Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.1996, Page 21

Hugur og hönd - 01.06.1996, Page 21
dóttir og Bergþóra Arnórsdóttir. Auk þess hefur leðurvaran ver- ið til sölu á nokkrum fleiri stöðum. Má þar nefna Dalakaffi, Jökuldal, markaðinn Viðbót skammt utan Egilsstaða, og handverks- og at- vinnusýningar víða um land. Fyrir rúmu ári opnaði ég undir- rituð vinnustofuna DeSign-ý að Lyngási 12, Egilsstöðum. Þar vinn ég auk annars vöru úr hreindýra- leðri. Má þar nefna hefðbundna leðurjakka, vesti, buxur, húfur og hatta. Eg reyni að fara nýjar leiðir og prófa ýmsar nýjungar. Meðal annars nota ég loðsútað leður af fæti hreindýrsins til skreytingar. Einnig nota ég handunnar tölur úr hreindýrshorni sem framleiddar eru í Eik á Miðhúsum. Sérstaka áherslu legg ég á framleiðslu vesta og jakka fyrir veiðimenn þar sem ég vinn með þarfir hvers og eins í huga hvað varðar snið, vasa og hanka fyrir skot svo nokkuð sé nefnt. Einnig bý ég til módelflíkur, svo sem kjóla, pils og vesti og þar eru engar tvær flíkur eins. Mér fannst það mikil ákvörðun fyrir ári að hefja með formlegum hætti framleiðslu á vöru úr hrein- dýraleðri og setja á stofn vinnu- stofu eða verkstæði til þess að vinna í fullu starfi að framleiðslu þessari. Margt hvatti mig hins veg- ar til þess. Fyrst og fremst var það viljinn og löngunin til að vinna með þetta einstæða hráefni, en ég hafði komið lítils háttar nálægt því í nokkur ár. Einnig var það sú reynsla og menntun sem ég hef sem kennari frá K.H.I. og síðan hönnuður frá Danmörku sem mig langaði til að nýta. Starfsemin hefur gengið vel og sala er alltaf að aukast. Enn sem komið er er framleiðslan þó ein- göngu seld frá vinnustofunni, enda áhersla lögð á að dekra við viðskiptavinina og sinna þörfum hvers og eins. Ég tel að vörur úr hreindýra- leðri séu góð viðbót við þá fram- leiðslu sem fyrir er í landinu. Ur leðrinu er nú framleidd fjölbreytt vara, sem hæfir vel nútímafólki, sem vill vandaða náttúruvöru úr íslensku hráefni. i Signý Ormarsdóttir Myndir: Sigurður Mar o.fl. Hugur og hönd 1996 21

x

Hugur og hönd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.