Fréttablaðið - 19.03.2016, Blaðsíða 37
• að 10 milljónir íbúa Eþíópíu eru á barmi
hungursneyðar?
• að þar af eru 6 milljónir börn?
• að 80% Eþíópa lifa á landbúnaði og treysta á
úrkomu tvisvar á ári, minni regntíminn (belg) er í
mars til apríl og stærri (kerimt) í ágúst til október?
• að í fyrra (2015) brást fyrri úrkoma ársins nánast
alls staðar og sú seinni kom fyrr en vanalega og
varði mjög stutt og mjög víða rigndi ekkert?
• að úrkomuleysið er talið afleiðing af hlýnun jarðar
og eru svokölluð El Nino áhrif?
• að stjórnvöld í Eþíópíu hafa notað meira en tvö
hundruð miljónir Bandaríkjadala til að reyna að
tryggja fæðuöryggi og eru betur undirbúin en oft
áður, en ráða ekki lengur við vandann ein?
• að þrátt fyrir erfitt ástand í Eþíópíu hafa Eþíópar
tekið á móti um 700.000 flóttamönnum frá
nágrannaríkjum, flestum frá Suður-Súdan?
Ef þú vissir þetta ekki fyrir, þá veistu það núna! Og þá
kemur næsta spurning: Viltu vera með í að gera eitt-
hvað til að bregðast við þessu ástandi?
Hjálparstarf kirkjunnar er með verkefni í Jijiga í Aust-
ur-Eþíópíu sem nær til meira en 34.700 manns þar sem
fæðuöryggi er eitt af meginmarkmiðunum. Hjálpar-
starfið er aðili að Alþjóðlegu hjálparstarfi kirkna, ACT
Alliance sem þegar hefur hafið neyðaraðstoð á verst
settu þurrkasvæðunum. Markmiðið er að bjarga
mannslífum, tryggja lágmarksheilsugæslu og nær-
ingu fyrir börn sem eru vannærð, tryggja aðgang að
hreinu drykkjarvatni, bjarga búfé og auka framleiðni í
búfjárrækt og landbúnaði.
Nauðsynlegt er að bregðast við núna. Getur þú verið
með? Þú getur greitt valgreiðslu í heimabanka (2.400
krónur), hringt í söfnunarsíma 907 2003 (2.500 krón-
ur) eða lagt inn á reikning: 0334-26- 886, kt. 450670-
0499. Starfið er hafið en nær lengra ef þú ert með.
Eþíópískt spakmæli segir eitthvað á þessa leið: „Þegar
kóngulóarvefir sameinast geta þeir haldið aftur af
ljóni.“ Láttu ekki þinn þráð vanta í björgunarnetið, það
veikir netið.
Takk fyrir þitt framlag!
Framkvæmdastjóri: Bjarni Gíslason
Margt smátt, 1. tbl. 28. árgangur 2016
Ábyrgðarmaður: Kristín Ólafsdóttir
Prentvinnsla:
Umbrot: PIPAR\TBWA
Prentun: Ísafoldarprentsmiðja
Vissir þú?
GRAFÍA
Stéttarfélag í prent-
og miðlunargreinum
HAPPDRÆTTI
– búum öldruðum
áhyggjulaust ævikvöld
sjúkraþjálfun
fagmennska árangur vellíðan
• Langstærsta verkefni Hjálparstarfsins í þró-
unarsamvinnu erlendis er á þurrkasvæðum í
Eþíópíu en þar eru vatnsþrær grafnar, brunnar
byggðir og fræðsla veitt um nýtingu vatns,
bættar ræktunaraðferðir, hreinlæti og smitleiðir
sjúkdóma. Stuðlað er að bættum hag kvenna
með því að veita þeim fræðslu og þjálfun í
atvinnurekstri og örlán til að hrinda viðskipta-
hugmyndum í framkvæmd.
• Alls nutu 1.453 fjölskyldur (um 3.900 manns) um
land allt aðstoðar fyrir síðustu jól eða tveim
fjölskyldum færri en fyrir jól 2014. Af umsækj-
endum voru 81% konur, 55% einstæðir foreldrar,
44% á örorkubótum, 16% voru á framfærslu
sveitarfélaga og 15% voru í vinnu. Í desember og
janúar síðastliðnum fengu 584 einstaklingar til
viðbótar notaðan fatnað hjá Hjálparstarfinu og
stuðning vegna lyfjakaupa.
• Á Íslandi aðstoðar Hjálparstarf kirkjunnar
efnalitla með inneignarkortum í matvöruverslan-
ir samfara félags- og fjármálaráðgjöf. Stuðning-
ur er veittur vegna óvænts lyfjakostnaðar og þá
njóta börn og unglingar stuðnings í upphafi
skólaárs og til að stunda tónlistarnám, íþróttir
og tómstundastarf. Sjálfstyrkingar- og færni-
námskeið eru einnig í boði ásamt skipulagðri
samveru sem vinnur gegn félagslegri einangrun
sökum fátæktar.
• Neyðaraðstoð vegna stríðsátaka og núttúruham-
fara er veitt í samvinnu við systursamtök í
Alþjóðlegu hjálparstarfi kirkna, ACT Alliance,
Lútherska heimssambandið og heimafólk á
vettvangi.
Bjarni Gíslason, framkvæmdastjóri Hjálparstarfs kirkjunnar
ÞÖKKUM STUÐNINGINN
2 – Margt smátt ...
Hjálparstarf kirkjunnar hefur
hafið fjársöfnun til að svara
neyðarbeiðni Alþjóðlegs hjálp-
arstarfs kirkna, ACT Alliance,
vegna langvarandi þurrka í
Eþíópíu. Samkvæmt skrifstofu
Sameinuðu þjóðanna í mann-
úðarmálum (OCHA) eru yfir tíu
milljónir manns, þar af nær sex
milljónir barna, í brýnni þörf
fyrir aðstoð. Stjórnvöld í
landinu telja að 400 þúsund
börn séu alvarlega vannærð
og önnur 1,7 milljónir barna fái
ekki næga næringu.
Neyðarástandið sem nú blasir
við má rekja til þess að lítið
sem ekkert hefur rignt í
norðanverðu landinu í að
verða átta mánuði þannig að
haustuppskera brást, yfir 400
þúsund dýr drápust úr þorsta,
800 þúsund íbúa misstu lífs-
viðurværi sitt og fóru á ver-
gang og 5,8 milljónir íbúa
skortir aðgang að hreinu vatni.
Stjórnvöld í Eþíópíu brugðust
skjótt við en útilokað er að þau
ráði hjálparlaust við það
neyðarástand sem nú blasir
við.
Alþjóðlegt hjálparstarf kirkna,
ACT Alliance, hefur sent út
neyðarbeiðni fyrir um 5 milljón-
um Bandaríkjadala til að bæta
fæðuöryggi, veita húsaskjól,
tryggja heislugæslu og
skólagöngu barna og til að út-
vega sjálfsþurftarbændum á
verstu þurrkasvæðunum út-
sæði fyrir næsta regntímabil,
búfénað og bóluefni fyrir dýrin.
NEYÐARNÚMERIÐ
í 20 ÁR
Verstu þurrkar í Eþíópíu í þrjátíu ár –
Söfnun vegna neyðaraðstoðar er hafin!
Oromiya
Somali
Afar
Amhara
SNNP
Tigray
Gambella
Be
nis
ha
ng
ul
G
um
uz
Dire Dawa
HarariAddis Ababa
Bale
Afder
Borena
Warder
Liben
Arsi
Gode
Zone1
Zone2
Fik
Shinile
N. Gonder
Korahe
Guji
Degehabur
Jimma
W. Tigray
Jijiga
Zo
ne
3
E. Harerghe
W. Wellega
S. Wello
Bench M
aji
E. Wellega
So
ut
h
O
m
o
Illubabor
Zone 2
As
os
a
Zo
ne
4
Keffa
E.
Go
jam
N. Wello
W
. H
araerghe
W
. G
oj
am
Kamashi
N. Shew
a
S. Tigray
Gamo Gofa
Daw
ro
Sidama
W
. Ham
ra
Gurage
Sh
ek
a
E.
T
ig
ra
y
Ag
ew
A
wi
S.W.Shew
a
Se
lti
Metekel
E. Shewa
S. Gonder
W.Shewa
C.
T
ig
ra
y
Zone 3
Zo
ne
5
N. Shewa
Zone 1
Welayita
Had
iya
KT
Orom
iya
Godere
Konso
G
ed
eo
To
ng
o
Bu
rji
Amaro
Dirashe
Ala
ba
Mekele
Ye
m
Had
iya
Basketo
Bahir Dar
SUDAN
KENYA
SOMALIA
DJIB
OUT
I
ERITREA
0 110 220 330 44055 KM
UN OCHA
© OCHA- Ethiopia IMU, 2005
Þörfin er brýn
• 10,2 milljón manns þurfa
mataraðstoð
• 2,1 milljón barna búa við
næringarskort og þurfa
viðbótarnæringu
• 2 milljónir bænda þurfa
búfénað og útsæði
• 3,6 milljónir íbúa skortir
heilsugæslu
• 1,3 milljónir barna komast
ekki í skóla
• 2,5 milljónir íbúa búa við
óöryggi og eiga á hættu að
vera misnotaðir
• 800 þúsund íbúa vantar
húsaskjól og búsáhöld
• 5,8 milljónir íbúa skortir
aðgang að hreinu vatni og
hreinlætisaðstöðu
Skv. uplýsingum frá stjórnvöldum í Eþíópíu, (HRD 2016)
Lútherska heimssambandið (LWF) í Eþíópíu aðstoðar íbúa í Lalibela í Amharafylki. Uppskera þar var mjög léleg síðasta haust sem leiddi til þess að
bændur þurftu að selja búfé til að eiga fyrir mat. Í Jijiga- og Tulugulade-héruðum í Sómalí-fylki vinnur Hjálparstarfið á 8 svæðum (kebele) með 34.710
sjálfsþurftarbændum og hálfhirðingjum.
UN OCHA
© OCHA- Ethiopia IMU, 2005
Margt smátt ... – 3