Fréttablaðið - 19.03.2016, Blaðsíða 36
• að 10 milljónir íbúa Eþíópíu eru á barmi
hungursneyðar?
• að þar af eru 6 milljónir börn?
• að 80% Eþíópa lifa á landbúnaði og treysta á
úrkomu tvisvar á ári, minni regntíminn (belg) er í
mars til apríl og stærri (kerimt) í ágúst til október?
• að í fyrra (2015) brást fyrri úrkoma ársins nánast
alls staðar og sú seinni kom fyrr en vanalega og
varði mjög stutt og mjög víða rigndi ekkert?
• að úrkomuleysið er talið afleiðing af hlýnun jarðar
og eru svokölluð El Nino áhrif?
• að stjórnvöld í Eþíópíu hafa notað meira en tvö
hundruð miljónir Bandaríkjadala til að reyna að
tryggja fæðuöryggi og eru betur undirbúin en oft
áður, en ráða ekki lengur við vandann ein?
• að þrátt fyrir erfitt ástand í Eþíópíu hafa Eþíópar
tekið á móti um 700.000 flóttamönnum frá
nágrannaríkjum, flestum frá Suður-Súdan?
Ef þú vissir þetta ekki fyrir, þá veistu það núna! Og þá
kemur næsta spurning: Viltu vera með í að gera eitt-
hvað til að bregðast við þessu ástandi?
Hjálparstarf kirkjunnar er með verkefni í Jijiga í Aust-
ur-Eþíópíu sem nær til meira en 34.700 manns þar sem
fæðuöryggi er eitt af meginmarkmiðunum. Hjálpar-
starfið er aðili að Alþjóðlegu hjálparstarfi kirkna, ACT
Alliance sem þegar hefur hafið neyðaraðstoð á verst
settu þurrkasvæðunum. Markmiðið er að bjarga
mannslífum, tryggja lágmarksheilsugæslu og nær-
ingu fyrir börn sem eru vannærð, tryggja aðgang að
hreinu drykkjarvatni, bjarga búfé og auka framleiðni í
búfjárrækt og landbúnaði.
Nauðsynlegt er að bregðast við núna. Getur þú verið
með? Þú getur greitt valgreiðslu í heimabanka (2.400
krónur), hringt í söfnunarsíma 907 2003 (2.500 krón-
ur) eða lagt inn á reikning: 0334-26- 886, kt. 450670-
0499. Starfið er hafið en nær lengra ef þú ert með.
Eþíópískt spakmæli segir eitthvað á þessa leið: „Þegar
kóngulóarvefir sameinast geta þeir haldið aftur af
ljóni.“ Láttu ekki þinn þráð vanta í björgunarnetið, það
veikir netið.
Takk fyrir þitt framlag!
Framkvæmdastjóri: Bjarni Gíslason
Margt smátt, 1. tbl. 28. árgangur 2016
Ábyrgðarmaður: Kristín Ólafsdóttir
Prentvinnsla:
Umbrot: PIPAR\TBWA
Prentun: Ísafoldarprentsmiðja
Vissir þú?
GRAFÍA
Stéttarfélag í prent-
og miðlunargreinum
HAPPDRÆTTI
– búum öldruðum
áhyggjulaust ævikvöld
sjúkraþjálfun
fagmennska árangur vellíðan
• Langstærsta verkefni Hjálparstarfsins í þró-
unarsamvinnu erlendis er á þurrkasvæðum í
Eþíópíu en þar eru vatnsþrær grafnar, brunnar
byggðir og fræðsla veitt um nýtingu vatns,
bættar ræktunaraðferðir, hreinlæti og smitleiðir
sjúkdóma. Stuðlað er að bættum hag kvenna
með því að veita þeim fræðslu og þjálfun í
atvinnurekstri og örlán til að hrinda viðskipta-
hugmyndum í framkvæmd.
• Alls nutu 1.453 fjölskyldur (um 3.900 manns) um
land allt aðstoðar fyrir síðustu jól eða tveim
fjölskyldum færri en fyrir jól 2014. Af umsækj-
endum voru 81% konur, 55% einstæðir foreldrar,
44% á örorkubótum, 16% voru á framfærslu
sveitarfélaga og 15% voru í vinnu. Í desember og
janúar síðastliðnum fengu 584 einstaklingar til
viðbótar notaðan fatnað hjá Hjálparstarfinu og
stuðning vegna lyfjakaupa.
• Á Íslandi aðstoðar Hjálparstarf kirkjunnar
efnalitla með inneignarkortum í matvöruverslan-
ir samfara félags- og fjármálaráðgjöf. Stuðning-
ur er veittur vegna óvænts lyfjakostnaðar og þá
njóta börn og unglingar stuðnings í upphafi
skólaárs og til að stunda tónlistarnám, íþróttir
og tómstundastarf. Sjálfstyrkingar- og færni-
námskeið eru einnig í boði ásamt skipulagðri
samveru sem vinnur gegn félagslegri einangrun
sökum fátæktar.
• Neyðaraðstoð vegna stríðsátaka og núttúruham-
fara er veitt í samvinnu við systursamtök í
Alþjóðlegu hjálparstarfi kirkna, ACT Alliance,
Lútherska heimssambandið og heimafólk á
vettvangi.
Bjarni Gíslason, framkvæmdastjóri Hjálparstarfs kirkjunnar
ÞÖKKUM STUÐNINGINN
2 – Margt smátt ...