Fréttablaðið - 19.03.2016, Blaðsíða 105
Konur eru konum bestar er
sjálfstyrkingarnámskeið sem
prestar og djáknar Þjóðkirkj-
unnar hafa haldið víðsvegar
um landið mörg undanfarin ár.
Markmið námskeiðsins er að
skapa konum vettvang til að
kynnast sjálfum sér betur í
góðum félagsskap þar sem þær
fá tækifæri til að deila reynslu
sinni og benda hver annarri á
leiðir til að styrkja sjálfs-
myndina en rík áhersla er lögð
á virka þátttöku í hópaverk-
efnum og umræðum.
Hjálparstarfið hefur fengið sr.
Petrínu Mjöll Jóhannesdóttur
til að vera með nokkur nám-
skeið fyrir hópa og gjarnan er
námskeiðið notað sem hluti af
stærra og víðameira verkefni.
Í nóvember 2015 fór Sædís
Arnardóttir, félagsráðgjafi hjá
Hjálparstarfinu, á leiðbein-
endanámskeið hjá Petrínu
Mjöll og í febrúar fór hún af
stað með sitt fyrsta námskeið
fyrir 11 konur. Námskeiðið er
enn í gangi og hafa þátttak-
endur lýst yfir mikilli ánægju
með sjálfsvinnu sem þar fer
fram.
Í október 2015 fór Hjálpar-
starfið og Hjálpræðisherinn af
stað með námskeiðið Heilsuefl-
andi samvera. Námskeiðið sem
stendur fram í apríl er ætlað
konum utan vinnumarkaðar en
markmiðið með því er að efla
andlega, líkamlega og félags-
lega heilsu þátttakendanna.
Einn hluti af námskeiðinu var
matreiðsla í matreiðslustof-
unni í Réttarholtsskóla en
Gunnþórunn Jónsdóttir mat-
reiðslukennari tók hópinn að
sér í fjögur skipti. Undir hennar
leiðsögn voru galdraðir fram
hinir ýmsu réttir og má þar
nefna japanskt kjúklingasalat,
Chili con carne, kanelsnúða og
pönnukökur. Í hverjum tíma
voru matreiddir 2–3 aðalréttir
auk eftirréttar og endaði tím-
inn á sameiginlegu borðhaldi
þar sem konurnar gæddu sér á
veislumatnum saman.
Í vetrarfríi grunnskóla í Reykjavík, helgina 26.–28. febrúar, fóru
fimmtán ungmenni á aldrinum 11–15 ára á Úlfljótsvatn á vegum
Hjálparstarfs kirkjunnar og Hjálpræðishersins í Reykjavík. Mark-
mið ferðarinnar var að eiga skemmtilegt og viðburðarríkt vetrar-
frí í fallegu umhverfi. Skátarnir héldu uppi frábærri dagskrá eins
og þeim einum er lagið. Krakkarnir fengu að spreyta sig á klifur-
turninum og að skjóta úr boga. Þau lærðu að búa til bálköst og
grilluðu sér sykurpúða, poppuðu og bökuðu brauð yfir eldinum. Á
dagskrá var líka sleðafjör, íþróttaleikar og kvöldvökur. Veðrið lék
við okkur sem var eins gott þar sem við vorum að mestu leyti ut-
anhúss. Krakkarnir stóðu sig frábærlega vel en í ferðinni þurftu
allir að stíga aðeins út fyrir þægindahringinn sem okkur er svo
hollt. Sumir voru að fara einir að heiman í fyrsta sinn og aðrir fóru
í ferðina án þess að þekkja nokkurn. Hópurinn var fljótur að kynn-
ast innbyrðis og voru það glöð og sátt börn sem snéru heim til
foreldra sinna eftir helgina.
Konur eru konum bestar
Matreitt í heilsueflandi samveru
Unglingafjör á
Úlfljótsvatni
„Það er okkur alltaf hollt að staldra við og líta inn á við og það er sérstaklega gott að gera það í góðra kvenna
hópi,“ segir Sædís Arnardóttir, félagsráðgjafi Hjálparstarfs kirkjunnar. Í bakgrunni má sjá verkefni sem unnið
var á sjálfstyrkingarnámskeiðinu.
Það er alltaf jafn gaman að elda og borða í góðum félagsskap enda voru þátttakendur jafnt sem leiðbeinendur
virkilega ánægðir með matreiðslunámskeiðið. Hjálparstarfið kann Góða hirðinum, nytjamarkaði Sorpu, bestu
þakkir fyrir stuðninginn við verkefnið!
Eftir helgina höfðu foreldrar unglinganna samband við félagsráðgjafa
Hjálparstarfsins og lýstu ánægju þeirra með fríið. „Hún talar endalaust
um hvað það var gaman. Takk innilega fyrir stelpuna mína!“„Takk kærlega
fyrir drenginn. Hann er súper ánægður og langar aftur!“ voru meðal
skilaboða.
Fermingargjöf sem gefur
Fermingarskeyti eða gjafabréf frá Hjálparstarfi kirkjunnar er
gjöf sem heldur áfram að gefa. Fermingarbarnið
fær skeytið eða bréfið í hendurnar en
andvirðið rennur til jafnaldra fermingar-
barnsins sem býr við fátækt.
Sendu skeyti, það kostar 1.990 kr. Eða gefðu
fermingargjafabréf að upphæð 5.000 kr.
Þú færð skeytin og gjafabréfin á
www.gjofsemgefur.is eða pantar þau á
skrifstofunni okkar, 528 4400. Þú prentar út,
sækir til okkar – eða við sendum fyrir þig. Einfalt og gleðilegt.
Óskalistinn minn:
Rúm
Myndavél
Svefnpoki
iPod
Vefmyndavél
Teppi
Orðabók
Hálsmen
Svo væri gaman
að fá pening og
„Gjöf sem gefur“.
Mig langar til að
einhver sem er
ekki eins heppinn
og ég fái að njóta
með mér.
www.gjofsemgefur.is
Við systkinin erum
munaðarlaus. 1.990 kr.
fermingarskeyti á Íslandi
dugar fyrir 3 hænum.
Þær gefa okkur fullt
af eggjum.
5.000 kr. gjafabréf á
Íslandi myndi gefa
okkur geit.
Eða kannski reiðhjól.
Þá kæmist ég á markað
með uppskeruna okkar
og við fengjum pening.
Óskalistinn minn:
PI
PA
R\
TB
W
A
•
S
ÍA
•
1
30
69
1
6 – Margt smátt ...
„Flóttafólk og aðrir útlendingar koma
með nýja menningu inn í landið og það
er áskorun. Kannski verður hún til þess
að við finnum leiðir til að skapa alvöru
þátttökumenningu og hugarfar þar sem
við búumst við og gerum ráð hvert fyrir
öðru og þar sem við skiljum engan eftir.
Að vilja lifa í fjölmenningu þýðir að vilja
deila kjörum með öðrum. Við Íslendingar
höfum hins vegar ekki gert upp við okk-
ur hvort við viljum í alvöru taka á móti
nýju fólki. Annað hvort nennum við að
lifa í fjölmenningu eða ekki og ef við
nennum því ekki getum við bara byrjað á
því strax að reisa girðingar og gettó,“
segir Bjarni Karlsson, siðfræðingur og
prestur, en hann og Laufey Ólafsdóttir,
háskólanemi og samhæfingarstjóri PEP
(People Experiencing Poverty) á Íslandi
voru meðal þeirra sem héldu erindi á
ráðstefnu um notendasamráð í þjón-
ustu við fátæka sem haldin var í Reykja-
vík í janúar síðastliðnum. Bjarni ræddi
þar um staðalmyndir sem ýta undir og
viðhalda viðteknum hugmyndum um
vald og valdaleysi fólks en Laufey ræddi
um þátt fjölmiðla í að móta viðhorf til
þeirra sem búa við fátækt.
Viltu segja mér sögu þína?
Bjarna og Laufeyju er mjög umhugað um
að bæta hag og efla réttindi minni-
hlutahópa, sérstaklega þeirra sem búa
við fátækt og félagslega einangrun. Þau
segja útlendinga og fátæka á Íslandi
eiga það sameiginlegt að samfélagið
verði að gera ráð fyrir þeim og skapa
sameiginlegt rými þar sem allir geti tek-
ið þátt í daglegu lífi í lýðræðissamfélagi.
„Það er vesen að tilheyra samfélagi en
við eigum ekki val um annað. Örlög okkar
jarðarbúa eru samofin og það er
heimska að halda að við komumst upp
með að taka ekki tillit hvert til annars. Í
samfélagi sem er þess virði að búa í
verðum við að vilja hlusta og spyrja
„viltu segja mér sögu þína?“ og „hvernig
gerir þú?“ segir Bjarni.
Fátækt er alltaf útilokandi
„Þegar við tölum um félagslega ein-
angrun er valfrelsi lykilatriði. Lista-
maður sem fer í sjálfskipaða einangrun
til að hafa frið til að skapa hefur val en
sá sem ekki getur tekið þátt í daglegu
lífi sökum fátæktar hefur ekkert val og
býr þess vegna við félagslega útilokun
sem er móðgun við mennskuna,“ segir
Bjarni og bætir við að á Íslandi sé fé-
lagsleg auðmýking vegna fátæktar enn
meira stingandi vegna þess að samfé-
lagið sé með þeim allra ríkustu í heimi og
fátækir hlutfallslega fáir ef miðað sé við
önnur ríki í Evrópu. „Fátæktin hér er svo
óþörf og þess vegna er hún enn sárs-
aukafyllri.“
Laufey tekur undir með Bjarna og bætir
við að aðalatriðið sé að öllum verði gert
kleift að sinna grunnþörfum sínum með
grunnframfærslu, hvaðan sem hún
komi, að það séu hrein og klár mann-
réttindi. „Við verðum að finna viðunandi
lágmarksframfærsluviðmið um leið og
við gerum ákveðnar kröfur um þátttöku
fólks á raunhæfum forsendum. Núna er
fólki refsað fyrir að vera virkt með því
að bætur þess eru skertar og það þarf
að laga. Við þurfum að umbuna fyrir
virkni í stað þess að refsa. Talandi um
það hvernig við gætum bætt samfélagið
þá væri mjög gott að byrja á því að
hætta að búa til reitt fólk. Fólk verður
langþreytt á stöðugu mótlæti og erfið-
leikum og það veldur reiði, sem er mjög
skiljanlegt.”
„Já, við þurfum að viðurkenna félags-
lega og tilfinningalega þáttinn í þessu.
Fátækt felur alltaf í sér félagslega úti-
lokun og þátttökuleysi sem enginn
óskar sér. Við þurfum að finna leiðir og
vera útsjónarsöm við að skapa menn-
ingu í landinu þar sem við reiknum hvert
með öðru og eflum þátttöku allra, segir
Bjarni.
Bjarni Karlsson, siðfræðingur og prestur á sálfræðistofunni Haf, og Laufey Ólafsdóttir, nemi og samhæfingarstjóri Pepp á Íslandi, segja komu flóttafólks veita okkur tækifæri til að skapa
alvöru þátttökumenningu á Íslandi.
Í Farsæld, skýrslu Hjálparstarfs kirkjunnar og Rauða krossins í Reykjavík um
málefni fátækra á Íslandi frá 2012 er lagt til að hinn óskráði samfélagssátt-
máli feli í sér að stuðningur samfélagsins verði ekki í formi ölmusu heldur stuðli
að mannlegri reisn með kröfu um ábyrgð hvers einstaklings um leið og samfé-
lagið tryggi honum tækifæri til þátttöku. Bent er á fátæktargildrur í samfé-
laginu og tillögur að lausnum eru settar fram í 16 liðum. Skýrslan er aðgengi-
leg á vefsíðu hjálparstarfs kirkjunnar www.help.is
„Við verðum að rækta með okkur mennskuna“
Margt smátt ... – 7