Gríma - 01.09.1933, Page 52
Sö HULDUKONAN í GRÁSTEINÍ
freyja í bæði mál með mjólk suður að steininum;
lét hún engan vita um þær ferðir sínar. En einn
moi'gun hafði mjólkin ekki verið hirt, og hætti hún
þá mjólkurgjöfunum.
Þetta sama haust bar ein kýrin á Ytri-Tjömum
sægráum kvígukálfi, sem var ákaflega fallegur. Var
kálfurinn látinn lifa, dafnaði vel og varð afbragðs
mjólkurkýr. Átti kýr þessi marga kálfa, sem látnir
voru lifa og er sagt, að út af henni séu komnar
allar beztu mjólkurkýrnar í Eyjafirði.
20.
Huldukonnr ( Grásteini.
(Eftir handriti Jóhannesar Arnar Jónssonar 1916).
Það mun hafa verið nálægt 1850, að saga þessi
gerðist.
Einn dag að vetrarlagi í norðanhríð var bóndinn
á Kimbastöðum í Borgarsveit á leið heim til sín
utan af Reykjaströnd. Hann var röskleikamaður
og harðger. Þegar hann kom á melana fyrir ofan
Sauðá, sá hann stúlku ganga á undan sér suður
göturnar. Herti hann þá gönguna og ætlaði að hafa
tal af henni, en það tókst eigi, því að hún var
drjúgstíg. Gengu þau þannig af kappi um stund,
og dró þó heldur saman. Þegar þau voru komin í
nánd við Grástein, sem er einstakur klettur skammt
fyrir utan Brennigerði, var bóndi nærri því búinn
að ná stúlkunni. Sá hann þá að hún hvarf inn ura
dyr í klettinum, sem opnazt höfðu í bili, en lukust
jafnskjótt aftur. Reiddist þá bóndi, rak broddstaf