Fréttablaðið - 19.03.2016, Blaðsíða 39
„Ég fagna því að náðst hefur sögulegt
og metnaðarfullt samkomulag í lofts-
lagsmálum og við munum leggja okkar
af mörkum bæði hér heima og við að
miðla þekkingu okkar og reynslu til
annarra þjóða“, sagði Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson, forsætisráðherra
þegar nýtt samkomulag í loftslagsmál-
um náðist í París þann 12. desember
síðastliðinn. Í samkomulaginu er meðal
annars viðurkennt að bregðast þurfi
við skaða sem fátæk ríki verða fyrir
vegna neikvæðra áhrifa loftslags-
breytinga, bæði við að draga úr líkum á
skaða og bregðast við tjóni sem verður.
Samkomulagið verður formlega undir-
ritað nú apríl en tekur gildi árið 2020.
Það er hins vegar allt of seint fyrir
sjálfsþurftarbændur í Eþíópíu sem
þurfa nú þegar að kljást við afleiðingar
hlýnunar jarðar.
Veðurkerfið El Nino eykur hlýindi í mið-
og suðurhluta Kyrrahafsins. Talið er að
El Nino hafi sótt í sig veðrið árið 2015 af
völdum loftslagsbreytinga en þegar
kerfið fer úr böndunum veldur það
þurrkum í Afríku, meðal annars í
Eþíópíu. Þurrkarnir valda uppskeru-
bresti og dýr falla úr hor og vatns-
skorti. Sjálfsþurftarbændur flosna
upp frá jörðum sínum, missa fæðuör-
yggi og fara á vergang. Börn líða nær-
ingarskort og njóta hvorki skólavistar
né heilsugæslu. Fólk á vergangi er auk
þess útsett fyrir misnotkun.
Grafalvarlegt ástand
Síðan hungursneyð olli dauða fleiri en
milljón Eþíópa árin 1984–1985 hafa
stjórnvöld í landinu bætt neyðarvarnir
og viðbúnað umtalsvert. Þau brugðust
við versnandi ástandi árið 2015 og vörðu
381 milljón Bandaríkjadala til útvega
sjálfsþurftarbændum næringarríkan
mat, vatn og dýrafóður. Nú þegar þurrkar
hafa varað í marga mánuði og óvíst hvort
rigni á regntíma í mars og apríl er hins
vegar svo komið að stjórnvöld ráða ekki
við ástandið án utanaðkomandi aðstoð-
ar. Þau hafa nú beðið alþjóðasamfélagið
um hjálp.
„Ástandið er grafalvarlegt og það sem
meira er að þá bendir allt til þess að ekki
rigni á regntímanum nú í vor heldur,“
segir Sophia Gebreyes, yfirmaður hjálp-
arstarfs Lútherska heimssambandsins
(LWF) í Eþíópíu sem aðstoðar um 57 þús-
und íbúa í Lalibela í Amharafylki. Upp-
skera þar var mjög léleg síðasta haust
sem leiddi til þess að bændur þurftu að
selja búfé til að eiga fyrir mat.
Lútherska heimssambandið aðstoðar
bændurna með því að útvega þeim þurrk-
þolið útsæði og dráttardýr svo hægt sé
að plægja jörðina og sá í hana þegar rign-
ir á ný. Þangað til uppskera kemur í hús
greiðir LWF fólki laun fyrir vinnuframlag
svo það geti keypt sér mat og helstu
nauðsynjar. Nánar um neyðaraðstoð LWF
í Eþíópíu er að finna á vefslóðinni https://
w w w.lutheran world .org / news/10-
million-ethiopians-need-emergency-aid.
Paul Jeffrey / Act Alliance
Woday Gelaye sýnir lélega uppskeru á kjúklingabaunum. Hann þarf nú að reiða si g á aðstoð
hjálparsamtaka um mat. Hanna Mornement / LWF
„Þetta er lélegasta uppskera sem ég man eftir,“ segir Woday Gelaye, 75 ára bóndi sem hefur
búið í Lalibela í 60 ár. Hanna Mornement / LWF
Þurrkar og uppskerubrestur
í Eþíópíu eru raktir til
loftslagsbreytinga
4 – Margt smátt ...
Hjálparstarf kirkjunnar hefur stutt
sjálfsþurftarbændur í Sómalí-fylki í
Eþíópíu síðan árið 2007. Fylkið er eitt af
fjórum fátækustu fylkjum í landinu.
Það þekur 144 þúsund ferkílómetra og
þar búa yfir 5 milljónir sjálfsþurftar-
bænda og hálfhirðingja. Grunnstoðir
samfélagsins eru veikar og fjarskipti
og samgöngur eru léleg. Tíðir þurrkar
valda viðvarandi matarskorti og
vannæringu í fylkinu og um ein milljón
íbúa er háð mataraðstoð að staðaldri.
Búfjárrækt með kameldýr, kindur,
geitur og nautgripi er undirstöðuat-
vinnugrein en þar sem skilyrði eru til
er einnig ræktað maís, hirsi, hveiti,
bygg og khat. Vatnsskortur á svæðinu
hefur leitt til lélegs ástands bústofns-
ins en dýralæknaþjónusta er stopul.
Skortur er á tækjum og tólum og því eru
ræktunaraðferðir í jarðrækt takmark-
aðar. Allt leiðir þetta til þess að fæðu-
öryggi er mjög lítið og lífsskilyrði slæm.
Í Jijiga- og Tulugulade-héruðum í
Sómalífylki vinnur Hjálparstarfið á 8
svæðum (kebele) með 34.710 sjálfs-
þurftarbændum og hálfhirðingjum.
Starfið á svæðinu hófst í nóvember
2007 en áætlað er að yfirstandandi
verkefni ljúki árið 2017.
Plógur
Búfjárrækt er undirstöðuatvinnugrein
en þar sem skilyrði eru til er einnig
ræktað maís, hirsi, hveiti og bygg. Fólkið
skortir hins vegar tæki og tól til ræktun-
ar. Meðal annars með því að útvega þeim
plóg sem ristir djúpt er hægt að bæta
uppskeruna umtalsvert.
Kornþreskivél
Þreskivél sem losar korn úr öxunum og
hreinsar það frá hálminum sparar tíma
sem hægt er að nota til að mala kornið,
baka brauð og búa til grauta. Með
tryggara aðgengi að hreinu vatni,
endurbættum frætegundum og skilvirk-
ari ræktunaraðferðum verður auð
veldara að rækta maís, hirsi, hveiti og
bygg þar sem skilyrði eru slæm.
Bóluefni
Búfjárrækt með kameldýr, kindur, geitur
og nautgripi er undirstöðuatvinnugrein
í Sómalí-fylki þar sem tíðir þurrkar valda
matarskorti og vannæringu. Vatns-
skortur hefur leitt til lélegs ástands bú-
stofnsins en dýralæknaþjónusta hefur
verið af skornum skammti. Hjálparstarf-
ið aðstoðar sjálfsþurftarbændur á
svæðinu með þvi að útvega bóluefni, lyf
og áhöld. Dýrasjúkraliðar eru þjálfaðir í
að bólusetja og meðhöndla dýr og þjón-
ustan er færð nær fólkinu. Þar með eykst
framleiðslan og fæðuöryggi íbúanna.
Plógur sem ristir djúpt eykur uppskeruna
Kornþreskivél sparar tíma og nýtir
uppskeruna betur
Samvinnuverkefni með
sjálfsþurftarbændum
• Trjágræðlingar eru ræktaðir og
gróðursettir til að binda vatn í
jarðveg og mynda seinna skugga
fyrir aðra ræktun
• Fræðsla er veitt um hvernig best er
að undirbúa jarðveg fyrir ræktun,
um kosti áveitu og ágæti taðs sem
áburðar
• Nýjar tegundir eru kynntar til
jarðræktar og fræðsla veitt um
kosti víxlræktunar fjölbreyttra og
þurrkaþolinna fæðutegunda
• Fræðsla er veitt um hvernig auka
má geymsluþol uppskerunnar
• Bændur fá plóga og skóflur til að
auðvelda jarðyrkju
• Sparhlóðir sem minnka eldiviðar-
þörf og draga úr reykmengun eru
innleiddar
• Dýraliðar eru þjálfaðir í að bólu-
setja dýr
• Fræðsla er veitt um meðferð við
dýrasjúkdómum
• Fræðsla er veitt um afleiðingu
ofbeitar
KOMDU Í
FÓTBOLTA
Bólusetning bætir heilsu bústofnsins
Hjálp til sjálfshjálpar í Jijiga og Tulugulade
Margt smátt ... – 5