Fréttablaðið - 19.03.2016, Blaðsíða 41
Saga Víking Ölgerðar nær
aftur til Efnagerðar Siglufjarð-
ar árið 1939. Verksmiðjan flutt-
ist til Akur eyrar árið 1950 og
hefur verið þar síðan. Segja má
að framleiðsla á bjór hafi farið á
fullt árið 1989 í aðdraganda þess
að bjórinn var leyfður á Íslandi.
„Frá þessum tíma hefur starfsem-
in verið blómleg. Undanfarin ár
hefur verið mikið um vöruþróun
enda bjórmarkaðurinn að breyt-
ast mikið þar sem krafa neytenda
er fjölbreytileiki, stöðugleiki og
gæði,“ segir Unnsteinn Jónsson
verksmiðjustjóri.
Víking Ölgerð hefur verið í far-
arbroddi á Íslandi í vöru þróun á
bjór fyrir almenning. „Á síð-
asta ári komum við með nokkra
nýja bjóra fram á sjónarsviðið og
veislan heldur áfram með mik-
illi þróun á þessu ári. Til að halda
stöðugum gæðum er mikilvægt
að vera með öfluga rannsóknar-
stofu og hefur hún verið mikil-
vægur hlekkur í framleiðslu Vík-
ing á Akureyri.“
Að sögn Unnsteins hefur fjölg-
un ferðamanna og breytt neyslu-
mynstur Íslendinga orðið til þess
að krafan um fjölbreytileika og
sérbjóra hefur aukist með hverju
árinu. „Þó svo Víking Gylltur
sé langvinsælasti bjór á Íslandi
með rúmlega tvöfalt meiri sölu
en næsti bjór á eftir sem er Vík-
ing Lager þá hefur neysla hefð-
bundinna lagerbjóra dregist
saman. Nýir bjórar líkt og Víking
Classic, Einstök og árstíðabjórar
hafa aukið við sig á undanförnum
árum,“ lýsir hann.
Útflutningur á bjór frá Akureyri
Að sögn Unnsteins hefur Einstök
verið að slá í gegn nánast út um
allan heim og er í dag það áfengi
frá Íslandi sem langmest er flutt
út af. „Nú hefur afkastageta verk-
smiðjunnar verið aukin sem opnar
dyr fyrir Víking og Thule í út-
flutningi. Nýlega kynnti Víking
nýja línu sem gengur undir nafn-
inu Craft Selection og er hugsuð
til að svara eftirspurn á innan-
landsmarkaði fyrir sérbjóra auk
þess sem þessi lína höfðar vel til
útlendinga þar sem sérstöðu Ís-
lands, sögunni og víkingahefðinni
er komið til skila á skemmtilegan
hátt. Markmiðið er að ná árangri
í útflutningi með þessa vörulínu
og þannig halda áfram að kynna
sérstöðu Íslands fyrir útlending-
um sem vonandi heimsækja Ís-
land í framhaldinu,“ segir Unn-
steinn og bætir við að það þurfi
allir að leggja sitt af mörkum til
að kynna Ísland á góðan hátt með
hágæða vörum.
„Baldur Kárason, bruggmeist-
ari Víking, hefur lagt sig fram
um að finna eins mikið af ís-
lensku hráefni til að nota í bjór-
ana þannig að stöðuleiki og gæði
fari saman. Einstök Arctic Berry
Ale var fyrsta tegundin þar sem
notuð eru íslensk aðalbláber og
krækiberjasafi í vöruna. Meðal
hráefnis sem nýlega var bætt við
í framleiðslunni eru íslensk eini-
ber í hinn fjölskrúðuga Víking
Juniper Bock.“
Nýjar fjárfestingar á Akureyri
Nýir eigendur Vífilfells hafa á
undanförnum árum verið að bæta
reksturinn og fjárfesta í verk-
smiðjunni á Akureyri. „Á síðasta
ári var fjárfest fyrir tugi milljóna
til að auka afkastagetu, tryggja
gæði og opna nýjar dyr á erlend-
um mörkuðum. Sett var inn ný
miðavél fyrir glerflöskur sem
leggur grunn að afkastaaukn-
ingu í flöskuframleiðslu. Einnig
var tekin í notkun ný kútaáfylli-
vél sem eingöngu er ætluð fyrir
einnota bjórkúta sem fluttir eru
út. Til að auka afköst í síun á bjór
var ný skilvinda tekin í notkun í
lok árs. Með henni næst einnig
að minnka mikið notkun á kísil-
gúr,“ segir Unnsteinn. Hann nefn-
ir einnig að á þessu ári sé síðan á
dagskrá að fjárfesta í nýrri flösku-
áfyllivél fyrir glerflöskurnar og
bæta við tönkum fyrir bjór. „Áætl-
anir miða að því að hægt verði að
auka afköst bjórverksmiðjunnar á
Akureyri skref fyrir skref á næstu
árum í takt við þarfir.“
Á síðasta ári
komum við með
nokkra nýja bjóra
fram á sjónarsviðið
og veislan heldur
áfram með mikilli
þróun á þessu ári.
Til að halda stöð-
ugum gæðum er
mikilvægt að vera
með öfluga rann-
sóknarstofu.
Unnsteinn Jónsson
Komdu norður
19. mars 2016
Kynningarblað Vífilfell | Icelandair Hotels | Hótel Kea | BYKO | Sigló Hótel | Akureyrarbær | Glerártorg
Víking fjárfestir til framtíðar á akureyri
Víking hefur nánast frá upphafi bjórsölu árið 1989 verið vinsælasti bjór á Íslandi og í dag er einn af hverjum þremur bjórum sem drukknir
eru á Íslandi Víking bjórar. Íslenskir bjórar hafa slegið í gegn í útlöndum sem verður vonandi til þess að fleiri útlendingar komi hingað.
„Undanfarin ár hefur verið mikið um vöruþróun enda bjórmarkaðurinn að breytast mikið þar sem krafa neytenda er fjölbreytileiki, stöðugleiki og gæði,“ segir Unnsteinn Jónsson verksmiðjustjóri.
MynD/aUðUnn nÍElSSOn