Fréttablaðið - 19.03.2016, Blaðsíða 12
umhverfismál Veiðifélag Kjósar-
hrepps hefur óskað eftir svörum frá
sveitarfélaginu um áhrif fyrirhug-
aðrar hitaveitu í Kjósinni á lífríki.
"Hefur verið skoðað hvort efnainni-
hald affallsvatns eða hiti geti haft
áhrif á lífríki vatnasvæðisins Laxár
í Kjós og Bugðu?" segir í fyrirspurn
Veiðifélags Kjósarhrepps.
Einnig er spurt um hvað gert sé ráð
fyrir miklu magni af affallsvatni á ári
sem fari út í vatnasvæði Laxár í Kjós
og Bugðu. "Hvert er efnainnihald
vatnsins?" spyr veiðifélagið.
Guðmundur Magnússon, formaður
veiðifélagsins, segir fyrirspurnina
snúast um að fá svör formlega
á blaði fyrir aðalfund félagsins.
"Stjórn veiðifélagsins hefur ekki
áhyggjur af þessum framkvæmdum,
við höfum fylgst með þessu frá því
boranir hófust," segir Guðmundur.
Samkvæmt upplýsingum á heima-
síðu hreppsins verður unnið að
hitaveituframkvæmdum á þessu ári
og því næsta.
"Grófa verkplanið er að byrja uppi
á borholusvæðinu í apríl 2016 og
leggja lagnir sem leið liggur niður að
Meðalfellsvatni, í byggðina kringum
það og áleiðis vestur að Hvalfirði í
byggðina þar. Önnur svæði koma
inn árið 2017," segir á kjos.is. – gar
Vilja svör um áhrif
hitaveitu í Kjós
Veiðifélag spyr um áhrif nýrrar hitaveitu á Laxá í Kjós. FréttabLaðið/Pjetur
Minni fjárstyrkur við
fall í norsku
1NOreGur Sylfi Listhaug, ráð-herra innflytjendamála í Noregi,
vill að sveitarfélögin fái heimild til
að skera niður fjárhagsstuðning til
þeirra útlendinga sem ekki stand ast
norskupróf í aðlögunarferli þeirra.
Ráðherrann segir að þetta muni
hvetja þá enn frekar til að læra
norsku og ná góðum árangri. Eftir
páska leggur hún fram frumvarp um
herta innflytjendalöggjöf.
Sálfræðihernaður gegn
Svíum
2svÍÞJÓÐ Rússar stunda sál-fræðilegan hernað gegn Svíþjóð
í því skyni að hafa áhrif á lýðræðis-
legar ákvarðanir. Allt að þriðjungur
rússneskra erindreka stundar slíkt
auk þess að njósna í Svíþjóð. Frá
þessu er greint í skýrslu sænsku
öryggislögreglunnar fyrir árið 2015.
Margot Wallström, utanríkisráðherra
Svíþjóðar, segir í viðtali við Sænska
Dagblaðið að þetta sé alvarlegt en
hafi verið vitað lengi.
Grunnskólanemar vilja
meiri menningu
3fiNNlAND Niðurstöður könn-unar meðal nær 120 þúsunda
grunnskólanemenda í Finnlandi sýna
að nemendur vilja fá fleiri kennslu-
stundir í listgreinum og hreyfingu.
Meirihluti nemendanna vill fleiri
tómstundir á skólatíma en einnig
möguleika á að nota húsnæði og
tæki skólans í frítíma sínum, að því
er finnskir fjölmiðlar greina frá.
NOrÐurlöNDiN
1
2
3
Listhaug er ráðherra innflytjendamála.
Samkvæmt upplýsingum
á heimasíðu hreppsins
verður unnið að hitaveitu-
framkvæmdum á þessu ári
og því næsta.
1 9 . m A r s 2 0 1 6 l A u G A r D A G u r12 f r é t t i r ∙ f r é t t A B l A Ð i Ð