Gríma - 01.09.1933, Qupperneq 51
HULDUKONAN I GRÁSTEINI
49
ið trú manna, að í þeim steini byggi huldufóik, og
hefur þess orðið vart allt fram á vora daga. —
Bærinn á Ytri-Tjörnum stendur spölkorn norðan
við steininn.
Svo bar við fyrir langa löngu snemma vors, að
húsfreyjan á Ytri-Tjörnum vaknaði við það um
miðja nótt, að kallað var til hennar með nafni.
Reis hún upp í rúminu, leit út í gluggann og sá þar
andlit ókunnugrar konu; var kona þessi raunaleg
á svip og mælti fram þetta erindi með klökkum
rómi:
»Nágrannakona, nriðla mér
mjólk, ef þess nokkur kostur er,
berst eg í basli þungu;
mín eru brjóstin blóðsogin,
blessaður grætur sonurinn;
líkna því lífi ungu.
Sárt er hér leikið ljúflingsfólk,
legðu við Grástein ask af mjólk;
svalar hún sveinsins tungu.
Þá skal þér gefast bót í bú,
brátt muntu eignast gráa kú,
snotra og snilldargóða.
— Má eg ei tefja meira um sinn,
mál er að vitja’ um drenginn minn;
farinn er hann að hljóða«.
Heyrðist húsfreyju hún greina barnsgrát álengd-
ar, og um leið hvarf huldukonan af glugganum.
Hafði bóndi ekki vaknað við þetta, en húsfreyja
hallaði sér út af aftur.
Morguninn eftir fór húsfreyja með mjólkurask
suður að Grásteini og skildi hann þar eftir. Um
kvöldið vitjaði hún asksins aftur, og var harm þá
tómur. — Allt sumarið og fram á haust fór hús-
Qrima IX.
4