Fréttablaðið - 19.03.2016, Blaðsíða 42
Útgefandi
365 miðlar ehf. | Skaftahlíð 24 | s. 512 5000 | fax 512 5301
UmSjónarmaðUr aUglýSinga
Jóhann Waage| johannwaage@365.is | s. 512-5439
ÁbyrgðarmaðUr
Svanur Valgeirsson
Veffang
visir.is
fólk gerir sér ekki
alltaf grein fyrir hve
gríðarlega mikill metn-
aður ríkir hjá veitinga-
stöðum úti um allt land í
kjölfar hinnar miklu
fjölgunar ferðamanna.
Á akureyri er mikil flóra
flottra veitingahúsa með
góðu fagfólki sem er á
pari við það sem gerist í
flottum stórborgum.
Hallgrímur Friðrik Sigurðsson
„Okkur þótti vanta alvöru steik
hús á Akureyri og þegar við vorum
búnir að finna frábæra vöru og al
vöru kolagrill slógum við til og
opnuðum um verslunarmanna
helgina síðustu,“ segir Hallgrímur
Friðrik Sigurðsson, einn eigenda
T Bone steikhúss. Mikil áhersla
er lögð á að nota aðeins úrvalskjöt
á T Bone. „Allt kjötið er sérstak
lega meyrnað og er við allra bestu
gæði þegar það er sett á grillið,“
segir Hallgrímur en veitingastað
urinn hefur skapað sér sérstöðu
á Akur eyri. „Enda hefur nánast
verið kjaftfullt frá fyrsta degi og
um helgar eru biðlistar.“
Gestir T Bone eru skemmtileg
blanda af Akureyringum og gest
um bæjarins enda stendur steik
húsið á besta stað við Ráðhústorg
ið þar sem mikið er um gistirými.
Undir sama hatti og T Bone eru
reknir tveir aðrir en mjög ólík
ir staðir. „Kungfu Express er as
ískur „taktu með“ staður. Þá opn
uðum við 1. desember síðastliðinn
R5 beer lounge sem sérhæfir sig í
miklu úrvali af gæðabjór og viskíi.
Þar er einnig boðið upp á metn
aðarfullan götumat,“ segir Hall
grímur en allir þrír staðirnir eru í
kringum Ráðhústorgið.
Hallgrímur þekkir vel til veit
ingabransans enda hefur hann
starfað í honum í yfir tuttugu ár.
Hann útskrifaðist frá Perlunni
sem matreiðslumaður, hefur unnið
í Noregi með heimsmeistara í mat
reiðslu, unnið á Vox og verið yfir
kokkur á Friðriki V á Akureyri.
„Fólk gerir sér ekki alltaf grein
fyrir hve gríðarlega mikill metn
aður ríkir hjá veitingastöðum úti
um allt land í kjölfar hinnar miklu
fjölgunar ferðamanna. Á Akureyri
er mikil flóra flottra veitingahúsa
með góðu fagfólki sem er á pari
við það sem gerist í flottum stór
borgum.“
nánari upplýsingar má finna á
www.tbone.is, www.r5.is og www.
kungfu.is.
t bone
– metnaðarfullt steikhús
t bone steikhús við Ráðhústorgið á Akureyri hefur
notið mikilla vinsælda frá því það var opnað fyrir
rúmu hálfu ári. Sérvöldu, kolagrilluðu steikurnar þykja
líka hið mesta lostæti enda staðurinn afar vinsæll.
Steikurnar eru grillaðar á ekta kolagrilli sem gerir gæfumuninn.
mjög góður rómur er gerður að matnum og stemningunni á t bone steikhúsi.
„Ég hef árum saman verið hald
in ólæknandi þrá til þess að miðla
menningu. Þegar maður er einu
sinni kominn inn í hringiðu skap
andi fólks verður ekki aftur snúið,
þetta er svo gefandi,“ segir Aðal
heiður S. Eysteinsdóttir myndlist
armaður en hún rekur gallerí og
gestavinnustofu á heimili sínu á
Siglufirði, gamla Alþýðuhúsinu.
Aðalheiður hlaut menningar
verðlaun DV á dögunum. Hún
hefur síðustu tvo áratugi tekið
virkan þátt í listalífi Norðurlands.
Á Akureyri var hún með vinnu
stofu í Listagilinu og kom að upp
byggingu Listagilsins. Þar rak
hún galleríið Kompuna um árabil
og stóð fyrir menningarviðburð
um sem kölluðust Á slaginu sex.
Þá stóð hún einnig fyrir viðburð
um í samstarfi við aðra í gömlu
síldarverksmiðjunni á Hjalteyri.
Fyrir fimm árum festi hún kaup
á Alþýðuhúsinu á Siglufirði, henn
ar heimabæ.
„Alþýðuhúsið er afar skemmti
legt hús með margvíslega mögu
leika. Þar hef ég staðið fyrir tón
leikum, fyrirlestrum, gjörningum,
ljóðalestri og nánast hverju sem
er. Það má segja að ég sé að búa til
leikvöll fyrir skapandi fólk. Lista
mennirnir koma yfirleitt og dvelja
hjá mér meðan þeir vinna að sýn
ingunni, innlendir og erlendir. Ég
endurvakti einnig Kompuna í Al
þýðuhúsinu og þar eru sýningar
allan ársins hring. Fyrsta sunnu
dag í mánuði fer einnig fram smá
dagskrá í anddyrinu og í eldhús
inu heima hjá mér sem ég kalla
Sunnudagskaffi með skapandi
fólki,“ útskýrir Aðalheiður og
segir hvern einasta viðburð vel
sóttan. Menningarlífið kraumi í
Fjallabyggð og fólk geri sér hik
laust ferð úr nærsveitum til Siglu
fjarðar.
„Héðinsfjarðargöng gera það
að verkum að Siglufjörður er mið
svæðis. Eins hefur verið mikil
uppbygging á Siglufirði sem
dregur fólk að. Það mæta 150 til
200 manns á þriggja vikna sýn
ingar, sem er bara nokkuð gott í
litlu bæjarfélagi,“ segir Aðalheið
ur. „Ég held að lítil samfélög úti á
landi hafi gegnum tíðina lært að
ef eitthvað á að vera um að vera
þarf fólk einfaldlega að standa
fyrir því sjálft.“
Yfirstandandi er sýning Bryn
hildar Kristinsdóttur í Kompunni.
Þann 25. mars hefst sýning Huldu
Vilhjálmsdóttur og þær Brák Jóns
dóttir og Freyja Reynisdóttir sýna
gjörning. Þá mun mynd listar
maðurinn Magnús Pálsson einn
ig fremja gjörning og ætlar Aðal
heiður sjálf að ljúka dagskránni
með gjörningi. Allir eru velkomn
ir og enginn aðgangseyrir. „Þetta
er heimili mitt og þangað læt ég
aldrei kosta inn,“ segir Aðalheiður.
Öflugt menningarlíf
í fjallabyggð
Siglfirðingurinn og myndlistarmaðurinn aðalheiður S. eysteinsdóttir hlaut
menningarverðlaun DV á dögunum. Aðalheiður hefur í rúma tvo áratugi miðlað
myndlist og menningu í Eyjafirði og síðustu fimm árin í Alþýðuhúsinu á Siglufirði.
„alþýðuhúsið er afar skemmtilegt hús með margvíslega möguleika,“ segir aðal-
heiður en hún bæði býr og starfar í húsinu.
aðalheiður S. eysteinsdóttir myndlistarmaður hefur miðlað menningu og listum á norðurlandi í rúma tvo áratugi. Hún hlaut
menningarverðlaun dV á dögunum. mynd/KriStín SigUrjónSdóttir SKSiglo.iS
KomdU norðUr Kynningarblað
19. mars 20162