð 2, Reykjavík,
lést fimmtudaginn 10. mars
á Landspítalanum. Hún verður jarðsungin
frá Háteigskirkju mánudaginn 21. mars kl. 13.00.
Karl Gunnarsson
Bergrún Helga Gunnarsdóttir Gunnar Pálsson
Vaka Gunnarsdóttir Guðmundur Vestmann
Halla Gunnarsdóttir
Kría Guðmundsdóttir
Ég dreg ekkert undan
Ung ákvað hún að skrifa ævisöguna þegar hún yrði sextug en það dróst í fimmtán ár.
Guðrún L. Ásgeirsdóttir kennari rifjar upp 32 fyrstu árin sín í bókinni Á meðan ég man.
„Allt frá því ég var barn hef ég haldið
til haga öllum bréfum og pappírum
eins og gert var heima í Ási. Ég ferðað-
ist óvenju mikið sem ung stúlka, miðað
við það sem þá gerðist, og skrifaði mörg
bréf heim, þau voru geymd eins og heil-
agur dómur og eru nú ígildi dagbókar sem
ég hef getað flett upp í. Þannig má segja
að ég hafi alltaf verið að undirbúa þessi
bókarskrif,“ segir Guðrún Lára Ásgeirs-
dóttir bókasafnskennari sem hefur gefið
út fyrsta bindi ævisögu sinnar.
Bókin nefnist Á meðan ég man –
atburðir ævi minnar. Fyrstu eintökin
komu út fyrir síðustu jól en seldust upp í
hvelli. Nú er komin önnur prentun, hún
fer í almenna sölu og á bókasöfn.
Guðrún er fædd árið 1940. Hún ólst
upp í Ási, Sólvallagötu 23 í Reykjavík með
foreldrum, systkinum og afa. Á þeim 32
árum sem hún lýsir í bókinni bjó hún líka
á Möðruvöllum í Hörgárdal, í Vallanesi á
Héraði og í Ólafsvík, með manni sínum
séra Ágústi Sigurðssyni og börnunum
tveimur, og áður var hún skólastjóri hús-
mæðraskólans á Hallormsstað og hótel-
stjóri þar. Svo eru ferðalögin kapítuli útaf
fyrir sig. „Ég vildi skoða heiminn áður en
ég færi að binda mig og ferðaðist mikið
ein, það er best því þá ræður maður sjálf-
ur,“ segir Guðrún og bætir við hlæjandi.
„Núna rekst ég ekki í hópi nema sem
fararstjóri!"
Hún kveðst hafa verið „farfugla-
mamma“, það hafi haft áhrif á ferða-
mátann. „Ég var ein þeirra sem pössuðu
farfuglaheimilið í Austurbæjar-
skólanum í sjálfboðavinnu svo
hægt væri að hafa gistinguna
ódýra. Þar fékk ég fullt af
heimboðum svo ég fór á flakk
um Evrópu og gisti hjá farfugl-
um. Aðallega voru það strákar,
því stúlkur voru miklu minna
á ferðinni, þær voru ekki
lagðar af stað. Sumar mæð-
urnar héldu að þarna væri
komin tilvonandi tengda-
dóttir en ég var bara félagi
þessara stráka. Svo þegar
ég hafði verið skólastjóri á Hallorms-
stað og rekið hótel þar um sumarið átti
ég allt í einu pening svo ég keypti mér bíl
úti í Hollandi sem við mamma sóttum og
keyrðum, ásamt vinkonu minni, um alla
Evrópu. Ég fór líka í enskuskóla í Cam-
bridge eins og var í tísku þá og til Dan-
merkur með fleiri unglingum á vegum
Norræna félagsins árið 1957. Þessum
ferðum er lýst í bókinni.“
Fararstjórn um Kjöl og móttaka ferða-
hópa á Hveravöllum ásamt gangnaævin-
týri með Húnvetningum koma við sögu,
en líka miður skemmtileg samskipti við
Sigurbjörn biskup vegna prestskosninga
á Möðruvöllum. „Ég dreg ekkert undan,“
segir Guðrún. „Segi til dæmis líka kost og
löst á Ólafsvík.“
Yfir 100 myndir eru í bókinni. Guðrún
kveðst alltaf vera með myndavél á
lofti og hafa haldið vel
utan um myndasafnið.
„Ég hef ekkert gaman af
myndum í tölvu, læt allt-
af prenta þær og set þær
strax í albúm. Nú hef ég
sett albúmin, vel yfir 100
talsins og í tímaröð, ásamt
bréfasafni mínu, til geymslu á Borgar-
skjalasafn og vona að þau verði þar til
sýnis. Það hefur alltaf búið í mér söfn-
unar- og röðunarþörf enda fór ég í skjala-
stjórnun á síðari árum eftir að hafa lært
bókasafnsfræði.“
Bókin endar um það bil sem Guðrún
og Ágúst eru að kveðja Ólafsvík og flytja
norður að Mælifelli í Skagafirði. Framan
á henni stendur „fyrra bindi“ en Guð-
rún kveðst halda að þau verði þrjú. „Ég
er langt komin með næstu bók,“ segir
hún, „og á erfitt með að hemja mig.“
gun@frettabladid.is
Ég vildi skoða heiminn
áður en ég færi að binda
mig og ferðaðist mikið ein, það
er best því þá ræður
maður sjálfur.
„Sumar mæðurnar héldu að þarna væri komin tilvonandi tengdadóttir en ég var bara félagi þessara stráka” segir Guðrún Lára frettabLadid/ernir
Á bókarkápu er mynd
af Guðrúnu á hlaði
Húsmæðraskólans á
Hallormsstað þar sem
hún var forstöðukona og
hótelstjóri rúmlega tvítug.
1 9 . m a r s 2 0 1 6 L a U G a r D a G U r54 t í m a m ó t ∙ F r É t t a B L a ð i ð
tímamót